Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 70

Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 70
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL í maí, þá reyndust jákvæðu greinarnar vega þyngra en fjöldi þeirra gaf til kynna. Er hægt á grundvelli þessarar könnunar að álykta um þátt dagblaðanna í því að fjór- menningarnir voru handteknir? Því verður að svara neitandi varðandi þá þrjá sem voru handteknir 26. janúar þar sem ekki finnast nein skrif um þá vikurnar á und- an. Aftur á móti er ekki hægt að útiloka að hin áköfu og neikvæðu skrif í garð hinna svokölluðu Klúbbmanna hafi leitt til þess að Sigurbjörn Eiríksson var settur í gæsluvarð- hald í febrúarbyrjun. Um það verður þó ekk- ert fullyrt hér. Stjórnarandstöðublöðin andsnúin Hvað með einstök dagblöð? Ekki skrifuðu þau öll eins um málið? Voru ekki síðdegis- blöðin tvö sem þá voru á lífi verst í sínum skrifum? Síðdegisblöðin, Vísir og Dagblaðið skrif- uðu að sönnu mest um Geirfinnsmálið á þessu tímabili og þau voru bæði mjög nei- kvæð í febrúar. Hins vegar sneru þau alger- lega við blaðinu í maí og tóku þá mjög mál- stað fjórmenninganna. Það var eins og þau væru að rétta hina neikvæðu slagsíðu sem verið hafði á umfjöllun þeirra framan af ineð kúvendingu. Alþýðublaðið fjallar ítarlega um mál fjór- menninganna í upphafi gæsluvarðhaldsvistar þeirra og er þá næstum því eins neikvætt og síðdegisblöðin. Aftur á móti þegar fjór- menningunum var sleppt verður umfjöllunin jákvæðari, en þó snöggtum minni en síðdeg- isblaðanna. Slagsíðan er ekki leiðrétt nema að litlu leyti. Þjóðviljinn skrifar aldrei mikið um Geir- finnsmálið, a.m.k. ef miðað er við þrjú áðurnefnd blöð. Aftur á móti er það ein- kennandi hvað skrif þessa blaðs eru neikvæð í garð fjórmenninganna, eða 47% af öllum greinum. Tíminn skrifar blaða minnst um Geirfinns- málið. Það er kannski ekki undalegt ef sá pólitíski keimur sem málið fékk er skoðaður. Umfjöllunin er fyrst og síðast hlutlaus en lítt áberandi. Skrif Morgunblaðsins eru einna jöfnust þegar á allt tímabilið er litið og hlutlaus fréttamennska hvað mest áberandi af öllum dagblöðunum ef Tíminn er undanskilinn. Blaðið jafnar þó ekki reikningana eins og síðdegisblöðin gerðu; á heildina litið er því umfjöllunin frekar neikvæð. Svo virðist sem pólitísk hlið Geirfinns- málsins hafi haft nokkur áhrif á umfjöllun dagblaðanna. Þannig virðast stjórnarand- stöðublöðin á þessum tíma, Alþýðublaðið og Þjóðviljinn vera hvað neikvæðust í garð fjór- menninganna. Tíminn aftur á móti, blað dómsmálaráðherra, virðist halda sig næst þeirri hugsjón blaðamanna að gæta hlutleys- is í fréttaflutningi. Það var ekki fyrr en fengin var til landsins línur fóru að skýrast í Geirfinnsmálinnu. Sakleysi uns sekt er sönnuð Hversu vel eða illa stóð pressan sig þá í raun í þessu viðkvæma sakamáli? Það er erf- itt að gefa einfalt svar annað en að vísa í þær tölulegu upplýsingar sem þessi innihalds- greining leiddi í ljós. Ekki er til að rnynda 1 reynt að mæla hversu hlutdrægnin hafi verið : mikil í einstökum greinum, því að það hefði krafist flókinnar málfræði- og merkingar- fræðilegrar greiningar. Þessi grófa flokkun : gefur þó nokkrar vísbendingar, eins og áður 1 er getið, ekki síst þegar vægi greinanna er skoðað. Getur umfjöllun fjölmiðla um sakamál nokkurn tíma orðið fullkomlega hlutlaus? : Sennilega ekki. Fjölmiðlamenn gera óhjá- ' kvæmilega skyssur í erli dagsins, ekki síst vegna þröngra tímamarka sem þeim eru sett í vinnu. Hins vegar er það varla fyrir slysni ' þegar stór hluti greina er hlutdrægur. Tökum febrúar 1976 sem dæmi, þegar fjórmenning- V-Þýskur rannsóknarlögreglumaður að arnir voru eða höfðu nýlega verið úrskurð- aðir í gæsluvarðhald. Af 112 greinum sem fjölluðu um Geirfinnsmálið þennan mánuð var 61 grein, eða 54% allra skrifa um málið, neikvæð í garð fjórmenninganna. Slíkt gerist ekki óvart. Slíkt er heldur ekki hægt að sætta sig við í landi sem telur sig réttarríki. Af hverju gerðist þetta? Sú könnun sem hér var gerð gefur í sjálfu sér engin svör við slíkum spurningum. En nokkrar skýringar eru þó sennilegastar: 1. Blaðamennirnir voru illa undir það búnir að fjalla um flókið sakamál af því tagi sem Geirfinnsmálið var, einfaldlega vegna þess að slík mál eru sjaldgæf hér á landi. 2. Löggæslumenn og þeir sem rannsök- uðu Geirfinnsmálið virðast sömuleiðis hafa verið illa undirbúnir. Ennfremur virðist þeim hafa verið það óljóst hvaða upplýsingar skyldi birta fjölmiðlum. Það má kannski virða rannsóknarmönnum það til vorkunnar I 70

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.