Frjáls verslun - 01.01.2013, Qupperneq 36
36 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
skoðun
Ásmundur Helgason segir að leiðir til að koma skilaboðum til markaðarins og mark
hópa verði æ fjölbreyttari og
nauðsynlegt sé að vera vakandi
fyrir öllum þeim fjölmörgu leiðum
sem fyrirtæki eiga kost á að nota
til að ná til markhópsins.
„Þegar um er að ræða svo
mikið úrval ólíkra miðla sem
fyrir tæki geta nýtt sér þá skiptir
staðfærslan kannski aldrei meira
máli en núna. Í staðfærslunni
þarf að vera með alveg á hreinu
í fyrsta lagi hver skilaboðin eiga
að vera og í öðru lagi hvernig
á að koma þeim á framfæri. Út
frá því kemur eitthvað sem heitir
staðfærsla vörumerkis; það er
að segja hvað vill viðkomandi að
varan sé í huga markhópsins og
hver á „persónuleiki“ vörumerk
isins að vera.
Ég held að fyrirtæki og vöru
merki hafi aldrei áður þurft að
gæta jafnvel að þessu. Það
þarf ekki bara að huga að
stað færslunni í tengslum við
auglýsingar heldur líka hvernig
vörumerkið kemur fyrir á vefnum,
á útsölustöðum og í allri umfjöll
un. Hvernig á tryggðakerfið eða
klúbburinn að vera, eða söluaug
lýsingar, ímyndaauglý s ingar, innra
markaðsstarf, almanna tengsl
og hvað á að gera á samfélags
miðlum?
Á nýju ári skiptir skýr staðfærsla
meira máli en nokkurn tímann
áður.“
Huga þarf að staðfærslu vörumerkis
ÁSmunduR HElGaSon
– markaðsfræð ingur hjá dynamo
AUGLÝSINGAR
Skuldir óreiðumanna
dR. StEfanÍa ÓSkaRSdÓttiR
– lektor við HÍ
STJÓRNMÁL
Nokkrum dögum eftir gjaldþrot bankanna 2008 sagði Davíð Oddsson í Kastljóss
viðtali að Íslendingum bæri
ekki að greiða skuldir óreiðu
manna. Yfirlýsing Davíðs fór
illa í marga sem töldu að með
henni stefndi hann hagsmun
um Íslands í stórhættu.
Niðurstaða EFTAdómstólsins í
Icesavemál inu staðfestir hins
vegar að þetta reyndist rétt
mat. Samkvæmt dómnum bar
íslenska ríkið enga ábyrgð á
tapi erlendra innistæðueigenda
og íslenska ríkið var í fullum
rétti að taka bara yfir innlendan
hluta bankakerfisins sem varð
til þess að íslenskir innistæðu
eigendur gátu gengið að sínum
innistæðum.
Lengi vel reyndu forystumenn
ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðar
dóttur að telja almenningi trú
um að ráðherrar Sjálfstæðis
flokksins hefðu svo gott sem
samið um greiðslu á „skuldinni“
og það á hærri vöxtum en hinir
illræmdu Svavarssamningar.
Það þótti ríma ágætlega við
þá söguskýringu að gjaldþrot
bankanna væri afleiðing þess
að Sjálfstæðisflokkurinn hafði
leitt ríkisstjórn frá 1991. Þeir hinir
sömu gáfu lítið fyrir skýringar
um að gjaldþrotin væru afleiðing
þátta sem tengjast alþjóðlega
fjármálakerfinu og vanmætti
smáríkis gagnvart peningaöflun
um og stærri ríkjum. En pólitísk
hlið Icesavemálsins sýndi þó
glöggt þetta varnarleysi þótt
Ísland hafi að lokum haft betur.
En bara vegna þess að almenn
ingur fylgdi ekki ríkisstjórninni
að málum.“
„Yfirlýsing Davíðs
fór illa í marga
sem töldu að með
henni stefndi hann
hagsmun um Íslands
í stórhættu.“
„Svokallaðar
„hv spurningar“, en
það eru spurningar
sem byrja til dæmis
á hvað, hvernig,
hvenær eða hvers
vegna.“
Ásta Bjarnadóttir segir að hægt væri að fyrirbyggja mörg vandamál á vinnustöðum
ef stjórnendur temdu sér betri
hlustun. „Sumir stjórnendur gera
sér ekki grein fyrir mikilvægi sínu
sem hlustendur og afleiðingin er
að þeir setja sér hvorki markmið
um að fá sjálfir eitthvað út úr
samtalinu né nota virka hlustun
til að hjálpa hinum aðilanum með
hans eða hennar vandamál.
Þetta leiðir til þess að tímanum
sem fer í samtalið er ekki nægi
lega vel varið. Meginatriði virkrar
hlustunar er að spyrja spurninga
sem miða að því að vera opnar;
svokallaðar „hvspurningar“, en
það eru spurningar sem byrja til
dæmis á hvað, hvernig, hvenær
eða hvers vegna.
Annað sem einkennir virka
hlustun er að endurtaka það
sem hinn aðilinn sagði til að vera
viss um að hafa skilið hann eða
hana rétt. Ef þetta þrennt er gert
– að setja sér markmið í upphafi
samtals, spyrja hvspurninga og
endurtaka það sem hinn sagði –
er mun líklegra að báðir aðilar fái
mikið út úr samtalinu.“
góð hlustun er galdur
dR. ÁSta BjaRnadÓttiR
– ráðgjafi hjá Capacent
MANNAUÐS-
STJÓRNUN
FLUGKORTIÐ
FLUGFeLaG.Is
FaRsímaveFUR: m.flugfelag.is vInGUmsT: facebook.com/flugfelag.islands
veRTU sKReFI Á UnDan
sm
eLL
Pa
ssa
R í
ve
sK
IÐ
FLUGFéLaG ísLanDs mæLIR meÐ Flugkortinu. Með því færðu drjúgan
afslátt af farg jöldum og skilmálar kortsins henta vel þeim sem fljúga mikið innanlands.
Sláðu á þráðinn og fáðu upplýsingar um Flugkortið hjá Fyrirtækjaþjónustu Flugfélags
Íslands í síma 570 3606 eða sendu okkur línu á flugkort@flugfelag.is
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/F
LU
6
31
64
0
2/
13