Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2013, Side 45

Læknablaðið - 15.11.2013, Side 45
UMFJOLLUN O G GREINAR Davíð O. Arnar hjartalæknir og Jens V. Kristjáns- son raftækni- fræðingur hafa haft forgöngu um notkun snjallsímaapps við skráningu hjartsláttartiðni, hjartatakts og hjartsláttaróþæg- inda. Rafskaut hulsunnar um snjallsímann nema hjartsláttinn. við að fara yfir niðurstöður mælinganna og bregðast við þeim." Aðspurður um notagildi þessa búnaðar segir Davíð að hjartalínurit tekið með snjallsíma sé á þessu stigi fyrst og fremst gagnlegt til að meta hjartasláttartíðni og hjartatakt. Notagildi þess við mat á blóð- þurrð er sem stendur takmarkað. „Reynd- ar er mögulegt að taka upp hjartarit með rafskautum á korti á stærð við greiðslukort með AliveCor-appinu. Þá er mögulegt að taka rit sem samsvarar brjóstleiðslum á hefðbundnu hjartalínuriti en reyndar aðeins einni leiðslu í einu. Mögulegt er að greina blóðþurrð í framvegg með þeirri nálgun, en við höfum enga reynslu af því enn sem komið er," segir Davíð. „Hjartsláttaróþægindi eru nokkuð al- geng kvörtun. Tíðni hjartsláttaróþæginda er hins vegar mjög breytileg og oft líður hans og taka línurit. Þetta er því mjög gagnlegt til að meta orsök hjartsláttar- óþæginda sem koma tiltölulega sjaldan og valda ekki meðvitundarskerðingu. Einnig mætti hugsa sér að þessi tækni, að taka hjartalínurit með snjallsíma, myndi nýtast við að fylgja eftir ávinningi af meðferð við hjartsláttartruflunum, til dæmis lyfja- meðferð eða brennsluaðgerðum. Einnig hefur komið til tals að skima fyrir gáttatifi með þessari tækni. Gáttatif er orsök upp undir þriðjungs heilaáfalla en ekki hefur verið sýnt fram á að skimun fyrir gáttatifi með tólf leiðslu hjartariti svari kostnaði. Skimun með snjallsímariti, sem þá er tekið daglega í einhvern tíma, er athyglis- verður kostur sem krefst frekari skoðunar í þessu tilliti." langur tími milli einkenna. Því getur á köflum reynst erfitt að greina orsök þeirra með hefðbundnum rannsóknaraðferðum eins og tólf leiðslu hjartalínuriti eða Hol- ter-síritun í 24 klukkustundir. Flestir ein- staklingar eru yfirleitt með símann innan seilingar og ef þeir fá einkenni hjartslátt- aróþæginda er oftast auðvelt að grípa til LÆKNAblaðið 2013/99 533

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.