Þjóðlíf - 01.06.1987, Síða 41
I N N L E N T
Pening eftir sig. „Þjóerni gestanna skiptir
miklu," segir einn viðmælandi blaðsins.
-Ameríkanar stoppa yfirleitt aðeins í tvo til
þrjá daga, fara sígilda hringferð að Gullfoss
°g Geysi og eina ferð um bæinn, og vilja
gista á dýrari hótelum. Þjóðverjinn vill
°dýra gistingu í bænum og fara í lengri ferðir
ym landið. Þeir koma oftast í hópum og fara
1 tVeggja vikna ferð um ísland og eru að
s®kjast eftir náttúrunni. Frakkar eru undir
sama hatt settir og Þjóðverjar en Danir gera
aftur svipaðar kröfur og Ameríkaninn og
eyða meiru í ferðinni."
TEKJUHLIÐIN. Menn deila um hve ríku-
}eg auðlind ferðaútvegurinn er okkur íslend-
lngum og margir ætla að gjaldeyristekjurnar
af erlendum ferðamönnum gefi okkur brátt
Slst minni auðlegð en mikilvægar útflutn-
mgsvörur. Hér er líka um stórar upphæðir
að ræða. Samkvæmt upplýsingum Seðla-
ðankans voru gjaldeyristekjur af erlendum
íerðamönnum 1980 um 230 milljónir króna.
A síðasta ári er ætlað að gjaldeyristekjurnar
hafi numið nærfellt fjórum milljörðum og er
þá e.t.v. vanmetið hve miklar „duldar gjald-
eyristekjur“ hafa fengist á árinu. Aukningin
frá árinu 1984 er um 20%.
A þessu eru þó fleiri hliðar og dekkri.
JjVe miklu nemur eyðsla íslendinga í út-
jöndum þegar litið er á þjóðarhag og eft-
•rspurn í landinu í heild? „Ef menn skoða
j^tta ofan í kjölinn geta menn séð að mikil
aukning erlendra ferðamanna til íslands get-
Ur haft í för með sér slæmar afleiðingar.
Mcð þvf er ferðaþjónustan að flytja neysl-
Una hingað sem hefur mikið álag í för með
j’er>“ segir Bjarni Sigtryggsson. „Það er
næpið að treysta um of á ferðamanna-
^trauminn því hann getur verið svo sveiflu-
■nndur,“ segir kollegi hans á Holliday Inn.
”Leiðtogafundurinn í fyrra jók heildar-
s.trauminn á árinu um 3%. Eitt atvik í Evr-
°Pu á borð við Tsjernobylslysið getur snar-
ega dregið úr ferðalögum," bætir hann við
en telur andstætt skoðun Bjarna Sigtryggs-
s°nar og fleiri, að við getum allt eins átt von
a mikilli aukningu ferðamanna á næstunni
°S er þá skemmst að minnast spár Ferða-
^jalaráðs fyrir nokkrum árum þegar gert var
rað fyrir um 7% aukningu ferðamanna til
s ands tj| grsjns 1990. Niðurstaðan hefur
er*ð frá 11 til 16% aukning á síðustu árum.
J^X^NlNG. Samkvæmt alþjóðatölum er
UU ar*egur fjöldi ferða milli landa í heimin-
m talinn nema um 300 miljónum. Þrátt
ekF Slauk‘ð landkynningarstarf er ísland þó
k0 1 nerna að litlu leyti komið inn á landa-
u rt Je^ðamannsins. Á ráðstefnu s.l. vetur
Ól jíynningarmál íslands kom fram hjá
a*.aJ.S,ePhensen að ÁTVR lét gera mark-
áðu °nnun meðal uppa í Bandaríkjunum
Voriv Cn ra®’st var ut 1 markaðssetningu
tek' tnS °g ls- Hér var um að ræða
juhátt, ungt fólk og vel menntað, en
nnunm lejoojjj^s ag e;nungjs 5% þejrra
u gert grein fyrir því hvar ísland væri
staðsett á jarðarkringlunni. Enn er langt í
land í fullkomnum kynningarherferðum er-
lendis ef menn telja það þá vænan kost. Á
afmörkuðum sviðum hefur þó náðst veru-
legur árangur. Flugleiðum tókst vel upp í
markaðsstarfi sínu á Norðurlöndunum í vet-
ur sem skýrir verulega þá aukningu sem
orðið hefur fyrstu mánuði ársins og munu
áforma að ná slíkum árangri í Bretlandi og
Vestur Þýskalandi á næstunni. En spurt er á
móti: Ef Flugleiðir selja þessar ferðir mjög
ódýrt til að fá traffík, eða „cash-flow“ eins
og það kallast, þessir ferðamenn kaupa toll-
frjálst brennivín og stoppa aðeins í tvo daga
og hótelin selja á ódýrara verði á veturna
vegna framboðsins, skilja þessar ferðir þá
nokkuð eftir sig fyrir þjóðarbúið? Hér er um
hálfgerða útsölustarfsemi að ræða.
í ferðamálaumræðunni gleymist oft að fs-
lendingar ferðast nú æ meira um landið sitt
og nýta sér í ríkari mæli ferðaþjónustu af
ýmsu tagi. Hjá Eddu hótelunum fengust þau
svör að nú væri mikil aukning í bókunum
íslendinga, hjá Ferðaþjónustu bænda hefur
það nú gerst að mun fleiri íslendingar en
útlendingar hafa bókað sig á ferðaþjónustu-
stöðum bænda um landið. Hjá ferðaskrif-
stofu fengust þær upplýsingar að íslendingar
væru nú að vakna til vitundar um möguleika
á að notfæra sér þjónustu ferðaskrifstofanna
í sumarferðalögum sínum innanlands.
Annar þáttur sem brýnt er að sinna er
verndun náttúrunnar, skipulag og leiða-
merkingar. Allt þættir sem ekki gefa beinan
arð og því hefur gengið erfiðlega að fá aðila
til að ráðast í slíkar framkvæmdir. Talið er
mikilvægt að bæta samvinnu Ferðamálaráðs
og Náttúruverndarráðs en af naumum fjár-
veitingum beinir Ferðamálaráð mestu í
kynningarstarfsemina. Að sögn Rögnu Sam-
úelsson skrifstofustjóra ráðsins hefur nið-
urskurður á fjárveitingum til starfsemi
Ferðamálaráðs verið meiri nú en nokkru
sinni fyrr.
Það virðist því að öllu samanlögðu stefna í
álíka gott ferðasumar og í fyrra en aukn-
ingin milli ára verður þó ekki mikil skv.
spám þeirra sem leitað var til. En þjónustu-
fjölbreytnin vex, hugmyndaflæðið í þeim
efnum er gífurlegt. Einn ráðstefnugesta á
nýafstaðinni ferðamálaráðstefnu höfuðborg-
arsvæðisins stakk t.d. upp á því að settur
yrði upp langeldur og haldnar víkingaveislur
að fornum sið skammt frá Reykjavík sem
gulltryggði áhuga og aðsókn erlendra
túristahópa — og ekki hvað síst, gæfi af sér
frekari gjaldeyristekjur. Allt er þó hverfult í
þessum bransa: „Ef marka má lætin sem
hafa orðið vegna 3000 bandarískra her-
manna hér á landi, hvaða áhrif gæti það þá
haft ef hingað streymdu 200 þúsund erlendir
túristar á hverju ári,“ segir Bjarni Sigtryggs-
son. „Ég man líka vel eftir því að menn voru
með dollarann í augunum þegar verið var að
byggja sfldarmjölsverksmiðjur um landið.
Ári síðar hvarf sfldin af miðunum."
■ Ómar Fri6riksson
Átak á Suðurlandi
Mikill uppgangur
í ferðamannaþjónustu
FERDAMÁLASAMTÖK Suðurlands
hafa lagt mikla vinnu í ferðamálin og
gefa nú í þriðja sinn út kynningarbækling
sem að þessu sinni verður með vegleg-
asta móti. Það er fyrirtækið Tungutak á
Selfossi sem annast útgáfuna. ítarleg
kynning er á öllu markverðu í hverju
sveitarfélagi og auk þess verður sérstök
þjónustuskrá í ritinu til hagræðingar fyrir
ferðamenn. Bæklingurinn er prentaður í
tíu þúsund eintökum á íslensku og tólf
þúsund eintökum á ensku og verður
dreift vítt og breitt enda er hér um
óvenju stórt kynningarátak að ræða.
Mikill uppgangur er í ferðaþjónust-
unni á Suðurlandi. Þrjú glæsihótel voru
tekin í notkun á síðasta ári á Suðurlandi
og eru uppi áform um að byggja lítil
hótel víða með góðum veitingastöðum
sem hafi yfir sér persónulegan blæ.
Einkaaðilar eru að byggja sumargistihús
á Flúðum sem verður nokkurs konar
mótel og með þjónustukjarna fyrir ferða-
menn um svæðið. Hjá Geysi hefur verið
tekin í notkun hótel- og veitingasala.
Ferðaþjónusta bænda færist sífellt í vöxt
og ferðamálanefndir sveitarfélaganna
vinna nú mikið starf. Á Selfossi hefur
nýlega verið tekið í notkun gistiheimili
fyrir 14 manns.
Mikil áform eru um að auka og bæta
ferðaþjónustu og kynningu í lands-
hlutanum. í nýlegri skýrslu Ferðamála-
samtakanna segir: „Á Suðurlandssvæð-
inu er að finna fjóra af þeim stöðum sem
flestir ferðamenn hafa tekið ákvörðun
um að skoða áður en til landsins kemur:
Gullfoss, Geysi, Þingvelli og Vest-
mannaeyjar. Nauðsynlegt er að fá ferða-
fólk til að fara víðar um byggðarlagið.
Ferðamaður sem búinn er að sjá Gull-
foss og Geysi þarf að fá upplýsingar um
hvað hægt sé að sjá á Klaustri og í
Vík...„ Og samtökin stinga upp nýjum
hugmyndum: „Mikilsvert er að kynna
framleiðsluvörur landsins. Einn slíkur
möguleiki er lítið sem ekkert nýttur. Það
er markaðurinn á Keflavíkurflugvelli.
Hægt er að selja farþegum landbúnaðar-
vörur. Þar ætti að vera góður bæklingur
á 2-5 tungumálum þar sem ýmsar fram-
leiðsluvörur okkar eru kynntar. í Frí-
höfninni er hægt að koma fyrir skemmti-
legum kynningarbás, í þjóðlegum stfl,
þar sem ferðamenn geta keypt kjöt- og
ostarétti," segir þar.
■ Ómar Fri6riksson/Svainn Helgason
L
41