Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 55

Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 55
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 55 Magnús Þór Torfason, lektor við Harvard Business School, stundar kennslu og rannsóknir á sviði tengslaneta og frumkvöðlastarfsemi við skólann. Hann segir að allt annað viðhorf sé til tengsla- neta í Bandaríkj unum en á Íslandi. Erlendis eru þau talin auðlind sem komi að miklum notum við rekstur fyrirtækja og stuðli að velgengni einstaklinga. TexTi: erla GunnarsdÓTTir Myndir: anna María sKúladÓTTir tengslanet Magnúsar í Harvard M agnús Þór Torfa­ son, lektor við Harvard Busin­ ess School, stundar kennslu og rannsóknir á sviði tengsla­ neta og frumkvöðlastarfsemi við skólann. Hann hefur bakgrunn í rafmagnsverkfræði og tölvunar­ fræði frá Háskóla Íslands og áhugi hans á tengslanetum kvikn aði út frá reynslu hans af rekstri fyrirtækis í hugbúnaðar þróun. Það er fyrirtækið Hand point sem hann stofnaði árið 1999 með þeim Davíð Guðj ónssyni og Þórði Heiðari Þórarinssyni, en fyrirtækið þró aði hug búnað fyrir handtölvur. Núna hefur fyrirtækið verið í frétt­ unum vegna verkefnisins „Pinnið á minnið“. Tengslanetarannsóknir eru ung og að mörgu leyti ókönnuð fræðigrein en afar þýðingar­ mik il á ýmsum sviðum þar sem upplýsingar flæða eftir þessum óformlega en mikilvæga þætti í skipulagi fyrirtækja. Magnús hefur starfað við Har vard Business School síðan hann lauk doktorsgráðu í stjórn un við Columbia Univerity í New York árið 2010. Þar skrif­ aði hann doktorsverkefni um tengslanet í tölvuleiknum EVE Online en auk þess hefur hann rannsakað alþjóðleg tengslanet og tengslanet fjárfestingasjóða. „Um þessar mundir er ég að kanna gjaldmiðla á netinu og færslunet þeirra. Eins er ég að skoða tengslanet og nýsköpun í sambandi við kennslu mína hér í Harvard. Við skoðum fjármögn­ unina á bak við frumkvöðla og tengslanetin, en frumkvöðlar þurfa víða að leita fanga þegar þeir stofna nýtt fyrirtæki og nýta sér tengslin. Við könnum einnig hvaða áhrif tengslanet hafa á viðskiptahug­ myndir frumkvöðla. Ein af þekkt ari rannsóknum á þessu sviði bar saman einstaklinga með lokuð tengslanet (vinir einstakl inganna þekkja flestir hver annan) og opin tengslanet (einstaklingarnir þekkja marga aðskilda hópa). Vísbendingar eru um að einstaklingar með opin tengsla net fái betri við­ skipta hugmyndir en þeir sem hafa lokuð tengsla net,“ útskýrir Magnús. vinna hugmyndum brautargengi Við greiningu á tengslanet­ um er annars vegar hægt að horfa á tengslanet fyrir fyrirtæki og hópa eða einstaklinga. Mar k miðið er að skilja hvernig tengsl a netið getur hjálpað fyrirtækjum að ná markmiðum sínum og einstaklingum að nýta og skapa tækifæri fyrir sig. Magn ús ítrekar að þessi sjónar­ horn séu þó ekki jafnólík og gæti virst í fyrstu. „Í daglegu tali heyrir maður gjarna rætt um tengslanet á þeim nótum að menn komist áfram á neikvæðan hátt fyrir til­ stilli þeirra í gegnum klíkuskap. Það getur verið tilfellið en miklu oftar hjálpa þau fólki að vinna verkefni sín betur. Fólk kemst áfram á jákvæðan hátt fyrir til stilli þeirra með því að verða hæfari starfskraftar. Fólk verður að hugsa um hvernig tengslan­ etin geta unnið hugmyndum þess brautargengi, hvernig þau stuðla að bættu aðgengi að upp lýsingum og hvernig þau geta gert verkefnastjórnun skilvirkari. Stærsta undirgreinin innan rannsókna á sviði tengsla­ neta er líklega sú sem fjallar um tengslanet og nýsköpun. Annað mikilvægt svið fjallar um áhrif tengslaneta á hegðun, réttara sagt það sem ég kalla félagsvenjur (socialnorms). Hvaða áhrif hafa tengslanet á það hvort menn fylgja viðtekn­ um venjum í samfélaginu eða brjóta þær?“ Tengslanetin spennandi vettvangur Áhuga Magnúsar á tengsla­ netum má rekja aftur til ársins 1999 þegar hann, ásamt Davíð Guðjónssyni og Þórði Heiðari Þórarinssyni, stofnaði fyrirtækið Handpoint, þar sem þeir þróuðu hugbúnað fyrir handtölvur. „Á þessum tíma var mikið lagt upp úr „WAP“ sem voru veflausnir fyrir snjallsíma. Við í Handpoint ákváðum hins vegar að einbeita okkur að lausnum sem byggðust á því sem kallað er „thick clients“, sem er í raun sambærilegt við APP­lausnirn­ ar sem við sjáum í dag. Þá eru gögn geymd á miðlara en forritið sem vinnur með gögnin keyrir í handtölvunni sjálfri. Kerf­ in okkar voru útbreidd og mikið á Íslandi í alls kyns ferlum, vörutalningum, verðkönnunum og slíku. Síðan unnum við verkefni í tengslum við greiðslumiðlun og nú er svo komið að fyrirtækið er á stærstu mörkuðum erlendis í greiðslumiðlun. Félagar mínir eru með skrifstofu á Íslandi og í Cambridge á Englandi og eru með þeim fremstu í þróun lausna fyrir kort og pin­númer. Nú er einmitt verið að innleiða slíkar lausnir á Íslandi undir fororðinu „Pinnið á minnið“ og gaman að því að nú er fyrirtækið aftur komið inn á innanlandsmarkað með greiðslulausnir bæði fyrir verslunarkeðjur sem og fyrir smærri kaupmenn sem hafa hingað til ekki tekið á móti kortagreiðslum vegna mikils kostnaðar.“ Fyrsta greinin skrifuð árið 1957 Magnús segir að þær rann­ sóknarniðurstöður sem til eru um tengslanet séu gagnlegar núna jafnvel þótt enn séu mörg tækifæri til að auka skilning á þeim. „Stóra nýnæmið í rann­ sóknunum er að rannsaka tengslanet yfir tíma, svokölluð kvik tengslanet (dynamic social networks). Hvernig fólk hagar samskiptum sínum yfir tíma, hvernig tengsl verða til og hvern ig þau rofna. Þetta er mikil breyting frá því að horfa bara á kyrrmynd af tengslanetum eins og var algengast þar til fyrir örfáum árum. Tengslanet hafa verið rann­ „Tengslanetarann­ sóknir eru ung og að mörgu leyti ókönnuð fræðigrein en afar þýðingarmik il á ýmsum sviðum þar sem upplýsingar flæða eftir þessum óformlega en mikil­ væga þætti í skipu­ lagi fyrirtækja.“ Magnús fyrir framan aðalbyggingu Harvard Business School.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.