Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 10

Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 10
INNLENT markaðsáherslur. Það sé því rökrétt í fram- haldi af því sem þú segir um tímasetningu hinna félagslegu viðhorfa og markaðsáherslu seinni tíma, að sett er á laggirnar stofnun um Jón Þorláksson en ekki Ólaf Thors. Þetta sé táknrænt um einhliða markaðsáherslu á seinni tímum í ásjónu Sjálfstæðisflokksins. Hvað segir þú um þessa kenningu? — Það er nú fyrst til að taka að stofnun Jóns Þorlákssonar er ekki stofnun á vegum Sjálfstæðisflokksins. Og lestu svo árásir kratabroddanna á Ólaf Thors, þegar hann var að byrja feril sinn. Þú rnyndir ekki spyrja svona, ef þú hefðir rifjað söguna upp. Nei, ég get með engu móti fallist á þetta. Þvert á móti hefur flokkurinn haldið þessari breidd og í engu hvikað frá henni. Flokkurinn hafði forystu fyrir afnámi haftanna á árunum upp- úr 1960. Það kallaði á geysihörð viðbrögð andstæðinga okkar og þá var flokkurinn sak- aður um að hverfa frá hinni breiðu ímynd, sem gömlu foringjarnir höfðu þá skapað um flokkinn. Þegar svipuð skref eru stigin 1983 til 1988, fær flokkurinn árásir af sama toga og 1960. Á sama tíma og við erum að taka þessi nýju skef í átt til aukins frelsis í efnahagsmál- um, er jafnframt gengið lengra en áður til að hækka tryggingabætur og lengja fæðingar- orlof, þannig að það er fráleitt að þessi ásök- un eigi við nokkur rök að styðjast. Stjórnar- þáttaka Sjálfstæðisflokksins á þessu árabili 1983-88 er gott dæmi um hvernig flokkurinn lagði samhliða áherslu á aukið frelsi í efna- hagsmálum og verulega stór og ný skref í félagsmálum. Telur þú þá að Sjálfstæðisflokkurinn liafi ekki verið þátttakandi í þeirri alþjóðlegu bylgju markaðshyggju, sem reis hæst með Reagan og Thatcher sem táknpersónum? — Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf staðið á íslenskum grunni. Hann er ekki og hefur aldrei verið hluti af einhverjum alþjóðlegum hreyfingum. Á undanförnum árum höfum við verið að beita okkur fyrir nýjum áhersl- um í samræmi við það sem hefur verið að gerast í Evrópu. Þó má segja að við höfum verið að stíga skref t.d. í bankamálum, sem sósíaldemókratar í Skandinavíu voru búnir að stíga áratugum á undan okkur. Við erum hvorki taglhnýtingar Reagans né Thatcher. í þessum orðum felst þó engin vanvirða við þessa þjóðarleiðtoga, sem ég met um margt ekki síst eftir persónuleg kynni. Þú getur þá séð fyrir þér að Sjálfstæðis- flokkurinn sé andvígur Thatcher-stefnunni gagnvart ríkisvaldinu? — Það er meðal grundvallaratriða okkar stefnu að ríkið eigi að hafa sem minnst af- skipi af atvinnurekstrinum. Út frá íslenskum aðstæðum eru hugmyndirnar svipaðar um margt að þessu leyti. Við viljum gefa einstak- lingum og félögum í atvinnulífinu sem frjálsastar hendur. í þessurn efnum sjáum við fyrir okkur nýja tíma: hin nýja efnahagsáætl- un Norðurlanda og hið aukna efnahags- samsstarf Evrópuþjóða innan Evrópubanda- lagsins. Ég er þeirrar skoðunar að okkar stefna falli mjög vel að þeirri þróun sem þarna er að gerast. Aðrir flokkar hafa þar enn fyrirvara. Nú var það einmitt meðal gagnrýnisatriða á stjórnarþátttöku Sjálfstæðisflokksins, að ríkisvaldið hefði þanist út á hans tímum? — Jafnvel Margaret Thatcher var einnig sökuð um það. En ég held að okkur hafi tekist að halda í horfinu, að ríkisútgjöldin hafi ekki aukist að raungildi á þessu tímabili sem við fórum með ríkisfjármálin. Síðasta stjórnarsamstarf undir forsæti þínu endaði allsérkennilega í fyrra. Sam- starfsflokkarnir sökuðu þig persónulega um klénan árangur þeirrar ríkisstjórnar. Var ekki óþægilegt að sitja undir slíkum ásökun- um — og hverjar telur þú hafa verið skýring- ar á þessu, — eftir á að hyggja? — Það er auðvitað alltaf leiðinlegt að standa í persónulegu orðaskaki eða ásökun- um. Ég get ekki ímyndað mér að neinn mað- ur hafi gaman af slíku. Það er að minnsta kosti ekki minn stíll. Síðasta ríkisstjórn fór frá, vegna þess að það náðist ekki samkomu- lag um aðgerðir til að reisa við rekstur at- vinnuveganna. Það kom mjög fljótt í ljós, að Framsóknarflokkurinn sætti sig ekki við þetta samstarf. í maímánuði í fyrra setti ég fram tillögur um aðgerðir. Þá var ekki undan því vikist að breyta raungengi krónunnar til að halda sjávarútvegnum gangandi. Fram- sóknarflokkurinn fann um þetta leyti ásamt krötum upp kenninguna um að gengisbreyt- ing ætti að verða afgangsstærð. Þegar kom fram á haustið var ekki lengur við óbreytt ástand unað. — Aðstæður höfðu þá verið í heilt ár þannig, að bandaríkjadollari hafði verið að falla verulega og verð á afurðum okkar sömuleiðis. Við komumst ekki niður í botn þessarar lægðar ytri aðstæðna fyrr en sl. haust og þá þurfti að gera lokaviðspyrnuna. Það var útilokað að gera það öðruvísi en með gengisbreytingu. En þá brá svo við að Fram- sóknarflokkurinn neitaði með öllu að fallast á gengisbreytingu og lagði fram tillögu í rík- isstjórn, þar sem ekki var einu sinni gert ráð fyrir að nýta heimild til gengisbreytingar upp á 3% frá því um vorið. Alþýðuflokkurinn hafði með því að hafa viðskiptaráðherrann komið í veg fyrir að sú heimild væri nýtt yfir sumarmánuðina. Inn í þetta blandaðist svo andstaða krata og Framsóknar við tillögur mínar um lægra skattþrep í matvörum. Þarna varð Ijóst að um frekara samstarf gat ekki verið að ræða. Við hefðum auðvitað getað keypt okkur áframhaldandi setu í rík- isstjórn með því að gangast inn á svipaðar hugmyndir og núverandi ríkisstjórn hefur Samstarfsmenn í síðustu ríkisstjórn fá ekki háa einkunn hjá Þorsteini. „Ég varð þó aldrei var við óheilindi í fari Halldórs Ásgrímssonar og Guðmundar Bjarnasonar" 10

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.