Frjáls verslun - 01.01.2013, Síða 71
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 71
karllæg og hafa karlmenn oftast komið
fram fyrir hönd þeirra þótt það hafi breyst
tölu vert – ekki síst á seinustu árum – en í
dag eru konur formenn í tvennum stærstu
hagsmunasamtökum innan SA; hjá SVÞ og
SI – Samtökum iðnaðarins.“
Margrét segir að Gæfusporið geri SVÞ enn
meðvitaðri um að gæta þess að kynja hlutföllin
séu rétt hjá samtökunum. „Ég held að sú
krafa sé gerð til þeirra sem gæta hagsmuna
í atvinnulífinu að þeir hafi það sjónarmið
mjög ráðandi að nýttir séu hæfileikar bæði
karla og kvenna; þetta er siðferðisleg skylda
þótt stjórnarseta í hagsmunsamtökum falli
ekki undir það lagaákvæði sem tekur gildi 1.
september um jafnt hlutfall karla og kvenna í
stjórnum fyrirtækja.“
hvatningarviðurkenning fKa til
eigenda tulipop:
tuliPoP gerir
VÍðREiSt
S
igný Kolbeinsdóttir og Helga
Árnadóttir, eigendur Tulipop, hlutu
Hvatningarviðurkenningu FKA.
Þær framleiða ýmsar vörur sem
skreyttar eru fallegum fígúrum
sem búa í ævintýraheiminum Tulipop og
höfða til barna á öllum aldri.
Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir,
eigendur Tulipop, hlutu Hvatningarviðurkenn
ingu FKA. Þær framleiða ýmsar vörur
sem skreyttar eru fallegum fígúrum sem
búa í ævintýraheiminum Tulipop og má
segja að þær höfði til barna á öllum aldri.
Tulipopvörurnar eru seldar í hönnunarversl
unum t.d. á Íslandi, Bandaríkjunum, Frakk
landi, Hollandi, Írlandi, Noregi, Svíþjóð og
Þýskalandi.
„Það er mikill heiður að fá þessa viðurkenn
ingu og örvar mann í því sem maður er að
gera,“ segir Signý sem á heiðurinn af öllum
teikningunum í Tulipopheiminum. „Viðurkenn
ingin eykur trúna á mann sjálfan og fá að vera
í hópi þessara kvenna enda eru öflugar
konur í FKA sem hafa margar hverjar byggt
upp flott fyrirtæki.
Þetta er líka mikil auglýsing því það vita
ekkert allir hvað Tulipop er.“
Hvað varðar heiminn sem hún skapar
segir Signý að fígúrurnar séu allar svolítið
brenglaðar. „Þær eru ekki allar sykursætar;
þær hafa sína galla.“
Hvað með drauminn varðandi fyrirtækið?
„Draumurinn er að Tulipop verði stórt,
heims þekkt fyrirtæki.“
Helga segir að markmið fyrirtækisins sé
að búa til skemmtilegar vörur auk þess
sem miklir möguleikar séu á gerð afþrey
ingarefnis sem byggist á Tulipopheiminum.
„Vöruúrvalið hefur þróast jafnt og þétt.
Við byrjuðum á að framleiða vörur sem
væri hægt að framleiða á Íslandi til að geta
haft stjórn á gæðum og framleiddum lítið
magn til að byrja með. Við byrjuðum á að
framleiða ritfangalínu hjá Odda svo sem
minnisbækur og kort. Það gekk mjög vel og
notuðum við afraksturinn af því til þess að
fjárfesta í næstu vörum, sem voru penna
veski og lyklakippur. Síðan settum við á
markað matarstell úr harðplasti sem hefur
fengið frábærar viðtökur. Bókaútgáfan Bjart
ur fór svo í samstarf við okkur og fengum
við til liðs við okkur Margréti Örnólfsdóttur
rithöfund sem skrifaði bókina Mánasöng
varann.“ Fígúrur úr Tulipopheiminum eru
þar í aðalhlutverki.
Í dag eru þrír starfsmenn í fullu starfi hjá
fyrirtækinu og er óhætt að segja að nóg sé
að gera. Helga og Signý hafa kynnt vörur
sínar á stórum vörusýningum erlendis og
segir Helga að það sé frábær vettvangur til
að hitta innkaupastjóra verslana en þátttaka
í stórri sýningu í Frankfurt í fyrra skilaði þá
fjölmörgum pöntunum.
„Við ætlum að fylgja þeim árangri eftir
með þátttöku aftur í ár og vonum að það
gangi enn betur því nú erum við með lager
í vöruhúsi á meginlandi Evrópu sem eykur
líkurnar á að verslanir séu til í að panta
af íslensku fyrirtæki því það vex mörgum
í aug um ef maður segir að vörurnar séu
sendar frá Íslandi. Það er því búið að undir
búa jarðveginn enn betur í þetta skipti.“
Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir á
verðlaunahátíðinni. „Viðurkenningin eykur
trúna á mann sjálfan og fá að vera í hópi
þessara kvenna enda eru öflugar konur í
FKA sem hafa margar hverjar byggt upp flott
fyrirtæki.“
„Sú krafa sé gerð til þeirra
sem gæta hagsmuna í at
vinnulífinu að þeir hafi það
sjónarmið mjög ráðandi að
nýttir séu hæfileikar bæði
karla og kvenna; það er
siðferðisleg skylda.“