Fréttatíminn - 19.12.2014, Síða 104
104 matur & vín Helgin 19.-21. desember 2014
Laugardagstilboð
– á völdum servéttum og kertum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Opið laugardaga kl. 10-16
Nýir o
g
fallegi
r haus
t- og
vetrar
litir í s
ervétt
um
og ker
tum
®
Fæst í heilsubúðum, apótekum og völdum stórmörkuðum
Þórir Bergsson, sem rekur hinn sí-
vinsæla veitingastað Bergsson mat-
hús, er í óða önn að undirbúa jólin
og þar spilar matargerð að sjálf-
sögðu stórt hlutverk. Síðustu vikuna
fyrir jól mun Bergsson bjóða upp
á sérstakan jólamatseðil þar sem
margt girnilegt verður á boðstólum.
Jólamaturinn að
hætti Bergsson
Þórir Bergsson hefur í nægu að snúast í eldhúsinu fyrir og um hátíðirnar Mynd/Hari
A ðspurður um jólahefðir fjölskyldunnar segir Þórir að á aðfangadag bjóði fjölskyldan gest-um og gangandi upp á jólagraut og við það
myndist skemmtileg stemning. Sjálfur mun Þórir
svo matreiða hreindýr eða gæs á aðfangadagskvöld.
Fyrir þá sem eiga eftir að standa í stórræðum í eld-
húsinu yfir hátíðirnar ráðleggur Þórir þeim að reyna
ekki of mikið á sig í eldhúsinu. „Það er mikilvægt
að njóta jólanna í faðmi fjölskyldunnar.“ Hér deilir
hann með okkur nokkrum ekta jólauppskriftum.
Hægelduð gæs
Gæs er hamflett og sett í steikarpott og
krydduð með salti og pipar. Gulrætur,
laukur, hvítlaukur, blóðberg, rósmarín,
einiber og góð sletta af rauðvíni eru sett í
pottinn. Bakað með loki við 110°C í um það
bil þrjár klukkustundir. Lokið er svo tekið
af og hitinn hækkaður í 160°C í 15 mínútur.
Gæsin er svo látin hvíla í að minnsta kosti
20 mínútur áður en hún er borin fram. Alls
ekki hella soðinu, það er einstaklega gott
að nota það í sósu.
Lambahryggur upp á gamla góða mátann
Heill hryggur dugar fyrir 4-7 manns. Skerið
tígla í fituna, passið að skera ekki í kjötið.
Kryddið með salti og pipar. Notið svolítið
vel af flögu salti svo það komi góð skorpa
í fituna. Stillið ofninn á 175°C og eldið
hrygginn í um það bil 30 mínútur. Stingið
kjötmæli í hrygginn og takið hann út þegar
mælirinn sýnir 58°C. Hvílið hrygginn í 20
mínútur, hækkið svo hitann í 190° og eldið í
fimm mínútur og takið svo út.
Andabringur
Látið andabringurnar
þiðna í ísskáp, best er
að steikja öndina við
stofuhita. Skerið tígla í
fituna, passið að skera
ekki í kjötið. Steikt á
kaldri pönnu og látið fitu-
hliðina snúa niður. Snúið
bringunni þegar fitan
hefur lekið vel á pönnuna
og góð skorpa myndast,
steikið á kjöthlið í sirka
eina mínútu. Kryddið með
salti og pipar og setjið
í ofn í 10-15 mínútur á
160°C. Látið kjötið hvíla
í 15-20 mínútur áður en
það er skorið og borið
fram.