Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 15
INNLENT
an. Breytingumfylgjavaxtaverkir. Enþað er
ekkert samasemmerki á milli frjálsra vaxta
og hárra vaxta.
Nú eru rnargir þeirrar skoðunar að kerfið
hafi á sínuni tíma jafnað út sveiflur og til-
flutning fjár, — þannig að á tímum nei-
kvæðra raunvaxta hafi verið tilfærsla fjár-
magns sem einnig hafi verið nauðsynleg?
— Sannarlega var mikil tilfærsla í tíð nei-
kvæðra raunvaxta. Við getum ekkert neitað
því að það var meira og minna pólitísk
ákvörðun frá hverjum peningar voru teknir
og til hvers þeir fóru. Nútímaþjóðfélag geng-
ur einfaldlega ekki undir slíkri skömmtunar-
stjórn. Við megum ekki gleyma því að þessi
tilfærsla var frá sparendum launafólki og líf-
eyrisþegum, til fyrirækja. það var siðlaus til-
færsla að mínu mati. Það er alveg rétt að
mörg fyrirtæki byggðu upp eigið fé sitt með
því að stela með löglegum hætti sparnaði
almennings, en það gengur ekkert þjóðfélag
til langframa með þessum hætti. Nútíma
fyrirtæki sem keppa eiga í alþjóðlegu um-
hverfi verða ekki byggð upp á fölskum undir-
stöðum.
Og þar sem við eruni að bera peningakerfi
okkar saman við önnur lönd, — er ekki úr
vegi að niinna á að við erum að borga verð-
tryggð lán og raunvexti. Alls staðar í þessum
samanburðarlöndum er áhættan bæði hjá
lánveitanda og lántaka. Þar konia því öðru
hvoru upp mjög lágir raunvextir eða jafnvel
neikvæðir vextir. Er svona fyrirkomulag
nokkurs staðar annars staðar en í Suöur-
Ameríku.
— Vandinn sem þú ert að tala um er verð-
bólguvandi. Það er hins vegar alveg rétt að
verðtryggingin mælir þetta ástand með sjálf-
virkum hætti. Við vöruðum mjög sterklega
við verðtryggingunni þegar Alþýðuflokkur-
inn og Framsóknarflokkurinn keyrðu hana
fram 1979, vegna þess að frá okkar bæjardyr-
um séð er miklu heilbrigðara að menn geri
samninga og taki áhættu í samningum, en
hafi ekki sjálfvirka mælingu. Þessi ákvörðun
var tekin meðan vextir voru undir miðstjórn-
arákvörðun. Ég get alveg tekið undir það að
verðtryggingin sem slík er ekki heilbrigð, en
það er hins vegar erfitt að komast út úr
henni. Ég barðist fyrir því sem fjármálaráð-
herra í ríkisstjórn Steingríms Hermannsson-
ar og svo aftur í minni ríkisstjórn að verð-
tryggingin yrði strax bönnuð á skammtíma-
fjárskuldbindingum. Fyrri ríkisstjórn
„Ég er að tala um tvær grundvallar-
yfirlýsingar — yfirlýsingu Steing-
ríms Hermannssonar um að ísland
ætli að hverfa frá viðurkenndum
vestrænum aðferðum við stjórn
efnahagsmála og yfirlýsingu Al-
þýðubandalagsins um að þau fyrir-
tæki eigi að lifa sem þeir ákveða er
ferðinni ráða“.
„Þó það komi mörgum á óvart
þá sýnist mér að Ólafur Ragnar
hafi gert Alþýðubandalagið að
meiri forsjárhyggjuflokki en það
áður var og í raun og veru
þrengt flokkinn, gerthann að
hrokafullum forsjárhyggju- og
valdbeitingarflokki“
Steingríms kom því aldrei í verk og í maí í
fyrra gerðum við samkomulag um þetta. Það
hafði ekki staðið nema í nokkra daga þegar
Framsóknarflokkurinn gerði kröfu um að
það yrði tekið til baka að því er varðaði
innlán. Þetta er gott dæmi um gjána milli
orða og athafna á þeim bæ.
Telur formaður Sjálfstæðisflokksins að ís-
lendingar eigi að ganga í Evrópubandalagið?
— Það er ekki dagskrárefni að mínu mati.
Við eigum að einbeita okkur að hagstæðum
fríverslunarsamningum við Bandaríkin og
Evrópubandalagið. Við eigum að taka þátt í
samstarfi Evrópubandalagsríkja á ýmsum
sviðum; efnhagslífi, sviði mennta, menning-
ar og vísinda og umhverfismálum. Við meg-
um ekki verða utangarðs í Evrópu en það
vantar skýra stefnumótun af íslands hálfu og
brotthvarf frá fyrirvarapólitík ríkisstjórnar-
innar gagnvart Evrópu og efnhagssamvinnu
Norðurlandanna, sagði Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæðisflokksins að lokum.
Óskar Guðmundsson
15