Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 56

Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 56
VIÐSKIPT Japanskurlúxus Japanskir bifreiöaframleiöendur hafa lagt áherslu á aö vinna markaði fyrir lúxusbíla og höföa meö æ beinskeittari hætti til samkeppninnar við Mercedes Benz og BMW, sem hafa haft yfirburði á heimsmarkaði í þess- ari tegund bifreiða. Til marks um þaö er markaðssetning Toyota hringsins á nýrri tegund lúxus- bíls, Lexus, sem á aö fara á Bandaríkjamarkað í haust. Til kynningar hefur veriö valið höf- uöból Marcedes Benz og BMW — Þýskaland. Japanarnir hafa boðiö bandarískum bílaskriffinn- um flugferö til Þýskalands og eiga þeir aö reynsluaka Lexus á þýskum hraðbrautum — á sömu slóöum og þýsku framleiðendur- nir á Benz og BMW eru vanir aö kynna nýjungar hjá sér... Milljörðum skotið undan Úr þróunarríkjum og fleiri skuld- ugum ríkjum rennur stööugt meira fjármagn til vestrænna iðnríkja í formi „flóttafjármagns“. Aö mati opinberra aöila í Banda- ríkjunum hafa efnaöir borgarar í fimmtán skuldugustu ríkjum veraldar skotið undan um 340 milljöröum dollara frá heimalandi sínu, sem er álíka mikiö og viö- komandi ríki skulda vestrænum bönkum. Aðalástæða fjár- magnsflóttans er talin vera hröö rýrnun gjaldeyris viökomandi þjóða og ótryggt pólitískt ástand... Aðalbanki Evrópu Nýveriö skilaöi nefnd sérfræð- inga áliti sínu um framtíðarskipan banka og peningamála í Evrópu- bandalaginu. Nefndin komst aö niðurstöðu um hvernig eigi aö ákvaröa peningamál í landa- mæralausri Evrópu framtíðarinn- ar. Nefndarmenn voru flestir seðlabankastjórar en forystu hafði Delors forseti Evrópu- bandalagsnefndarinnar. Aöal- banki Evrópu á aö ráða gengi Evrópugjaldmiðilsins óháö því sem ríkisstjórnir kunna aö hafa um málið aö segja. Þannig er peningamálum háttaö í Vestur- Þýskalandi, þar sem Seðlabanki ríkisins er óháður og ákvarðar gengi, ólíkt því sem gengur og gerist í öörum ríkjum Evrópu- bandalagsins. Ríkisstjórnir eiga ekki aö geta dælt peningum út úr bankanum eftir þörfum; en í lönd- um eins og t.d. Spáni og italíu heyrir slík dæling fjár frá seöla- banka til ríkis til hvunndagsverka ráöamanna. Ekki er Ijóst hvort eöa hvenær hugmyndir Delors- nefndarinnar veröa að veruleika. Þar mun sérstaklega stranda á Thatcher forsætisráöherra Bret- lands, sem vill ekki afhenda Evrópu vald yfir peningastefnu Breta. Þannig aö langurtími get- ur liðiö þar til Aðalbanki Evrópu tekur til starfa... Biómleg verslun með blóm Verslun meö blóm gengur víða vel í Evrópu um þessar mundir. Þannig er t.d. talið aö Þjóöverj- ar verji um einu prósenti heimil- istekna sinna í slíkan gróöur, sem er álíka mikiö og fer í síga- rettur þar í landi. Talið er aö um 480 milljónir pottablóma eöa um 20 blóm á hverja fjölskyldu hafi verið ræktuö á sl. ári. Engu aö síður er efnahagsástandið í blómaiðnaöinum ekki sérlega blómlegt, og eru ástæöur þess vaxandi innflutningur. Hollend- ingar eru skæðastir í því efni og þrýsta niður veröi á blómum og gera blómaræktendum í V- Þýskalandi erfitt fyrir... Nýja lúxusgerðin frá Toyota-verksmiðjunum — Lexus. ElttE ZIGARETTE VE Auglýsingaspjald frá tóbaksframleiðendum. Vindlingar í kosningabaráttu í Vestur-Þýskalandi er hafin bar- átta fyrir kosningar Evrópuþings- ins. Tóbaksframleiðendur hafa ákveðið aö notfæra sér barátt- una í eigin þágu meö því aö aug- lýsa viö hliö flokkanna á um þrjú þúsund veggspjöldum í tíu stór- borgum. Á þeim er mynd af reyk- ingafólki og slagorö: „Sígarrettan bindur saman — viö styðjum Evrópu". Þetta veggspjald á aö hanga uppi þar til kosningarnar verða 18. júní n.k. og mun aug- lýsingaherferðin kosta tóbaks- framleiðendur samtals um 500 þúsund mörk. Þessi herferð er aö sjálfsögöu hugsuð til aö draga úr ótta við krabbamein af völdum reykinga og slá á vaxandi kröfur í Evrópu um reykingabann. Haft er eftir einum talsmanna tóbaks- framleiöenda: „í Evrópu eru 100 milljónir reykingamanna, viö vilj- um einnig standa pólitískt meö þeim“... 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.