Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 39
MENNING
Spjallað við Þráin Betelsson
kvikmyndagerðarmann um
nýja kvikmynd hans og allífið
MAGNÚS -
nýr norðri
Þráinn Bertelsson er maður þekktur í ís-
lensku þjóðlífi. Ekki bara fyrir kvikmynda-
gerð heldur og ritstörf, útvarpsþætti, störf í
þágu menningar og lista. Þráinn lauk nýlega
við hljóðvinnslu á nýjustu kvikmynd sinni
„Magnúsi“ sem er orðinn nokkurskonar
„vopnlaus vestri“.
Með aðalhlutverkið í myndinni fer hinn
velþekkti Egill Ólafsson, en helstu samstarfs-
menn á bak við kvikmyndatökuvélina eru
Ari Kristinsson tökumaður og Geir Óttarr
Geirsson leikmyndasmiður.
Þjóðlíf skellti sér í heimsókn og hitti fyrir
mann sem líkar vel við Stanley Kubrick og
Monty Python, ásamt mörgu öðru. En gefum
Þráni orðið um Magnús:...
— ... menn bregðast misjafnlega við í lífs-
háska. En myndin byrjar í sömu andrá og
Magnús fær að vita að hann er sjálfur staddur
í lífsháska. Ég veit ekki hvort það er
skemmtilegt fyrir fólk að heyra fílósífu um
hvernig menn reyna að byggja upp svona
verk. Mér finnst sjálfum eins og þessi
mynd sé eins og ... ja, sé svona
„vopnlaus vestri“. Eða
„norðri“ sem gerist í nú-
tímanum og fjallar
um dramatíska
atburði eins og
vestrarnir eða
Islendingasög-
urnar eða
„norðrarnir"
sem Agúst og
Hrafn eru að
reyna að finna
upp. Nema hvað
þessi „norðri“ gerist árið
uðáttatíuogeitthvað og þá hafa borgar-
arnir flestir lagt niður vopn, nema kall-
Bóndinn á Heimsenda í vígahug. Jón
Sigurbjörnsson í hlutverki bóndans.
ar
búnir að ráða
sig í aðra vinnu. Mig langaði
reyndar til að vinna þessa
mynd á tiltölulega einfaldan
máta án allra stílfræðilegra
kollhnísa og án þess að dingla
kamerunni fram og aftur með
linsuna löðrandi í vaselíni —
án þess að draga athyglina að
umbúðunum. Mér fannst tær
stílbrögð hæfa þessari mynd.
Magnús fjallar fyrst og fremst
um fólk og mér finnst rétt að
reyna að nálgast persónurnar
mynd í kvikmyndasögunni. Þetta er líka al-
vörugefin gamanmynd eða alvarleg mynd
með húmor, gamansömu ívafi.
Eftir nám í Svíþjóð kemurðu heim og hef-
ur fengist við ýmislegt síðan. M.a. unnið hjá
Sjónvarpinu þar sem þú gerðir Snorra
Sturluson og svo liggja eftir þig kvikmynd-
irnar Jón Oddur og Jón Bjarni, Nýtt líf,
Dalalíf, Löggulíf og Skammdegi. Flestar
þessar myndir voru gerðar við þröngan kost,
en þú hefur sagst hafa eitthvað aðeins meira á
milli handanna núna?
— Já, það má ef til vill segja að þetta sé
fyrsta myndin þar sem ég hef bæði til hnífs og
skeiðar. Það vill segja að ég gat reynt að gera
mynd með einhverjum þeim stíleinkennum
eða frásagnarmáta sem mig langaði að beita,
andstætt öðrum myndum sem ég hef gert.
Þar hefur maður hefur verið að keppast
við að klára að taka upp myndina
áður en filman gengur til þurrð-
inn hann Ólafur gamli á Heimsenda, tengda-
faðir Magnúsar. Svo að þetta er svona
„nútímanorðri“ eða „vopnlaus vestri“ ef við
eigum að líma einhvern merkimiða á þessa