Listin að lifa - 01.03.2004, Blaðsíða 14
Móðurmálsþáttur
Á landsfundi LEB í vor sem leib var samþykkt ab taka upp móbur-
málsþátt í blabinu. í þættinum skyldi m.a. taka á ambögum í málinu.
Eru ambögur til stabar? já, því mibur, bæbi hjá ungum og gömlum,
alltof margar og sumar slæmar. í þessum þætti skal minnst á notkun
nokkurra orba sem er ofaukib í máli fólks. Eg kalla þau aukaorb.
Orðið að er til vandræða hjá mörgum. Maðurinn sem að
kom í gær fer aftur til baka, ef að veður leyfir, þegar að
hann hefur lokið erindi sínu. Það notar tæpast nokkur
orðið sem, nema að fylgi í kjölfarið. Þessi samstæða,
sem að. verður í framburði hjá mörgum sema. Fleiri orð
hafa fengið að sem fylgifisk. Dæmi: Ef að, þegar að,
hvort að, þótt að, meðan að, síðan að o.fl. Sleppum
aukaorðunum!
Síðan. Þegar getið er um hversu langt er liðið frá ein-
hverjum atburði, bæta margir við orðinu síðan. Dæmi:
Þetta var fyrir tveimur árum síðan. Orðinu er ofaukið,
skýrir ekkert.
Að þá. Þegar ég kom heim, að þá voru allir sofnaðir.
Sumir bruðla með orðasambandið að þá. í um fjögurra
mínútna þætti í sjónvarpi hef ég heyrt að þá notað 12
sinnum: A morgun að þá má búast við... Það skal tekið
fram að sumir flytjendur nota ekki þetta innskot.
Lengjum ekki mál okkar með mörgum marklausum
aukaorðum.
... því að ef að hérna sko ...
Berum virðingu fyrir móðurmálinu, hlustandanum og
okkur sjálfum.
SParvsieituv ^éimssoiv,
formaður Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum
Viðhaldsfrítt
skiltakerfi fyrir
fjölbýlishús
Breytingar prentaðar
á venjulegan prentara!
BJÓÐUM EINNIG:
• Gluggmekingar
• Fónaprentun
• Bilamerkingar
• Limmiio(sólekta)
• Sandblástursfilmu
MERKISMENN
flrmúla 36 • merkismenn@merkismenn.is
NEON
- Ijós og lausir stafir ^erk'S'
Félag aldraðra í
Borgarfjarðardölum
þakkar öllum sem komu á sýningu
þess í Hótel Reykholti
síðastliðið vor.
Jafnframt sendum við öllum sem veittu
okkur fjárstuðning alúðarþakkir.
Óskum öllum
í félögum heldrimanna,
vítt og breitt um landið, árs og friðar.
14