Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 17
INNLENT
í þessari töflu hefur löndunum veriö raðaö
eftir því hvaöa meðaleinkunn kjósendur
hvers flokks gáfu þeim. Rétt er að undir-
strika, aö oft er munurinn milli sæta, jafnvel
milli nokkurra sæta, ekki tölfræðilega mark-
tækur. Muninn á meðaltölunum sjálfum má
sjá í heildartöflunni.
hópanna á stjórnarháttum og þjóðskipulagi
Frakklands, Indlands og Tanzaníu er ekki
marktækur, eins og raunin var um Norður-
löndin fjögur.
Sé loks litið á hvaða þjóðir (fyrir utan ís-
lendinga) eru efst á blaði hjá kjósendum
hvers flokks kemur í ljós að Alþýðuflokks-
menn setja Norðmenn og Svía í fyrsta sæti.
Sama gildir um Framsóknarmenn, en þar
eru Norðmenn ofar. Sjálfstæðismenn setja
hins vegar Vestur-Þjóðverja efsta (7.2) og
Norðmenn í annað sætið (7.0). Alþýðu-
bandalagsmenn setja Norðmenn efsta (7.0),
en Svía og Finna þar á eftir (6.7). Kvenna-
listakjósendur setja Norðmenn og Svía efsta.
Mat á stjórnarháttum og
þjóðskipulagi 13 landa
Spurt var: Næst viljum við biðja þig um að
gefa nokkrum löndum einkunn frá einum
upp í níu, eftir því hversu vel eða illa þér líkar
við stjórnarhætti og þjóðskipulag landanna.
Ef þér líkar mjög vel við það gefurðu níu eða
háa tölu, en ef þér líkar það mjög illa gefurðu
einn eða lága tölu, en 5 er í miðjunni. Ef við
byrjum á....(löndin talin upp).
Verði frumvarpið að lögum má með sönnu
segja að búið sé að friða Keflavíkurveginn
fyrir ágangi búfjár og ná því markmiði sem
Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum og
margir aðrir hafa áréttað að sé nauðsynlegt.
í annan stað felur frumvarpið í sér vörslu-
skyldu á allt sauðfé á svæðinu þannig að
hættan á gróðureyðingu ætti að minnka til
muna. „A Reykjanesi er tiltölulega fátt
sauðfé og ég held að menn verði að gæta sín á
öllum öfgum í þessu sem öðru. Með þessum
girðingum er búið að friða mjög stórt svæði
við Krísuvík sem var mjög illa farið og það
segja mér spakir menn að gróðurverndar-
sjónarmiðum hafi verið mætt á fullnægjandi
hátt. Ég held að það sé óhætt að segja að með
þessu hafi verið brotið blað í sögu friðunar-
aðgerða án þess að það hafi leitt til styrjald-
arástands milli hagsmunahópa og því sé vert
að líta málið jákvæðum augum“, sagði Níels
Árni Lund í spjalli við Þjóðlíf.
Kristján Ari
Veit
ekki
Noregur 6.9
Svíþjóö 6.7
V-Þýskaland 6.7
Danmörk 6.6
ísland 6.5
Finnland 6.5
Frakkland 6.1
Bretland 6.1
Bandaríkin 5.7
Sovétríkin 4.1
Indland 3.7
Tékkósl. 3.7
Tanzanía 3.1
Allir A B D
11% 7.0 7.1 7.0
11% 7.0 7.0 6.6
13% 6.8 6.7 7.2
11% 6.7 6.9 6.8
8% 7.1 6.9 7.2
18% 6.6 6.6 6.4
15% 6.3 6.2 6.1
11% 6.2 6.3 6.9
10% 5.7 6.0 6.9
12% 3.9 4.6 3.5
31% 3.7 3.8 3.8
24% 3.7 4.0 3.5
61% 2.9 3.4 3.1
G V Ka Ko
7.0 6.8 7.0 6.8
6.7 6.8 6.7 6.7
5.9 6.5 7.0 6.2
6.4 6.5 6.7 6.6
6.2 6.0 6.5 6.5
6.7 6.6 6.6 6.3
6.1 6.1 6.3 5.9
4.9 5.4 6.1 6.0
4.2 5.0 5.8 5.6
5.5 4.4 4.2 4.0
3.9 3.8 3.9 3.5
4.1 3.8 3.7 3.6
3.7 3.2 3.2 3.0
Einkunnirnar í töflunni eru meðaltöl. í
fyrsta dálki eru meðaltöl einkunna allra
þeirra svarenda, sem gáfu einkunn. 7% svar-
enda neituðu að svara spurningunni og er
þeim sleppt í töflunni. I öðrum dálki er sýnt
hversu margir sögðu „veit ekki“ þegar þeir
voru beðnir að gefa viðkomandi landi ein-
kunn. Tanzanía sker sig þar mjög úr.
í þriðja til sjöunda dálki eru svo meðalein-
kunnir kjósenda Alþýðuflokks, Framsókn-
arflokks, Sjálfstæðisflokks, Alþýðubanda-
lags og Kvennalista. Síðustu tveir dálkarnir
sýna meðaleinkunnir sem karlar og konur
gáfu.
Spurningin var lögð fyrir í þjóðmálakönn-
un Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands,
sem gerð var í maí-júní 1988. Viðtölin fóru
fram í síma. Könnunin byggði á 1500 manna
slembiúrtaki úr þjóðskrá og heildarfjöldi
svarenda var 1084.
Röðin hjá kjósendum hvers flokks
Alþýðu- Framsóknar- Sjálfst.- Alþýöu- Kvenna-
flokkur flokkur flokkur bandalag listi
1. ísland Noregur V-Þýskal. Noregur Noregur
2. Noregur Svíþjdð ísland Svíþjóð Svfþjóð
3. Svíþjóð Island Noregur Finnland Finnland
4. V-Þýskal. Danmörk Bandar. Danmörk Danmörk
5. Danmörk V-Þýskal. Bretland ísland V-Þýskal.
6. Finnland Finnland Danmörk Frakkland Frakkland
7. Frakkland Bretland Svíþjóö V-Þýskal. ísland
8. Bretland Frakkland Finnland Sovétr. Bretland
9. Bandar. Bandar. Frakkland Bretland Bandar.
10. Sovétr. Sovétr. Indland Bandar. Sovótr.
11. Tékkósl. Tékkósl. Sovétr. Tókkósl. Indland
12. Indland Indland Tókkósl. Indland Tókkósl.
13. Tanzanía Tanzanía Tanzanía Tanzanía Tanzanía
Góðar
undirtektir
Segir Bryndís Schram
stjórnarmaður í Lífi og landi
„Undirtektir voru mjög góðar“, sagði Bryn-
dís Schram stjórnarmaður í samtökunum Líf
og land sem staðið hefur í átaki til eflingar
landgræðslu og baráttu gegn gróðureyðingu
síðustu mánuði.
Frá því í desember sl. hafa samtökin staðið
fyrir sölu póstkorta með mynd eftir Brian
Pilkington, sem fólk hefur átt kost á að und-
irrita og síðan sent þingflokksformönnum á
alþingi.
Stjórnarmenn í Lífi og landi og fleiri hafa
unnið að sölu kortanna. „Ég var sjálf tvisvar í
Kringlunni og mér fannst okkur vel tekið.
Landverndarmál hafa verið mikið í umræð-
unni að undanförnu og um þessi mál fjallað í
sjónvarpinu og víðar, þannig að ástæða er til
að ætla að ákveðin vakning sé hafin“, sagði
Bryndís Schram.
I stjórn Lífs og lands sitja auk Bryndísar
Herdís Þorvaldsdóttir, Hilmar Þór Björns-
son, Hróbjartur Hróbjartsson, Daníel Gests-
son og Kristín Aðalsteinsdóttir. Hún vann
einnig að átakinu sem nú er að ljúka.
-óg
17