Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.01.2015, Page 14

Fréttatíminn - 09.01.2015, Page 14
Á Á árum áður voru sjóslys tíð hér við land. Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur muna eftir forsíðum blaða þar sem myndir af fjölda drukknaðra sjómanna þakti þær. Þessum hörmungartíðindum var tekið eins og fórnum sem þyrfti að færa. „Sjórinn gaf og sjórinn tók,“ var andvarpað um leið og tíund- aður var fjöldi föðurlausra barna. Tíð og ógnvænleg sjóslys náðu langt fram á 20. öld en hefur fækkað svo um munar undanfarna fjóra áratugi. Á áratugnum 1971-1980 létust 203 íslenskir sjómenn, 1981-1990 biðu 116 sjómenn bana, 63 á áratugn- um 1991-2000 og 21 fórst á árabilinu 2001-2010. Á nýliðnu ári varð ekkert banaslys á íslenskum skipum. Enginn fórst heldur árin 2008 og 2011. Árangurinn í öryggismálum íslenskra sjómanna þessi liðnu 40 ár er því stórkostlegur. Margar samverkandi ástæður eru fyrir þessum mikilsverða viðsnúningi. Það að sjórinn taki er ekki lengur ásættanlegt. Slysavarnaskóli sjómanna var settur á lagg- irnar árið 1985 og hefur haft mikið að segja. Hilmar Snorrason, skólastjóri skólans, segir í viðtali við vefmiðilinn Vísi, að með aukinni öryggisvitund sjómanna hafi slysum fækkað. Sá árangur sem íslenskir sjómenn hafi náð sé gríðarlega mikill og til þess sé horft af öðrum þjóðum hvað áunnist hafi í öryggis- fræðslu. Þá nefnir Hilmar mikilvægt atriði sem eru betri veðurfréttir. Fleira kemur til, betri skip og allur aðbún- aður um borð og kvótasetning fiskistofna sem hefur þýtt að hægt er að sækja þegar aðstæður eru til þess. Ekki þarf að tefla í tvísýnu þegar veður eru válynd. Aga hefur aukist í þeirri viðleitni að koma í veg fyrir slys á sjó og sama gildir hvað varðar umferð á landi. Fjórir létust í um- ferðarslysum hér á landi á nýliðnu ári. Það er fjórum of mikið en engu að síður markverð- ur árangur til bóta en dauðaslys í umferð- inni hafa ekki verið svo fá á einu ári frá árinu 1966, þegar kerfisbundin skráning umferð- arslysa hófst hérlendis, tveimur árum áður en hægri umferð var tekin upp. Mikill áróður var rekinn fyrir bættri umferðarmenningu það ár, þ.e. 1968, en þá fækkaði dauðaslys- um, 6 létust það ár. Aukinn agi í umferðinni nú, auk bættra vega með aðskilinni akst- ursstefnu og tvöföldun á ákveðnum vegar- köflum hefur fækkað slysum, að því er Ágúst Mogen sen, rannsóknarstjóri umferðar- slysa hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa, greindi frá í tilkynningu innanríkisráðu- neytisins á gamlársdag. Helstu orsakir bana- slysa í umferðinni undanfarin ár hafa verið hraðakstur, ölvunarakstur og að bílbelti séu ekki notuð. Þessi atriði eru í höndum öku- manna og farþega. Ágúst bendir á að agi hafi aukist sem sjá má af því að meðalhraði hefur minnkað og slysum þar sem ungir ökumenn eiga hlut að máli hefur fækkað. Markmið stjórnvalda á Íslandi í umferðar- öryggismálum er að fjöldi látinna í umferð- inni á hverja 100 þúsund íbúa verði ekki meira en það sem lægst gerist með öðrum þjóðum, fyrir 2022 – og að fjöldi látinna og alvarlega slasaðra lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2022. Árangur hefur náðst. Árið 2014 hlýtur að koma vel út í alþjóð- legum samanburði og svo var einnig árið 2010 þegar dánartíðni hér var sú lægsta í öllum ríkjum OECD – en árið 2012 var Ísland fimmta í röð þeirra ríkja sem hafa lægsta dánartíðni í umferðinni. Vegna aga og fastra reglna eru slys í flugi fátíð – og það sem út af ber rannsakað svo koma megi í veg fyrir slys. Aukinn agi hvað öryggi á sjó varðar skilar augljóslega árangri og sama á við um umferðaraga. Penninn er máttugri en sverðið Það þarf ekki að hafa mörg orð um mann- skæðu árásina á ritstjórn franska skoptíma- ritsins Charlie Hebdo í París á miðvikudag- inn. Þar var ráðist gegn þeim gildum sem verja ber með öllum tiltækum ráðum. Atlögu öfgamanna gegn tjáningarfrelsinu verður hrundið. Slagorðið „Ég er Charlie“ hljómar nú um allan heim. Hér gildir hið fornkveðna. Penninn er máttugri en sverðið. Færri dauðaslys á liðnu ári í umferðinni og engin slík á sjó Agi og öryggisvitund fækka slysum Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is LóABORATORíUM LóA hjÁLMTýsdóTTiR Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@ frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. BILLUND flug f rá F l júgðu með f rá jún í t i l ágúst 10.999 kr. SALZBURG flug f rá F l júgðu með f rá janúar t i l febrúar 19.999 kr. Japönsk bogmi: Kyudo Kyudo: Bogmi þar sem skotið er á mark úr 28 metra arlægð. Kennarar: Tryggvi Sigurðsson, Kyoshi 7. dan ANKF (Japanska Kyudosambandið). Elsa Guðmundsdóttir, 4. dan Kyudo byggir á einstakri menningarhefð sem best er lýst með hugtökunum SHIN-ZEN-BI, þ.e. leið hins sanna, góða og fagra. Kyudo er stundað af ölda iðkenda á öllum aldri í Japan og annars staðar. Upplýsingar veitir Elsa Guðmundsdóttir í símum 5533431/8978765 BOSTON flug f rá F l júgum a l lan árs ins hr ing f rá mars 2015! 17.999 kr. 14 viðhorf Helgin 9.-11. janúar 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.