Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2013, Síða 33

Læknablaðið - 15.11.2013, Síða 33
UMFJÖLLUN O G GREINAR Temporo parietal fascia Temporalis fascia Facial nerve Articular disk Andlitstaug. Birtist í The Journal of Cranio-Maxillofacial Trauma 1999; 5: tölublað 4. Sunderland-taugaskaði. Birtist í The Journal ofCranio- Maxillofacial Trauma 1999; 5: tölublað 2. Sunderland Nerve Injury Classification Neurapraxia 1st Degree Injury höfundana þar sem tímaritið sjálft ber ekki kostnað af gerð myndanna. Eflaust er það hluti skýringarinnar á því að íslenskir læknar hafa lítið kallað eftir samstarfi við læknisfræðilega teiknara. Hins vegar benti niðurstaða rannsóknar minnar einnig til þess að þjónustan - að hægt væri að fá læknisfræðilegan teiknara til verksins á ís- landi - væri óþekkt." Lesskilningur tiltekinna hópa er ofmetinn í rannsókn Hjördísar kom einnig fram að myndlýsingar á ýmsum þáttum heil- brigðisþjónustu við almenning verða sífellt mikilvægari, enda hafa verið færðar sönnur á að stór hluti almennings tileinkar sér ekki nema lítinn hluta upplýsinga með því að lesa texta. Texti getur einnig verið misflókinn og valdið því að hluti þeirra sem upplýsingarnar eiga að ná til geta ekki tileinkað sér innihaldið með lestr- inum einum saman. Allt eru þetta þekktar staðreyndir og Hjördís segir miðlun upp- lýsinga með myndrænum hætti auka lík- urnar margfalt á því að viðkomandi muni efnið, fremur en ef því er miðlað í texta eða talmáli. „Þetta snýst á endanum um að almenningur, þiggjendur þjónustunnar, þarf að skilja leiðbeiningarnar og sinna sjálfum sér samkvæmt þeim. Það hefur verið sýnt fram á að sjúklingar tileinka sér ekki nema 14% lyfjaupplýsinga að meðal- tali með því lesa leiðbeiningar. Notkun skýringarmynda eykur þetta hlutfall um nokkra tugi prósenta. Margir eru einfald- lega mjög illa læsir á heilbrigðisfræðilegar leiðbeiningar enda er orðfærið sérhæft og heilbrigðisstarfsmenn átta sig oft ekki á því að texti þeirra er alls ekki sniðinn að þeim sem hann á að ná til. Lesskilningur tiltekinna hópa meðal almennings er ein- faldlega ofmetinn í þeim textum sem beint er að þeim. Það er alltof algengt að sjá myndalausan, þungan, sérhæfðan texta um sjúkdóma og meðferðir sem skilar sér í slakri sjálfsumönnun og á endanum í auknum kostnaði fyrir heilbrigðiskerfið. Hnitmiðað, vel myndlýst og skýrt fræðslu- efni skilar sér margfalt til baka þó það sé vissulega dýrara í framleiðslu en mynda- laus textabæklingur. Læsi á náttúrufræði er mun lægra en almennt læsi, eins og PISA-rannsóknin bendir til - þar kemur fram að 23% 15 ára drengja á íslandi geta ekki lesið sér til gagns. Það bendir til þess að það sem skrifað er fyrir sjúklinga sé yfirleitt miðað að vel læsum ein- staklingum og þar með verður stór hluti notenda heilbrigðisþjónustunnar útundan. Teikningar ásamt texta geta kennt nýjan orðaforða." Hún nefnir einnig að ýmsar upp- lýsingar og fræðsla séu af því tagi að teiknaðar myndir geti gert sjúklingum og aðstandendum auðveldara að með- taka tilfinningalega erfiða hluti. „Þetta á sérstaklega við um aðgerðir og meðferðir á börnum þar sem hægt er að útskýra hlutina með því að blíðka myndir með já- kvæðum teiknistíl, þegar ljósmyndir gætu hreinlega valdið aðstandendum tilfinn- ingalegu áfalli eða óþarfa ruglingi. Einnig hjálpa myndir þegar börnin sjálf, sem eru á mjög mismunandi aldri, þurfa að skilja hvers vegna þau þurfa að ganga í gegnum erfiða meðferð." Hjördís segir skort á notkun skýr- ingarmynda ekkert einsdæmi hér á fs- landi. „Hið skrifaða orð hefur ákveðinn virðingarsess í vestrænni menningu. Oft er talað um myndskreytingar af hálfgerðri lítilsvirðingu, eins og með því sé efnið barnalegra á einhvern hátt. Bandaríski sálfræðingurinn Howard Gardner nefnir flokkunarhæfni sem einn af fimm hæfi- leikum sem mannshugurinn þarf að búa yfir í framtíðinni. Tákn og myndir auka þessa hæfni svo um munar en með því að nota myndir eykst hraði við að skilja upp- lýsingar, það flýtir fyrir flokkun á efninu og úrvinnslu. Að nota myndir á sér eflaust djúpar rætur í samfélagsgerðinni en við þurfum að horfast í augu við staðreyndir og viðurkenna að það eru ekki allir í þessu samfélagi okkar jafn læsir á texta en þurfa samt upplýsingar á sviði heilbrigðis- þjónustu." LÆKNAblaðið 2013/99 521

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.