Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 27

Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 27
ERLENT IVIarek Kosalowski: Umhverfisverndar- sinnar virðast njóta mikilla vinsælda meðal yngra fólks. Mynd: Árni Snævarr. Frelsi segir að Samstöðuforystan hafi ekki fylgst með tímanum og ekki gert sér grein fyrir hversu heitt umhverfismál brenni á fólki. Gebert telur fleiri ástæður vera fyrir því að Samstöðu takist illa að ná hljómgrunni með- al unga fólksins. „Walesa er dæmigerð föð- urímynd, strangur, umvöndunarsamur og ævinlega með klerkana á hælunum.“ Gebert ætlar og vitnar til skoðanakannana að Sam- staða njóti stuðnings fjórðungs kjósenda áður en kosningabaráttan sé komin á skrið, sem er álíka mikið og stjórnin. Slagurinn standi um helmings kjósenda. Hvað gerist næst? Hvernig sem kosningarnar í júní fara er ljóst að á næstu fjórum árum munu fylking- arnar stríðandi búa sig undir komandi átök. Samstaða telur að hringborðssamkomulagið sé aðeins fyrsta skrefið í lýðræðisátt en ekki eru allir sammála forystunni um að baráttan eigi að fara fram innan þings. „Stjórnvöld gengu að samningaborðinu nauðug viljug, vegna þess að verkföllin í fyrra sumar sýndu, að hún hafði engan stuðning til að hrinda efnahagsstefnu sinni í framkvæmd“, segir vinstri maðurinn Konstanty Gebert. „Ef Samstöðu tekst að virkja fjöldann í starfsemi sinni er von til þess að gengið verði lengra. Það skiptir meira máli en fjöldi þingmanna á valdalitlu þingi. Ef ekki kemur til þrýstingur frá samfélaginu munu kommúnistar smátt og smátt kasta hringsborðssamkomulaginu fyrir róða“. Ekki er ljóst hvað leiðtogar kommúnista ætla sér. Alexander Kwasniewski einn helsti samningamaður þeirra við hringborðið( sjá rammagrein) segir þróun í átt til lýðræðis hafna, en á næstu mánuðum og árum kemur í ljós hvort það orð þýðir það sama í munni pólskra kommúnista og andstæðinga þeirra. Baráttan um skilgreiningar er hafin. Árni Snævarr í Varsjá Hringborðið á sér öfluga andstæðinga Alexander Kwasniewski, annar helsti samn- ingamaður kommúnista við hringborðið og rís- andi stjarna í pólskri pólitík. Mynd: Árni Snæv- arr. Segir Alexander Kwasniewski, ráðherra ípólsku stjórninni „Þróun í átt til lýðræðis er hafin. Hvernig framhaldið verður ræðst vitaskuld af aðstæðuni en ég er bjart- sýnn“, segir Alexander Kwasniewski, ráðherra í pólsku stjórninni. Kwasniewski er talinn framtíðar- maður í pólskum stjórnmálum. Hann er aðeins 38 ára gamall, fyrrum rit- stjóri og er spáð miklum frama, hugs- anlega embætti forsætisráðherra. Hann tekur á móti mér í stjórnarráðs- byggingunni í Varsjá. Hann er snaggaralegur í hreyfingum, öruggur með sig og þótt hann mæli á pólsku er auðséð að enskukunnátta hans er ág- æt. Að minnsta kosti leiðréttir hann túlkinn. Fyrsta spurningin var hvort þróun í átt til fulltrúalýðræðis með framboði stjórnmálaflokka væri haf- in. Kwasniewski taldi svo vera en bætti svo við: „Ég hlýt þó að benda á, að það eru ljón á veginum. Fyrst og fremst eru það erfiðar efnahagsað- stæður. Einnig eru öflugir hópar bæði innan Kommúnistaflokksins og Sam- stöðu sem vilja hringborðssamkomulagið feigt. Þessir hópar kunna að blása til ófriðar. Ég tel ekki sjálfgefið að flokkurinn glati völdum sínum í kjölfar frjálsra kosninga. Kommúnistaflokkurinn hefur tekið sögu- lega ákvörðun. Hann hefur fórnað sjálf- tryggðu forystuhlutverki sínu og horfst í augu við samkeppni í stjórnmálum. Við tók- um þá áhættu að tapa en við höfum þó alla möguleika á að sigra. Við munum nota næstu fjögur ár til að styrkja okkur pólitískt og uppskera eins og við sáum“. Eftir 45 ára kommúnistastjórn eru lífskjör með þeim verstu í Evrópu, samt er pólska ríkið skuldum hlaðið, á barmi gjaldþrots... Kwasniewski byrstir sig og grípur fram í: „Finnst þér þú vera í gjaldþrota landi þegar þú heimsækir vini þína blaðamennina", segir ráðherrann og skírskotar til kunningsskapar míns við pólskan blaðamann. „Lífskjörin eru ekki þau sömu og í Vestur-Þýskalandi, en þau eru ekki verri en víða í Suður-Evrópu. Ég held að stjórnmálakerfi okkar hafi enn mikla möguleika til að þróast. Vinur minn sem er ekki hallur undir okkur kommúnista er nýkominn frá Bandaríkjunum og var ekki hrifinn af því að frétta af þremur milljónum heimilisleysingja. Samt talar enginn um að Bandaríkin séu gjaldþrota. Lágmarks lífs- kjör í Póllandi eru ekki slæm þótt við getum gert betur. Þú ættir að vara þig á blaðamönn- unum. Ég vildi gjarnan geta setið á hljóð- skrafi með þeim yfir vodkaglasi í notalegum hlýjum íbúðum og talað um gjaldþrot. En svartagallsrausið í þeim er slíkt, að stundum velti ég því fyrir mér hvers vegna þeir fara ekki og hengja sig.“ Eftir þennan lestur setur mig hljóðan. Ég spyr svo Kwasniewski hvað sé eftir af komm- únismanum eftir þær umbætur sem nú hafi verið ákveðnar. „Þetta er erfið spurning. Mörg af þeim grundvallaratriðum sem farið var eftir á sjötta og sjöunda áratugnum eiga ekki Iengur við. Horfið verður frá miðstýringu efnahags- lífsins og einveldi flokksins í félagasamtök- um. Við höldum hins vegar fast í ráðandi hlutverk ríkisgeirans og ekki síður í þróaða félagsmálapólitík. Við innleiðum hins vegar lausnir frá Vesturlöndum. Vestrænt auð- magnskerfi hefur hins vegar líka þróast frá byrjun aldarinnar og tekið upp félagslegar lausnir jafnaðarstefnunnar. „Bæði kerfin hafa þróast á pragmatískan hátt. Ég held að sagnfræðingar 21. aldarinnar muni flokka okkar tíma sem flótta frá hugmyndafræði", sagði Kwasniewski að lokum. ás 27

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.