Þjóðlíf - 01.06.1989, Side 31
ERLENT
Gro Harlem Brundtland forsætisraðherra Noregs og formaður Verkamannaflokksins.
Flokkurinn hefur verið að sækja í sig veðrið að undanförnu eftir hægri bylgjuna sem
reið yfir Evrópu í byrjun 8. áratugarins. Vegna sundrungar á hægri vængnum hefur
dregið úr fylgi borgaraflokkanna samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum.
fengið sínu framgengt og að Kristilegi þjóð-
arflokkurinn verði áfram sá flokkur sem ligg-
ur næst Hægri í norskum stjórnmálum.
Miðjuflokkurinn
Miðjuflokkurinn hét áður Bændaflokkur-
inn og er systurflokkur Framsóknarflokksins
á íslandi. í nýlegri skoðanakönnun kom
fram að þetta er sá flokkur sem norskum
kjósendum þykir reikulastur í stefnu sinni.
En í einu máli hefur flokkurinn skýra stefnu
og það er í andstöðu sinni við inngöngu Nor-
egs í EB. Líklega verður það aðalkosninga-
mál flokksins.
Vinstri
Á seinni hluta síðustu aldar og fram undir
1920 var Vinstri stærsti flokkurinn á vinstri
vængnum og þá að sjálfsögðu höfuðandstæð-
ingur Hægri. í kosningunum 1882 fékk flokk-
urinn tæp 63% atkvæða. Nú er öldin önnur
því flokkurinn á nú engan fulltrúa á Stór-
þinginu.
Arne Fjörtoft og liðsmenn hans gera sér
vonir um nýja uppsveiflu í komandi kosning-
um, þar sem flokkurinn hefur gert umhverf-
ismál að sínu aðalmáli.
Sósíalíski vinstriflokkurinn
Sósíalíski vinstriflokkurinn (SV) undir
forystu Erik Solholm getur gert sér vonir um
fylgisaukningu í haust. SV hefur alltaf verið
lítill flokkur og aldrei setið í ríkisstjórn. Fyrir
vikið hefur flokknum tekist að varðveita sitt
pólitíska hreinlyndi betur en mörgum öðr-
um, en nú hafa þær raddir heyrst sem vilja að
flokkurinn seilist til meiri áhrifa og bjóði
Verkamannaflokknum til stjórnarsamstarfs
ef þessir tveir flokkar ná meirihluta í kosn-
ingunum í haust. Þessar raddir voru hálf-
kæfðar á landsfundi flokksins fyrir skömmu
og undirtektir Verkamannaflokksins eru að
sama skapi dauflegar. Það eru líka litlar líkur
á að þessir flokkar auki fylgi sitt samanlagt í
kosningunum í haust.
Flokkurinn leggur mjög mikla áherslu á
umhverfisvernd og virðist standa þar sterkt
að vígi í samanburði við aðra flokka sem
vitaskuld segjast allir hafa mikinn áhuga á
umhverfismálum.
Kommar, konur og
græningjar
I Noregi eru tveir kommúnistaflokkar,
AKP og NKP. NKP hefur fylgt Moskvulín-
unni á meðan endurskoðunarsinnarnir hafa
verið í AKP. Samanlagt fengu þessir flokkar
innan við 1% í síðustu kosningum. Rautt
kosningabandalag, sem er útvíkkuð útgáfa
af AKP hefur hinsvegar tvo fulltrúa í borgar-
stjórn Osló og víðar í sveitarstjórnum hefur
þeim tekist að komast að.
Nú bendir flest til að þessum tveimur
flokkum takist að koma sér saman um kosn-
ingabandalag með græningjum og áhuga-
hópi um kvennalista. Enn er margt óljóst um
það hverjir sameinast undir regnhlífinni. Til
dæmis er ósennilegt að áhugakonur um
kvennalista geti notað þessa leið til að fjölga
konum á þingi og vandséð að þær komi til
með að styrkja framboðið mikið. Einnig er
óvíst hvað nýstofnaður flokkur Græningja
gerir.
Helsta von þessara regnhlífarsamtaka
heitir Jon Michelet, vinsæll maður með
skrautlega fortíð sem sjómaður, blaðamað-
ur, sakamálasagnahöfundur og kommúnisti.
Ætlunin er að hann verði fyrsti maður á
Oslóarlistanum en þegar þetta er skrifað er
alltof margt óljóst til að spá nokkru um hvort
þetta sameiginlega framboð verður að raun-
veruleika. Yngvi Kjartansson/Noregi
31