Listin að lifa - 01.03.2004, Qupperneq 16

Listin að lifa - 01.03.2004, Qupperneq 16
KYNNING: Skemnrtilegar nýjungar hjá Ferðaþjónustu bænda Ný utanlandsdeild er tekin til starfa hjá Feröaþjónustu bænda og Hugrún Hannes- dóttir var ráöin til aö halda utan um þessi nýju verkefni. Hún situr fyrir svörum hjá okkur. Umfang Ferðaþjónustu bænda, Hugrún? Þetta eru stærstu samtök gistiaðila á íslandi - með gistingu í 2.800 uppbúnum rúmum. Bæimir 120 bjóða heimagistingu, sum- arhús og sveitahótel. Auðvitað viljum við nýta þetta mikla úrval gistirýma og bjóða Islendingum upp á sérvaldar ferð- ir undir handleiðslu heimafólks sem þekkir staðina út og inn. Bændagisting er tilvalin fyrir einstaklinga eða hópa eldri borgara í innanlandsferðum. Við aðstoðum mjög gjaman við skipulagningu ferðanna. Ferðaþjónusta bænda er þekkt nafn, en fólk veit minna um þjónustuna sem þið veitið? Áhugavert er að fólk þekkir nafnið, en veit samt ekki mikið um okkur. Áríð- andi er að fram komi, að Ferðaþjónusta bænda er rótgróið fyrirtæki í eigu bænda sem þjóna ferðamönnum! Sérhæfing okkar felst í að veita persónulega og góða þjónustu - í tengslum við alla bænduma. Fyrirtækið stendur á traustum grunni, þess vegna var ákveðið að auka þjónustuna og bjóða upp á spennandi ferðir til útlanda fyrir fólk á öllum aldri. Nýr bæklingur með forvitnilegum utanlandsferðum! Segðu okkur aðeins frá ferðunum? íslendingar hafa litið ferðast til Kína og Burma, svo að þau lönd hljóta að vekja áhuga. Áhugaverðustu ferðirnir fyrir fólk í eldri kantinum eru: - ferð til Suður-Þýskalands nú í lok mars, - vínsmökk- unarferð til Franken-héraðsins í Þýskalandi í október, - og jólaferðin okkar til Wtirzburg og Rothenburg í byrjun des- ember. Við leggjum okkur fram um að gera þessar ferðir per- sónulegar og hittum heimamenn sem sýna okkur svæðin. í Burma er oft nefnt best geymda leyndarmál Asíu og hafa fáir íslendingar komið þangað. ferðinni til Suður-Þýskalands er alveg frábær fararstjóri, Inga Ragnarsdóttir, dóttir Ragnars Kjartanssonar lista- manns, en hún hefur búið á þessu svæði í 25 ár og er því að sýna sínar núverandi heimaslóðir. í fjögurra daga vín- smökkunarferð er íslenskur fararstjóri, en einnig heima- maðurinn Eugen. Hann er algjör sérfræðingur á góð vín og með honum heimsækjum við vínbændur á svæðinu, fræð- umst um víngerðina, fáum að taka þátt í berjatínslunni - og að sjálfsögðu smökkum við á hinum ýmsu tegundum. Fleiri spennandi framtíðarverkefni? Bændagisting í öðrum löndum! Nú erum við að vinna að henni á fullum krafti. Ætlunin er að bjóða bændagistingu og bílaleigubíl í einum pakka. Gistinætur verða ákveðnar fyrirfram, en allt annað er frjálst. Margir virðast bíða spenntir eftir þessu, því að nú vill fólk ekki dvelja of lengi á sama stað. Svo má ekki gleyma því að íslendingar eru orðnir mjög ferðavanir. Með þessu bjóðum við upp á afar persónulega og sveigjan- lega valkosti í ferðalögum. 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.