Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 69
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
Fjöldi greina um mál fjórmenningana í dagblöðum og skipting
þeirra eftir efnistökum í febrúar 1976.
Hlutlaus umfjöllun O Neikvæð umfjöllun | Jákvæð umfjöllun
ríkjunum en blaðamenn, lögmenn og dóm-
arar hafa komið sér saman um það hvernig
upplýsingar skuli veittar um sakborninga og
mál þeirra.
En eiga erlendar siðareglur við í íslensku
umhverfi? Því er til að svara að reglur þessar
eru almenns eðlis. Þær byggja í raun á þeirri
grundvallarforsendu réttarríkisins að sér-
hver maður skuli álitinn saklaus uns sekt
hans er sönnuð. Pannig mundu skoðanir sem
birtust í fjölmiðlum um sekt eða sakleysi sak-
borninga áður en dómur er kveðinn upp í
máli þeirra teljast hlutdrægar.
Þá var greinunum gefið vægi eftir því hvar
í blaðinu þær birtust og hversu áberandi þær
voru. Það segir sig sjálft að forsíðufrétt með
uppsláttarfyrirsögn og mynd vegur þyngra
en lítil grein falin inni í miðju blaði.
Niðurstöður
Niðurstöður þessarar könnunar voru þær
að af 357 greinum um Geirfinnsmálið á
áðurnefndum tíma reyndist 51% greinanna
vera hlutlausar í garð fjórmenninganna,
33% voru neikvæðar í þeirra garð og 16%
jákvæðar.
Þegar vægi greinanna var skoðað voru nið-
urstöður svipaðar nema hvað vægi hlutlausu
greinanna minnkaði í samanburði við fjölda
þeirra, vægi var 47% en fjöldi greinanna 51%
eins og áður sagði. Vægi neikvæðra greina
jókst að sama skapi. Það var 37% en greina-
fjöldinn var 33%. Vægi jákvæðra skrifa var
það sama eða 16%.
Umfjöllunin var langmest í febrúar um
það leyti sem fjórmenningarnir voru hand-
teknir. Hún minnkaði jafnt og þétt fram í
maí og jókst á nýjan leik um það leyti sem
fjórmenningunum var sleppt úr gæsluvarð-
haldinu.
Þegar aðalflokkarnir þrír, neikvæðar, já-
kvæðar og hlutlausar greinar voru bornir
saman kom í ljós að neikvæðu skrifin voru
langmest í febrúar. í þeim mánuði birtust 112
greinar. 54% þeirra voru neikvæðar, 41%
voru hlutlausar en aðeins 5% jákvæðar. í
maí þegar þeir voru látnir lausir snerist dæm-
ið að nokkru leyti við, nema hvað dagblöðin
gættu þá meira hlutleysis í skrifum sínum en
áður. Þá voru 48% greinanna hlutlausar,
44% jákvæðar en aðeins 8% neikvæðar í
garð fjórmenninganna.
Þegar vægið var skoðað reyndust nei-
kvæðu skrifin í febrúar vega þyngra en tala
greinanna gaf til kynna. Þetta snerist svo við
69