Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 58

Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 58
UPPELDISMÁL „Áhrif uppeldisfræða og skyldra fræðigreina á hagnýtt skólastarf og uppeldi í landinu er býsna sundurleitt og í heild sennilega yfirborðskennt og lítið“, segir Jónas Páls- son. Þjóðaruppeldi „Uppeldisfræði er ávallt óaðskiljanlegur hluti af lífsháttum hverrar þjóðar, menningu hennar og gildum“ — sagði Jónas. Þessu væri nokkuð öðruvísi farið með sálarfræði, sem fengist meira við almenna þætti í atferli manna. Brýnasta verkefni skólamanna, að mati Jónasar, er að endurtúlka séríslenska lífsreynslu og atvinnuhætti innan ramma sérfræðilegrar og alþjóðlegrar þekkingar í uppeldisfræði, félagsfræði ogsálarfræði. Síð- an þarf að beita þeim niðurstöðum á skipu- legan hátt við uppeldi þjóðarinnar og skóla- starf í landinu. Jónas sagði að forsenda þessa væri að stór- efla rannsóknir á uppeldi, námi, kennslu og skólastarfi hér á landi. Hann sagði að ekki þyrfti að fara í grafgötur um það að fræði- störf og rannsóknir á þessu sviði yrðu því aðeins unnin að marki að stofnað yrði til framhaldsnáms í uppeldisgreinum og kennslufræði. Hjá honum kom fram að veru- legar rannsóknir og kannanir hefðu á undan- förnum árum verið unnar af kennurum og nemendum Kennaraháskólans á þessu sviði en það leiddi af eðli málsins að fræðistörfum, sem tengjast grunnnámi kennaraefna við þessar stofnanir, hlyti að verða nokkur tak- mörk sett m.a. vegna þess að námið beindist eðlilega og óhjákvæmilega að hagnýtri starfsþjálfun og því gæfist minni tími til grunnrannsókna. Trúboð í uppeldisfræðum Jónas Pálsson taldi sig ekki sérlega dóm- bæran á áhrif sálarfræði og uppeldisfræði á skólamál hérlendis síðastliðin 20 ár. Til þess væri hann of nátengdur ýmsu sem hefði verið að gerast og oftast mjög upptekinn við skóla- stjórn og hversdagslegt vafstur. „Áhrif upp- eldisfræða og skyldra fræðigreina á hagnýtt skólastarf og uppeldi í landinu eru býsna sundurleit og í heild sennilega yfirborðs- kennd og lítil,“ sagði Jónas. — Til þess lægju auðvitað ýmsar ástæður og eðlilegar. Ein væri það almenna tómlæti almennings og stjórnvalda gagnvart sérfræðilegri þekkingu á þessum geira — og stundum jaðraði við hreina hleypidóma og jafnvel fjandskap. Jónas benti á að umræðan hefði of mikið verið á meðal fræðinga en kennarar sjálfir hefðu tekið of lítinn þátt í henni. Á þessu væri þó að verða greinileg breyting. Hann taldi að stofnun Kennaraháskólans á sínum tíma hefði m.a. skapað forsendur þessarar þróunar. Þegar hann var spurður hvaða áhrif Kennaraháskólinn hefði haft svaraði hann því hins vegar til að það væri ávallt erfitt að segja til um slíkt því að vissulega hlytu að hafa orðið einhverjar breytingar án tilkomu hans. En stofnun skólans væri þó áfangi á þeirri braut að viðurkenna gildi faglegra og fræðilegra starfa í þágu uppeldis- og skóla- mála. Þegar Jónas var inntur eftir áhrifum hug- mynda af uppeldisfræðilegum meiði á skóla- starf, svo sem hópkennslu, einstaklings- kennslu, blöndun í bekki og öðru í þeim dúr, þá svaraði hann því til að hreyfingar af þessu tagi hefðu of oft snúist um aukaatriði og gjarnan hefði verið deilt um keisarans skegg. Skilyrði til umbóta væru að vísu mikilvæg en þó því aðeins að menn gleymdu ekki sjálfum kjarna málsins og hvert ferðinni væri heitið. Of oft hefðu menn, hann og aðrir, hlaupið af stað með hugmyndir, gjarnan erlendis frá, og reynt í krafti þeirra að frelsa mann og annan að hætti trúboða, án þess að huga nægilega að heildarmarkmiðum og sérís- lenskum lífsskilyrðum. Hugmyndirnar hefðu oftast verið ágætar í sjálfu sér en þeim hefði hætt til að einangrast vegna þess að samhengið við raunverulegt skólastarf var ófullnægjandi. Jónas taldi að enn bæri að sama brunni, — enn skorti á starfslegan und- irbúning kennara til að ummóta hugmynd- irnar og fræðilegan styrk skólastofnana til að veita þennan heimanbúnað og leggja mat á nýjungar. Stjórnmálaöfl og ábyrgð þeirra Jónas Pálsson fer ekki dult með óánægju sína með stöðu uppeldis- og skólamála í ís- lensku þjóðfélagi um þessar mundir. Að- spurður svaraði hann að ábyrgð stjórnmála- manna væri ótvíræð og mikil. „Sennilega hefur mikill meirihluti alþingismanna fram á þennan dag hvorki skilið né viðurkennt hlut- verk skólans í þjóðaruppeldinu við nútíma samfélagsaðstæður. Enn eimir eftir af þeim hugsunarhætti að skólar séu eins konar við- komustöðvar fyrir gáfuð ungmenni eða þá í vissum tilfellum góðgerðarstofnun sem sjái til þess að ekki sé farið illa með aumingja." Jónas sagði ennfremur að svo virtist sem allt- of stór hluti almennings og stjórnmálamanna skildi ekki enn að skólinn væri óhjákvæmi- legur grundvallarþáttur í þjóðaruppeldinu. Jónas sagði það vera staðreynd að nútíma- samfélag gæti ekki verið án dagvistunar og skóla. „Spurningin er einungis hvort menn vilja lélegar eða góðar og vandaðar uppeldis- og skólastofnanir," — sagði Jónas. Hann sagði áhuga sinn á skólum í félagspólitísku sam- hengi sprottinn af þeirri sannfæringu sinni að lélegir og óvandaðir skólar væru stórhættu- legir jafnt farsæld einstaklinga sem velferð samfélagsins. Hagsmunabarátta almennings Ekki vildi Jónas gera mikið upp á milli stjórnmálaflokka á íslandi í seinni tíð varð- andi afstöðuna til skóla- og menntamála. Vinstri menn bæru svipaða sök í þessu og aðrir. Að vísu ættu þeir heiðurinn af mjög svo framfarasinnaðri fræðslulöggjöf í ráð- herratíð Brynjólfs heitins Bjarnasonar og hefðu beitt sér fyrir mörgum jákvæðum breytingum síðan en samt mætti í þeirra röð- um heyra mjög fjandsamlegar raddir gagn- vart almenningsskólum og skólamenntun yfirleitt. Þessa gætti eða hefði a.m.k. gætt fyrir nokkrum árum, innan verkalýðshreyf- ingarinnar. Sumt af þeim viðhorfum jaðraði við hreina fordóma. „Því miður hafa forystu- menn í verkalýðshreyfingunni gert alltof lítið af því að ræða þátt uppeldis í skólastarfi í hagsmunabaráttu almennings." I framhaldi af þessu báru á góma áhrif vinstri manna í röðum skólamanna á þróun kennslu og skóla, einkum og sér í lagi fyrir um það bil áratug. Sjálfur sagðist Jónas hafa tilheyrt jaðri þessarar hreyfingar. Hann 58

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.