Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 29

Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 29
ERLENT Ríkisstjórn Thatchers fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir. stefna, trotskýistar og aðrir „herskáir" kommúnistar voru reknir úr flokknum og síðast en ekki síst voru Neil Kinnock og Roy Hattersley, sá fyrri hægfara vinstrimaður og hinn síðari til hægri í flokknum, kosnir til formanns og varaformanns fljótlega eftir kosningar 1983. Eftir kosningarnar 1987 hefur enn á ný hafist átakanleg sjálfsskoðun innan Verka- mannaflokksins og knýja sterk öfl á um rót- tæka endurskoðun á stefnu, skipulagi og starfsháttum hans. Nú þegar eru hafnar breytingar á skipulagi og starfi flokksins sem miða að því að gera hann lýðræðislegri og skilvirkari. Einn liður í þessari þróun er notkun nýjustu tölvu- og upplýsingatækni til að ná betur til almennings og virkja óbreytta flokksmenn, annar er að fjölga meðlimum stórlega. En mesta athygli hafa vakið nýjar reglur um val þingmanna sem miða að því að draga úr áhrifum kjördæmisráða, og um val fulltrúa á landsfund. Hingað til hafa verka- lýðsfélög farið með þorra atkvæða á honum, en nú stendur til að draga úr valdi þeirra og fá flokksmönnum hverjum og einum stærri atkvæðahlut. Það eru einkum hægri menn frá Norður- Englandi og Skotlandi sem gangast fyrir rót- tækri stefnubreytingu. Þeir segja að flokkur- inn þurfi að losna við þá ímynd að hann sé málsvari „þröngra“ stéttarhagsmuna. Petta merkir að draga verður úr tengslum við verkalýðshreyfinguna, sem hefur sterk ítök í flokknum, skírskota þarf til stærri hluta þjóðarinnar og gjóa menn augunum aðallega til velmegandi millistéttarfólks, og loks þarf að draga úr stórfelldum þjóðnýtingaráform- um, sem boðuð eru í stefnuskránni. Nú orðið hefur forystusveitin sterk tök á flokknum. Með þyrnum stráðan kosninga- feril að baki er hún tilbúin að ganga langt í breytingaátt, en verður að sýna gætni og taka tillit til ólíkra hreyfinga og skoðanahópa. A landsfundi flokksins í Blackpool í fyrra fékk forystan samþykkta nýja stefnuskrá þar sem horfið er frá hefðbundnum þjóðnýtingar- hugmyndum og tekin af öll tvímæli um að flokkurinn er fylgjandi blönduðu hagkerfi. En jafnframt er ítrekað að nauðsynlegt sé að samfélagið ráði yfir mikilvægri efnahags- starfsemi þar sem markaðurinn bregst eða leiðir til óviðunandi ójafnaðar. Margvísleg félagsleg rekstrarform koma til greina, þar á meðal rekstur sveitarfélaga, samvinnurekst- ur, hlutafjáreign starfsmanna og bein hlut- taka ríkisins. A hinn bóginn tókst forystu flokksins ekki að breyta stefnunni í varnar- málum sem gerir ráð fyrir einhliða afvopnun Bretlands. Mestur mótblástur gegn þessum breyting- um hefur komið frá vinstri arminum sem telur að verið sé að hverfa frá sósíalískri grundvallarstefnu flokksins. Þeirra á meðal eru áhrifamiklir verkalýðsforingjar á borð við Arthur Scargill, Tony Bcnn, John Prescott og Eric Heffer sem buðu sig fram gegn formanni og varaformanni flokksins í fyrra til þess fyrst og fremst að mótmæla hægritilhneigingum forystunnar. En vinstri- armurinn má muna sinn fífil fegurri. Kinn- ock var endurkjörinn með 89% akvæða en Tony Benn fékk 11% í formannskjöri, og Hattersley fékk 67% atkvæða, en Prescott 23% og Heffer 10% í varaformannskjöri. Of einfalt er þó að stilla málinu þannig upp að breytingamenn séu einfaldlega hægrisinnar sem vilji draga flokkinn lengra inn að miðju stjórnmálanna. Krafan um endurnýjun tekur til miklu fleiri málaflokka en þeirra sem venjulega skipta mönnum í hægri- og vinstrisinna. Má þar nefna um- hverfismál, kynjajafnrétti, neytendamál, kynþáttamál, mannréttindamál, stjórnskip- un og kosningalöggjöf. Fólk með margvísleg viðhorf hefur sameinast um að endurmeta flokksstefnuna með sérstöku tilliti til þeirra þjóðfé- lagsbreytinga sem hafa orðið á undanförnum árum og áhrif hafa haft á pólitískar væntingar og viðhorf manna. En það sem um- fram allt knýr þetta fólk áfram er þó sú sannfæring að án end- urskoðunar á stefnu og starfs- háttum eigi flokkurinn enga möguleika á að koma í veg fyrir fjórða sigur íhalds- flokksins í röð. Guðmundur um í flokknum á árunum 1979-1982. Hann framfylgdi róttækri efnahagsstefnu sem varð til þess að fæla marga kjósendur frá. En það voru ekki bara efnahagsmál á borð við þjóð- nýtingu, völd verkalýðshreyfingarinnar og vöxt velferðarkerfisins sem ágreiningi ollu, heldur mörg mál af öðrum toga, afstaðan til lávarðadeildarinnar, varnarmál, erlend þró- unaraðstoð og starfshættir flokksins sjálfs. Árið 1981 þoldi hægri armurinn ekki leng- ur við og stór hópur gekk úr flokknum undir forystu Shirley Williams, David Owens, Williani Rodgers og Roy Jenkins. Þau stofn- uðu Jafnaðarmannaflokkinn, Social Dem- ocratic Party og gerðu kosningabandalag við Frjálslynda flokkinn í kosningunum 1983 með þeim árangri að það hlaut samanlagt fjórðung atkvæða. Verkamannaflokkurinn beið hins vegar afliroð, fékk aðeins tæp 28% atkvæða, og verður að fara aftur til kosning- anna 1918 til að finna jafn lágt kosninga- hlutfall. Sagan endurtók sig í stórum drátt- um í kosningunum 1987. Þótt Verkamanna- flokkurinn næði sér nokkuð á strik með 31% atkvæða, var hann órafjarri því að sigra íhaldsflokkinn. Kosningasamstarf frjáls- lyndra og jafnaðarmanna leiddi hins vegar til samruna flokkanna tveggja 1988, en þó tókst ekki betur til en svo að David Owen og lítill minnihluti Jafnaðarmannaflokksins neituðu að ganga í eina sæng með frjálslyndum og ákváðu að halda áfram uppi merki Jafnaðar- mannaflokksins. Kosningaósigurinn 1987 er ekki síst at- hyglisverður vegna þess að þá var Verka- mannaflokkurinn samhentari en hann hafði lengi verið og rak fremur hófsama vinstri- stefnu. En kröftug hægristefna og vel smurð kosningavél íhaldsflokksins svipti hann frumkvæði í hugmyndabaráttunni eins og endranær á þessum áratug. Flokkurinn var í varnarstöðu, mestu púðri eytt á síðustu at- lögu íhaldsmanna, gamalgrónum hugmynd- um flíkað í stað þess að trúverðug framtíðar- stefna væri mótuð og sett einarðlega fram. Hann tók málstað þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á stefnu ríkisstjórnarinnar, atvinnu- leysingja, fátæks fólks, húsnæðisleysingja, en gaf um leið minni gaum þeim stóra hópi fólks sem má sín betur og hefur jafnvel haft hag af þjóðfélagsbreytingum undanfarinna ára. Flokkurinn átti erfitt með að þvo af sér þann stimpil sem andstæðingar flokks- ins komu á hann að hér færi flokkur sem væri fastur í fortíðinni. Ósigrarnir tveir, 1983 og 1987, hafa leitt til mikillar uppstokkunar innan Verkamannaflokksins. Eftir ófa- rirnar 1983 var tekin upp hófsam- ari og sveigjanlegri efnahags- 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.