Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 38
ERLENT
Daður í stað þess að
sofa hjá
Eins og kunnugt er hefur „sex-
kynslóöin" reynt allt í þeim efnum
fram á daga hins hættulega kyn-
lífs. Sálfæöingar við háskólann í
Köln hafa nýverið fundiö út hvaö
hafi komið í staö hins líflega kyn-
lífs. Niðurstaðan kom mörgum á
óvart; gamaldags daður. í ýtar-
legum viðtölum kom í Ijós að mik-
ill meirihluti þátttakenda í könn-
uninni tók daður, líkamlega
snertingu og kynlífsdraumóra
fram yfir gjörninginn sjálfan — að
elskast. Barbara Contzen sem
tók þátt í þessum sálfræðiviðtöl-
um sagði: „í daðrinu hleypum við
lausum erótískum tilfinningum
án þess að þurfa að taka óþægi-
legum afleiðingum". Meira að
segja nauðaómerkileg hvunnda-
gsverk urðu skemmtileg, sögðu
þátttakendur í þessari könnun,
með því að „leika sér að eldinum,
sem ekki mátti breiðast út“.
Þannig kom í Ijós að daðrað var í
strætisvögnum, lestum, bað-
stöðum og líkamsræktarstöðv-
um. Til þess var tekið að það fólk
sem var í hamingjusamri sam-
búð stundaði ekki síður en annað
fólk þetta hvunndagsdaður af
miklum krafti. En þeir sem ætl-
uðu hins vegar að ná sér í maka
með þessum hætti lukkaðist það
ekki — því fyrirhöfnin við að vera
fyndin(n) og skemmtileg(ur) lok-
aði fyrir árangur...
Þrúgur reiðinnar
Bandaríski Ijósmyndarinn Hoce
Bristol áttræður að aldri sagði
nýverið frá því hvernig hann
hafði léð John Steinbeck hug-
myndina að bókinni „Þrúgur reið-
innar“. Horace ætlaði sér að
setja saman Ijósmyndabók um
hina fátæku bændur í Oklahoma
sem unnu sem farandverka-
menn á ekrunum í Suður-Kalif-
orníu við ömurlegar aðstæður.
Hann fékk þá Steinbeck, sem var
óþekktur rithöfundur í þann tíð, til
að skrifa textann við hina áform-
uðu Ijósmyndabók. Um sjö eða
átta helgar óku þeir tveir saman
og heimsóttu tjaldbúðir faran-
dverkamannanna. Eftir um eitt
þúsund myndatökur gekk Stein-
beck úr skaftinu og sagði við fé-
laga sinn: „Mér þykir það leitt, en
sagan er of sterk fyrir einhverja
Ijósmyndabók. Ég ætla að skrifa
Horace og ein örfárra mynda
sem til eru eftir ferðir þeirra
Steinbecks.
skáldsögu um þetta“. Og það var
Þrúgur reiðinnar. Horace Bristol
varð miður sín og í reiði sinni og
þunglyndiskasti brenndi hann
flestar myndirnar. Hann er Stein-
beck enn sárgramur vegna þess
að hans er ekki getið sem hug-
myndasmiðs í bókinni. „En“ segir
Horace Bristol „Þrúgur reiðinnar
er bók sem varð að vera til“...
Ron Perlman í hlutverki sínu ásamt hinni 28 ára gömlu Lindu
Hamilton, sem er aðalmótleikari hans í þáttunum um Vincent.
Vildi leika Hamlet
Bandaríski leikarinn Ron Perlm-
an hefur unnið mikla leiksigra í
sjónvarpsþáttunum „Fríða og
dýrið" í hlutverki Vincents. Vin-
sældir þáttanna í mörgum lönd-
um heims og sérstaklega þessa
leikara hafa víða verið umfjöllun-
arefni — „hann heillar konur,
jafnvel þær sem eru með dokt-
orsgráðu“. Talað er um óvenju-
lega geislun persónuleikans, að
hann fylli tómarúm í hjarta ungra
stúlkna. Engu að síður er sagt að
Perlmann eigi ekki sjálfum sér
þessar vinsældir að þakka, held-
ur útbúnaði og útfærslu förðun-
armeistara, sem þurfa fjóra
klukkutíma til að útbúa leikarann
fyrir hvern þátt. „Ef til vill hljómar
það asnalega, en ég vildi alltaf
leika Hamlet", segir Perlman
sem er orðinn fastur í hlutverki
skepnunnar...
Bjórkóngur
í tónlist
Nú hefur Alfred Henry Heineken
hinn hollenski 65 ára gamli bjór-
kóngur komist yfir áfallið eftir
mannránið sem hann varð fyrir.
Hann hyggst í framtíðinni helga
sig áhugamáli, sem hingað til
hefur setið á hakanum — tóns-
míðum. Hann hefur sett fyrstu af-
urð sína á markað en það eru 12
lög á geisladiski sem sungin eru
af kanadískum söngvara, Kenn-
edy Colman að nafni. Frank Sin-
atra, sem löngum hefur verið
sakaður um tengsl við Mafíuna,
hefur verið bundinn Heineken
vináttuböndum í 35 ár, mun hafa
aðstoðað við gerð geisladisks-
ins...
Ráðherra
fauk
Fyrsti ráðherrann sem orðið hef-
ur að víkja vegna tímaritaumfjöll-
unar í Sovétríkjunum er Nikolai
Wassiljew 72 ára, sem gengdi
embætti virkjanamálaráðherra.
Hið kaldhæðna tímarit Krokodil
birti mynd af ráðherranum á for-
síðu í rústum á byggingasvæði
og harkaleg gagnrýni fylgdi.
Stuttu eftir birtinguna var Wass-
iljew, sem hafði verið í 23 ár í
aðalstjórn flokkins, settur á eftir-
laun...
Ron Perlman eins og hann lítur
út í raunveruleikannum.
38