Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 52

Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 52
HEILBRIGÐISMÁL sín sagði hann m.a.: „Verk mín eru ekki sjálfsævisöguleg , en samt er tónn þeirrra nátengdur barnæsku minni“. Um mynd sína „Háttatími" segir Fischl að hún tengist minn- ingunni um það þegar allt var að fara til andskotans. „Ég býst við að gera megi ráð fyrir að strákur- inn sé ég, og skömm hans, dapur- leiki og ráðleysi sé líka frá mér komið. Superman náttföt litla stráksins snúa öfugt, svo það er einsog horft sé í spegil. Ég málaði konuna standandi á glerborði á háum hælum til að sýna við- kvæmni og hættu. Maðurinn hef- ur aðeins annan handlegginn vegna þess að ég vildi ná fram getuleysi." Að eigin sögn gerði Fischl sér ekki grein fyrir hversu sorgmæddur hann var fyrr en móðir hans dó í bílslysi árið 1970 þar sem áfengi kom við sögu. „Að eiga drykkjusjúka foreldra leiðir til þess að maður lítur á þetta sem sitt eigið vandamál", segir hann. „Sjálfum leið mér eins og mér hefði mistekist að bjarga móður ÞAÐ ER VANDAMÁL Á HEIMILINU í bókinni „Uppkomin börn alkóhólista,11 talar Janet Geringer Woititz um eina 13 þætti sem flest börn áfengissjúklinga finna fyrir aö einhverju leyti. Þessir þættir geta skapað vandamál sem hrjá fólk alla ævi, segir hún. Uppkomin börn alkóhólista. * giska á hvað sé eðlilegt. * eiga erfitt með að halda sig við lausn verkefna frá upphafi til enda. * Ijúga þegar jafnauðvelt væri að segja satt. * dæma sig sjálf miskunn- arlaust. * eiga erfitt með að skemmta sér. * taka sig mjög alvarlega. * eiga erfitt með náin sam- skipti. * bregðast á öfgafullan hátt við breytingum sem þau hafa enga stjórn á. * eru stöðugt að sækjast eftir hrósi og viðurkenn- ingu. * finnst þau vera öðruvísi en annað fólk. * eru annaðhvort fram úr hófi ábyrg eða óábyrg. * eru mjög trygglynd, jafn- vel þótt augljóst sé að traust þeirra sé ekki verð- skuldað. * lokast inni í ákveðnu hegðunarmynstri án þess að íhuga fyrir alvöru aðrar leiðir eða hugsanlegar af- leiðingar. hefðu gert henni mögulegt að sjá veruleikann í nýju ljósi og þar með kleift að öðlast sjálfsvirð- ingu. Á öðrum fundi sagðist Car- olyn nokkur hafa kvartað við lækninn sinn yfir þunglyndi. „Hann spurði mig hvort annað hvort foreldra minna væri áfengis- sjúklingur, — þetta var gríðarlegt áfall fyrir mig“, sagði hún. og má líka vera það. Læknastéttin á enn langt í land með að gera sitt til að draga úr áhrifum áfengissýkinnar, því að bandarískir læknastúdent- ar fá í mesta lagi tíu kennslustund- ir til að læra um þær hörmungar sem drepa árlega um 100 þúsund manns í Bandaríkjunum einum. Afneitunin og fölsk mannalæti Titillinn á hinni sérstæðu bók Claudiu Black „Pað kemur ekkert fyrir mig“ endur- speglar hina dæmigerðu blöndu af afneitun og fölskum mannalátum sem einkennir þá sem háðir eru þörfum annarra. í henni legg- ur hún áherslu á að börn frá ofdrykkjuheim- ilum komist aldrei í kynni við umhverfi sem sé mótsagnalaust og í föstum skorðum, — það sem þau hafa mesta þörf fyrir. Einnig talar hún urn að þessi börn takist ekki að tileinka sér venjubundin „unglingahlutverk“ og festist í hlutverkum á borð við að vera „hinn ábyrgðarfulli“ og „aðlögunarmeistar- inn“. Hin einstæða aðvörun Black er sú, að börn sem lifa af áfengissýki foreldra sinna, með þrautseigju og mikilli sjálfsbjargarviðleitni, verða oft fyrir tilfinningalegu og sálarlegu tjóni seinna meir. Pau eru einnig líkleg til að verða áfengissjúklingar, segir hún. „Áfengi gerir þau nefnilega frjálslegri því að það er róandi, losar um hömlur og gerir þeim kleift að slaka á. Þegar þau drekka taka þau sig sjálf ekki eins alvarlega. „Þó svo að þessi áhrif komi fram hjá öllum sem drekka áfengi", segir Black, „þá blasir sú dapurlega staðreynd við að fyrir þá sem fastir eru í ánauð áfengissýkinnar er drykkja oftast nær sú leið sem farin er til að gera tilveruna létt- bærari“. En þessi fullyrðing Black á ekki fullkom- lega við rök að styðjast, því að komin er fram hreyfing þar sem starfið einkennist af glað- legum fundum uppkominna barna áfengis- sjúklinga þar sem áfengi er ekki haft um hönd. Á hundruðum COA funda talar fólk saman og hlustar hvert á annað, grætur, hlær og byggir sig upp, eða „hleður rafgeymana“, einsog Ken Gill orðaði það. „Þetta kom í veg fyrir að ég yrði áfengissjúklingur", sagði kona ein að nafni Heather á samkomu fyrir skömmu sem haldin var í hverfi efnafólks í San Francisco. “Allt var mér að kenna vegna þess að ég var elst. Mér tókst aldrei að gera foreldrum mínum til hæfis. Ef ég útbjó t.d. morgunverð handa þeim og færði þeim tvö egg, annað hrært og hitt spælt, þá hafði ég alltaf hrært vitlaust egg“. Á samkomunni var kollum kinkað til samþykkis. Hver önnur en börn alkóhólista geta sett sig í spor þeirra sem reyna að gera áfengissjúkum foreldrum sínum til geðs? „Að tala og hlusta: Þannig lærðum við að glíma við ofdrykkju", segja uppkomin börn áfengissjúklinga. Og þrátt fyrir að þetta hljómi barnalega, er ekki rétt að afneita því. Þetta er besta leiðin til að ráða bót á, ekki bara drykkjunni heldur líka öllum þeim einkennum sem við köllum alkóhólisma. Á COA—fundi sem haldinn var nýlega í Boston tók kona ein að nafni Nina til máls og sagði að hún hefði reynt allt fram til þessa að breiða yfir þá staðreynd að foreldrar hennar væru áfengissjúklingar. Þannig hefði hún reynt að telja sjálfri sér, og sínum nánustu, trú um að allt væri í himnalagi og sér liði vel. Hún sagði að COA fundir og bókmenntir Börn ofurseld stöðugum kvíða I Bandaríkjunum er það mikl- um erfiðleikum bundið að hjálpa þeim 7 milljónum barna áfengis- sjúklinga sem eru undir 18 ára aldri, því að afneitun foreldranna á þeim sálrænu vandamálum sem drykkju þeirra fylgja, leiðir til þess að börnin komast ekki í nauðsynlega meðferð. Börn sem aldrei vita hvers þau eiga von þegar þau koma heim úr skólanum eru „ofurseld stöðugum kvíða“, segir Woititz. Að mati sumra barnalækna er hægt að greina tengsl milli kvíða hjá börnum, sem líða fyrir öryggisleysi af þessu tagi, og geðrænna streitueinkenna á borð við maga- sár, flökurleika, svefnleysi, meltingartrufl- anir og húðertingu. Migs Woodside frá COA-hreyfingunni segir að reyndur kennari geti á augabragði greint hvort barn komi frá fjölskyldu sem á við áfengisvandamál að stríða. „Stundum má greina þessi börn út frá klæðaburði eða því að þau eiga aldrei pen- inga fyrir mat“, segir hún. „Börn sem koma frá fjölskyldum sem eiga við áfengisvanda- mál að stríða bregðast öðruvísi við umræð- um um áfengisdrykkju og á þann hátt á kenn- ari auðvelt með að greina þau, en einnig geta myndir sem þau teikna gefið slíkar vísbend- ingar". Eftir tuttugu til þrjátíu ár fer þessum börn- um ef til vill að finnast þau misheppnuð eða sökkva í þunglyndi án þess að geta útskýrt það almennilega. Þangað til beita þau vaxlit- unum af afli. „Bjórdósir — ekki áfengis- flöskur — eru leiðarstef í verkum ungra barna sem líða fyrir áfengisvandamál for- eldra sinna. Endrunt og sinnum má sjá stóru spýtukarlana hella úr bjórdósum uppí litlu spýtukarlana", segir Woodside, döpur í bragði. Magnús A. Sigurðsson. Snarað og stytt úr Newsweek 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.