Læknablaðið - 15.11.2013, Page 49
FRÁ LYFJAEFTIRLITI EMBÆTTIS LANDSLÆKNIS 2. pistill
ADHD og misnotkun lyfja I
Magnús Jóhannsson
læknir
magnus@landlaeknir. is
Ólafur B. Einarsson
sérfræðingur
Lárus S. Guðmundsson
lyfjafræðingur
Leifur Bárðarson
læknir
Lyfið metýlfenídat á sér langa sögu. Lyfið
er örvandi fyrir heilann og eru verk-
anir þess að sumu leyti líkar verkunum
amfetamíns en að öðru leyti kókaíns. Það
var fyrst notað í Bandaríkjunum 1955
við ofvirkni og eftir 1960 fór notkun þess
vaxandi. Á síðasta áratug 20. aldar varð
gríðarleg aukning í notkun metýlfenídats
hjá börnum og það sem af er þessari öld
hefur lyfið verið að ryðja sér til rúms hjá
fullorðnum. Lyfin Rítalín og Rítalín Uno
eru viðurkennd handa 6-18 ára börnum
með ofvirkni og athyglisbrest (ADHD) og
Concerta er þar að auki viðurkennt fyrir
framhaldsmeðferð fullorðinna. Atomox-
etín (Strattera) er ekki örvandi eins og
metýlfenídat, það reynist oft ágætlega við
ADHD hjá börnum og fullorðnum og er
ekki misnotað. Notkun atomoxetíns hefur
farið stöðugt vaxandi undanfarin ár en
notkun metýlfenídats er samt enn um 5
sinnum algengari.
Er metýlfenídat hættulegt lyf?
Færa má rök fyrir því að metýlfenídat
verði tekið af markaði þegar fram kemur
lyf við ADHD sem er að minnsta kosti jafn
gott og metýlfenídat og sem ekki er mis-
notað. Atomoxetín er ágætt lyf en gagnast
ekki nógu mörgum til að uppfylla þessi
skilyrði. Einn af göllum atomoxetíns er
að það nær ekki fullri virkni fyrr en eftir
nokkurra vikna meðferð. Metýlfenídat er
mjög hættulegt lyf vegna þeirrar miklu
fíknar sem það veldur hjá sumum einstak-
lingum. Metýlfenídat er misnotað af nokk-
ur hundruð sprautufíklum hér á landi og
öðrum hópi sem er sennilega mun stærri
og tekur lyfið inn eða í nefið. Metýlfenídat
getur vissulega bætt verulega líðan og lífs-
gæði sjúklinga með ADHD en það getur
líka valdið fíkn, kvíða, svefntruflunum og
einstaka sinnum geðrofi.
Notkun metýlfenídats á
íslandi og í öðrum löndum
Notkun metýlfenídats á íslandi er með því
allra mesta sem þekkist og menn hljóta að
spyrja hverju það sæti. Skammtar virðast
að meðaltali ekki hærri hér en í nágranna-
löndunum og þess vegna hlýtur þessi
mikla notkun að byggjast á fjölda notenda.
Fjöldi þeirra sem fá ávísað metýlfenídati
hefur vaxið mikið á tímabilinu 2003-2012,
eða um 160% hjá börnum og 480% hjá full-
orðnum. Á árinu 2012 fengu samtals 2600
börn og 2750 fullorðnir metýlfenídat, sem
gerir um 1,7% þjóðarinnar. Gera má ráð
fyrir að mikill meirihluti þessarar notk-
unar sé vegna ADHD. Einhver óþekktur
hluti þessarar notkunar metýlfenídats fer
í sjúklinga sem misnota lyf eða eru með
sjúkdóma þar sem verkun lyfsins er óstað-
fest; nánar verður fjallað um það í öðrum
pistli.
Ef notkun metýlfenídats er reiknuð í
skilgreindum dagskömmtum (DDD) fyrir
hverja 1000 íbúa er notkunin á íslandi
rúmlega tvöfalt meiri en í Danmörku fyrir
flesta aldursflokka og bilið fer ekki minnk-
andi. Notkun metýlfenídats í Danmörku
er svipuð því sem gerist í mörgum öðrum
löndum, eins og til dæmis í Sviss, Svíþjóð
og Hollandi.
Embætti
landlæknis
Directorate of Health
Börn og fullorðnir
Lengi var talið að algengi ADHD væri
4-6% hjá börnum og 2-4% hjá fullorðnum
en þessar tölur hafa farið hækkandi. Ný-
legar tölur frá Bandaríkjunum sýna að 11%
skólabarna (4-17 ára) hafa fengið þessa
greiningu og algengið hjá drengjum, 14-17
ára, nálgast 20%. Þessar tölur eru svo háar
að ýmsir efast um að þær geti verið réttar
og hefur verið nokkur umræða um þetta í
fræðiritum og fjölmiðlum. Innlegg í þessa
umræðu er hvaða meðferð er beitt, eins og
með öðrum lyfjum en metýlfenídati eða
meðferð án lyfja.
Bitnar umræðan á sjúklingum?
Fáir efast um að metýlfenídat hjálpar
mörgum sjúklingum með ADHD og er
að mörgu leyti betra en amfetamín sem
var áður notað. Það er líka staðreynd að
metýlfenídat getur valdið alvarlegri fíkn,
er misnotað og ofnotað á ýmsan hátt og
er uppáhaldslyf sprautufíkla. Því hefur
verið haldið fram að ADHD kunni að vera
ofgreint og verður eflaust umræða um það
áfram. Umræða um öll þessi atriði verður
að vera opin, en ef hún fer fram á faglegan
hátt ætti hún ekki að skaða sjúklingana
sem hafa gagn af lyfjunum.
Hvað er til ráða?
Lyfjaeftirlitsteymi Embættis landlæknis
hefur meðal annars það hlutverk að stuðla
að skynsamlegri lyfjanotkun í landinu. í
þeirri vinnu hefur þurft að forgangsraða
og á síðustu tveimur árum hefur starfinu
verið beint sérstaklega að sprautufíklum
og það lyf sem mest er notað af þeim hópi
er metýlfenídat.
LÆKNAblaðið 2013/99 537