Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 56

Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 56
56 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 „Einstaklingar með opin tengslanet virtust kerfisbundið fá betri hugmyndir en þeir sem höfðu lokuð tengslanet.“ sökuð frá því um 1970 en það var erfitt að gera nokkuð af viti með þetta á þeim tíma. Það er mjög erfitt að vinna empírískar rannsóknir á þessu sviði öðru­ vísi en með tölvum því þetta eru mikið til stór gagnasett þar sem stuðst er við flóknar tölfræði­ greiningar sem var ekki beint hægt að gera hér áður. Árið 1957 var skrifuð grein sem er mjög þekkt og fjallaði um útbreiðslu á nýju lyfi meðal lækna í Bandaríkjunum. Þetta var fyrsta greinin þar sem tókst að skrásetja hvernig hug mynd breiðist út eftir tengslaneti ein staklinga. Í henni voru 125 læknar þátttakendur sem var mjög stórt tengslanet á þeim tíma en í dag þætti það ansi lítið, auk þess sem aðeins var hægt að skoða einn atburð, eitt lyf. Þetta breyttist upp úr 1980 eða 1990 því það hafa orðið miklar framfarir á þessu sviði og er í raun mjög mikil gróska á þessu fræðasviði hér í Banda­ ríkjunum. Þetta er þver fag legt svið sem er til dæmis notað í viðskiptafræði, hagfræði og á heilbrigðisvísindasviði, til dæmis við rannsóknir á lýðheilsu. Þessi aðferðafræði byrj aði hjá eðlisfræðingum og verkfræðingum sem voru að setja upp tölvunet. Aðferða­ fræðin breiddist svo út og var aðlöguð ýmsum aðstæðum og nú erum við loks komin á þann stað að nýta þessa tækni til að skilja betur tengslanet fólks. Engu að síður eru margir þættir sameiginlegir á milli þeirra fræðigreina sem nýta þessa aðferðafræði. Ef tengslanetið er þéttriðið flæða upplýsingar hraðar en ef tengslanetið er lausriðið flæða upplýsingarnar hægar og er þá sama hvort um er að ræða tauganet, tölvunet eða tengslanet.“ Hluti af daglegu stjórn- unarkerfi Umræðan og fræðin um tengslanet eru skammt á veg komin á Íslandi miðað við í Bandaríkjunum þar sem þetta þykir sjálfsagt námsefni í öllum viðskiptaháskólum. „Nemend ur taka ekki MBA­próf hér öðru­ vísi en að fá að minnsta kosti einhvern grunn í tengsla netum. Flestir stærri skólar bjóða upp á námskeið og fyrirtæki nota tengslanet sem hluta af sínu hefðbundna stjórnunarkerfi. Hér er t.d. haldið utan um tengsla­ net starfsfólks sem hluta af reglulegu starfsmannahaldi, haldinn er gagnagrunnur um hver gaf hverjum ráð og svo framvegis. Þetta er hluti af daglegu stjórnunarkerfi innan skólans sem er síðan notað til að bæta reksturinn og sjá ný tækifæri. Ég veit ekki til þess að fyrir tæki vinni skipulega að úrvinnslu á gögnum varðandi tengslanet heima á Íslandi. Á síðasta ári leit ég í heimsókn til MBA­nema við Háskóla Íslands og eitt af því sem við töluðum um var hvort tengslanet skipti yfir höfuð einhverju máli á Íslandi en slík umræða væri til dæmis mun ólíklegri til að koma upp í banda­ rískum háskóla þar sem er meiri meðvitund um þetta svið. „Hverra manna ert þú?“ Í tímanum heima með MBA­ nem endum var þeirri hugmynd velt upp hvort tengslanet væru óþörf á Íslandi því að allir þekktu alla. Þar virðist hægt að hringja í hvaða fyrirtæki sem er og fá samband við fram­ kvæmdastjóra þess, sem væri óhugsandi hér í Bandaríkjunum nema eftir miklum krókaleiðum. Ef þú vilt ná tali af framkvæmda­ stjóra til að kynna honum áhættusama viðskiptahugmynd dugir honum ekki bara að tala við þig, heldur þarf hanna að treysta þér og þar geta sameiginleg tengslanet skipt miklu máli. Ef við skoðum tilhugalíf fólks þá tekur það hérna úti yfirleitt langan tíma því fólk þarf að byggja upp traust en á Íslandi þekkir alltaf einhver þann sem þú ert að hitta og þannig geturðu auðveldlega fengið upplýsingar með skjótum hætti. Við Íslendingar notum tengsla net mjög markvisst til að tékka af fólk þótt við gerum það stund um ómeðvitað.“ Vannýtt auðlind tengslaneta Með vorinu mun Magnús hafa umsjón með námskeiði við Endurmenntun Háskóla Íslands sem ber yfirskriftina Tengslanet fyrirtækja – vannýtt auðlind. Á námskeiðinu verður fjallað um aðferðir til að byggja upp skilvirk tengslanet fyrir fyrirtæki í heild en einnig hvernig einstakl­ ingar geta nýtt tengslanet sitt til að auka afköst sín og hvernig þeir geta þróað tengslanet sem fellur að þörfum þeirra. „MBA­nemar í Bandaríkjun­ um eru mjög meðvitaðir um samfélagsmiðlana eins og LinkedIn og fleiri netmiðla. Hér í Bandaríkjunum hefur töluvert verið rætt um hvernig ferlið við að kynnast fólki er að breytast. Fyrsta skrefið er oft að líta á við­ komandi á Fésbókinni og kanna hver séu áhugamálin og stjórn­ málaskoðanir og svo framvegis. Það er ótrúlega margt sem við vitum ekki hvaða áhrif hefur á samskiptmynstur fólks. Samskiptamiðlar eru áhugavert rannsóknarefni þar sem þeir eru með miklu ítarlegri gögn en nokkur hefur getað sett saman áður. Samhliða þessu eru fyrirtæki farin að rannsaka rafræn samskipti sín meira út frá þessari aðferðafræði. Notkun á tengslanetum verður stöðugt al­ gengari í tengslum við markaðs­ setningu og mark aðsstarf, eins og varðand hegð unarmynstur neytenda, kaup hegðun og neyslu hegðun.“ Magnús Þór Torfason, lektor við Harvard Business School í Boston, sinnir kennslu og rannsóknum á sviði tengslaneta og frumkvöðlastarfsemi. Lektor við Harvard Fundir, ráðstefnur, veislur, spennandi matarupplifun í kraftmiklu umhverfi A N T O N & B E R G U R Hafðu samband í síma 420 8800 eða á sales@bluelagoon.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.