Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2011, Blaðsíða 3
V Lo
kl% í 2.
i/iT
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www.laeknabladid.is
Vísindi á vordögum
á Landspítala 2011
Mitt í kröftugum hagræðingaraðgerðum á síðasta ári voru sett fram þau markmið fyrir árið 2010 að
Landspítali skyldi vera meðal fremstu háskólaspítala í N-Evrópu og að halda áfram að stunda vísindi
á heimsmælikvarða. Eins og sjá má á þessari uppskeruhátíð vísindastarfa á spítalanum lítur út fyrir að
bærilega hafi gengið hjá starfsfólki Landspítala að halda sig við sett markmið.
Enn er fjölgun í birtingu vísindagreina, meistara- og doktorsnemum hefur fjölgað og nánast hefur tekist
að halda í horfinu með styrkjaupphæðir, fjölda ágripa fyrir spjaldasýningu og umsóknum í Vísindasjóð
hefur ekki fækkað. Auðvitað kann að taka einhvem tíma fyrir áhrif samdráttar og hagræðingar á spítalanum
að koma fram, enn sem komið er hefur það ekki gerst. A árinu vom £ fyrsta skipti veitt hvatningarverðlaun
til þriggja vísindamanna spítalans, sem hafa skarað fram úr og líkur eru á að hægt verði að halda áfram
á sömu braut. Jafnframt hefur forstjóri lagt fram tillögu um að á þessu ári verði teknar upp skipulagðar
styrkveitingar til ungra vísindamanna spítalans í klínísku framhaldsnámi.
Kennsla og rannsóknastarfsemi er hluti af kjarnastarfsemi háskólaspítala eða svo vitnað sé til umræðu
sem nú fer fram á Mayo Clinic í Rochester: „Science and education is a part of patient service".
Það er mikilvægt að ekki sé slegið af. Áfram verðum við að standa vörð um háskólastarf á spítalanum;
þannig er lagður grunnur að framtíðarmönnun heilbrigðiskerfisins og gæðum þess. Það má hins vegar ekki
líta fram hjá því að vísindamenn spítalans hafa ekki farið varhluta af breyttum aðstæðum og hafa brugðist
við á sama hátt og aðrir starfsmenn spítalans, með útsjónarsemi og aukinni vinnu.
Við þessar aðstæður er mikilvægt að bera sig áfram saman við það sem best gerist og sækja styrk í aukna
samvinnu, hérlendis og erlendis. Þar er mikilvægt að leita samanburðar þar sem smæð okkar hefur ekki
áhrif, eða skekkir mynd, hvorki á jákvæðan eða neikvæðan hátt. Fjöldi tilvitnana í greinar og skipulagðar
samantektir t.d. fyrir háskólaspítala á Norðurlöndum (s.s. citation index) koma sérstaklega vel út fyrir
Landspítalann og skipa honum í fremstu röð í vísindavirkni og fremst í hóp öflugustu háskólaspltala á
Norðurlöndum. Þar kemur til hjálpar víðtækt samstarf við innlendar rannsóknastofnanir, einkum HI,
íslenska erfðagreiningu og Hjartavemd. Gagnkvæmt vísindasamstarf eflir og viðheldur vísindavirkni í
heilbrigðisvísindum. Vaxandi áhugi erlendra stofnana er á slíku samstarfi, sbr. heimsókn sendinefndar
frá University of Pennsylvania í nóvember sl., sem er merki þess áhuga og setur enn frekari þrýsting á
okkar fólk að standa undir merkjum og spitalann að skapa aðstöðu til góðra verka. Landspítalinn hefur
nú gerst aðili að ECRIN (European Clinical Research Infrastructure Network) og fær á þessu ári 11 milljón
kr. styrk frá Evrópusambandinu til að efla innviði spítalans fyrir vísindarannsóknir. Sömuleiðis mun
heilbrigðisvísindabókasafn Landspítala fá rúmlega þriggja milljón kr. styrk til þátttöku í skráningarverkefni
á vegum Evrópusambandsins.
Starfsemi Klínísks rannsóknaseturs Landspítala og HÍ fór af stað á síðasta ári og hefur þegar sannað
tilverurétt sinn, s.s. er varðar ECRIN, klínískar lyfjarannsóknir og fjöldann allan af erindum og verkefnum
sem til þess hafa safnast.
Ég vona að áfram verði hægt að skrifa svona jákvæða pistla á næstu árum. Landspítalinn er klárlega á
réttri braut á þessu sviði sem og svo mörgum öðrum.
Kristján Erlendsson
Framkv.stj. vísinda-, mennta- oggæðasviðs Landspítala
Varadeildarforseti læknadeildar Háskóla íslands
\
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag islands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndis Benediktsdóttir
Gunnar Guðmundsson
Gylfi Óskarsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Soffía Dröfn Halldórsdóttir
soffia@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Ljósmyndir á forsíðu:
Ljósmyndarar Landspítala
Upplag
250
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun: isafoldarprentsmiðja
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti,
hvorki að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) I
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0254-1394
LÆKNAblaðið 2011/97 3