Þjóðlíf - 01.06.1987, Side 69
í Þ RÓTTI R
EINAR KARLSSON
" Ver&ur Bogdan Kowalczyck hampaö af jafn miklum ákafa og hér eftir Ólympfulelkana?
Sextán mánaða
lokasprettur
Einstæður undirbúningur landsliðsins í
nandknattleik fyrir Ólympíuleikana
þad er komið sumar. Þeir sem stunda
vetraríþróttir eru lagstir í dvala, komnir í frí
dr langan og strangan vetur og hvíla sig
Tri,r átök næsta keppnistímabils. Sumar-
Próttirnar eru teknar við, knattspyrnan,
§°lfið og frjálsíþróttirnar ráða ríkjum.
. tn einn hópur brýtur þessa árstíðaskipt-
hn8fu- Landslið íslands í handknattleik er að
Ja einhvern viðamesta undirbúning sem
J'gur fara af hérlendis, og er þó ekki að búa
s ® Undir átök næsta vetrar. Nei — dagurinn
allt miðast við er 20. september 1988.
lgUr æ8ur í framtíðinni, en samt áþreifan-
Si^Ur. Þennan dag leikur nefnilega ísland
v n/yrsta leik í handknattleikskeppni Ól-
ve ?lu'eikanna 1 Suður-Kóreu og mótherji
r ur fulltrúi Ameríku á leikunum, vænt-
an>e8a Bandaríkin.
j ann júní hófst puðiðfyrir alvöru. Bog-
in Kowalczyck, pólski kraftaverkamaður-
2f ]* ,L*enskum handknattleik, hefur valið
rriu ei^mann asfinga, þann kjarna sem
reik1 >'ðið sem leikur í Seoul, en
Verðnað er með að þrír leikmenn í viðbót
uián' l6^1111^1 úópinn síðar á árinu. Út júní-
best|U u Verður æB tíu sinnum í viku og allir
nandknattleiksmenn okkar hafa gefið
sig í þennan þrældóm, bæði þeir sem leika
hér heima og erlendis. Meira að segja
„gamli“ landsliðsfyrirliðinn Þorbjörn Jens-
son mætir þó hann hafi sagt eftir
heimsmeistarakeppnina í Sviss í fyrra að
sinn tími væri liðinn. Slíkt er aðdráttaraflið
— það vilja allir vera með hvað sem það
kostar.
Handknattleikssamband íslands leggur
allt undir til að ná góðum árangri í Seoul og
hefur samið um ótrúlegan fjölda verkefna
fyrir landsliðið næstu 16 mánuðina. Fyrstu
leikirnir verða 19.-21. júní, Danir koma
hingað og leika þrjá leiki. Liðið fer til Júgó-
slavíu í lok júní og leikur á sterku móti,
Jugoslavian Trophy, ásamt m.a. gestgjöfun-
um, Spánverjum, Sovétmönnum, Vestur-
Þjóðverjum og Ungverjum. Til marks um
styrkleika mótsins sóttu Svíar fast að fá að
vera með en fengu ekki.
Möguleiki er á sýningarferð til Bandaríkj-
anna í lok júlí og hart er lagt að HSÍ að fara.
Það mál skýrist þó ekki fyrr en ljóst er hvort
allir geti gefið kost á sér í þá ferð. Stefnt er
að ferð til Suður-Kóreu í ágúst og hún yrði
íslenska liðinu geysilega mikilvæg - það
yrði góð vettvangskönnun fyrir Ólympíu-
leikana. Fjögurra landa keppni í Luzern í
Sviss er á dagskrá í október, leikir eða mót
hér á landi í nóvember, Polar Cup í Noregi í
byrjun desember og alþjóðlegt mót í Dan-
mörku milli jóla og nýárs þar sem mótherjar
verða Spánn, Sviss og Danmörk. í janúar
1988 leika átta bestu þjóðir heims á World
Cup í Svíþjóð og þar er ísland í riðli með
Júgóslavíu, Austur-Þýskalandi og Dan-
mörku. í febrúar og mars verða landsleikir
hér heima og í júlí verður væntanlega farið á
alþjóðlegt mót í Austur-Þýskalandi.
Sjálfur endaspretturinn hefst 15. júní
1988. Liðið fer á alþjóðlegt mót á Spáni í
byrjun ágúst og sennilega verður sex landa
keppni háð hér á landi í lok sama mánaðar.
Sterkar þjóðir á borð við Sovétmenn, Rúm-
ena, Pólverja, Tékka, Svisslendinga og
Vestur-Þjóðverja hafa lýst yfir áhuga sínum
á að taka þátt. Danir koma hingað í byrjun
september og þá er ekkert eftir nema
leikarnir miklu sem allt miðast við.
Þetta þýðir 40-50 landsleiki fram að Ól-
ympíuleikunum og nú erum við komnir á
svipað stig og þjóðir Austur-Evrópu hvað
undirbúning varðar. Við þær hefur Bogdan
alltaf miðað kröfur sínar og til móts við þær
hefur HSÍ nú komið að svo miklu leyti sem
unnt er. í Seoul verður ísland af þessum
sökum með eitt leikreyndasta landslið
heims, sennilega það reyndasta, því kjarn-
inn úr liðinu verður kominn með í kringum
170 landsleiki og Bjarni Guðmundsson um
240 ef hann sleppur við alvarleg meiðsli.
Það sem meira er, HSÍ hefur stigið stórt
skref í átt til hreinnar atvinnumennsku í
handknattleik hérlendis. Landsliðsmennirn-
ir fá svokallaðan afreksstyrk, 30 þúsund
krónur á mánuði, í þá 16 mánuði sem þessi
69