Fréttatíminn - 09.01.2015, Blaðsíða 55
Neutral þvottaduft er orðið enn umhversvænna en áður. Við erum
búin að þjappa því saman svo að nú þarftu minna magn fyrir sömu
virkni. Áherslur okkar eru á umhverð og þig og því leitumst við
stöðugt við að búa til betri vöru sem þú getur notað áhyggjulaus.
• minni skammtur í hvern þvott
• minni orkunotkun við framleiðslu
• minni umhversmengun
• nýr og léttari pakki
SÉRSTAKLEGA ÞRÓAÐ FYRIR VIÐKVÆMA HÚÐ
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
N
AT
7
07
09
0
1/
15
Tvær fyrstu sýningar ársins í Lista-
safninu á Akureyri verða opnaðar á
morgun, laugardaginn 10. janúar.
Í mið- og austursal má sjá yfirlit
á verkum Elísabetar Geirmunds-
dóttur, Listakonan í Fjörunni, en
í vestursal sýnir Habby Osk undir
yfirskriftinni (Ó)stöðugleiki. Síðar-
nefnda sýningin er hluti af sýninga-
röð sem mun standa til 8. mars og
inniheldur 8 vikulangar sýningar.
Aðrir sýnendur eru Brenton Alex-
ander Smith, Jóna Hlíf Halldórs-
dóttir, Kristján Pétur Sigurðsson,
Þóra Karlsdóttir, Joris Rademaker,
Lárus H. List og Arnar Ómarsson.
Elísabet Geirmundsdóttir var
fjölhæf alþýðulistakona sem er
þekktust fyrir höggmyndir þó
hún gerði einnig málverk og teikn-
ingar, myndskreytti bækur, hann-
aði hús og merki og samdi ljóð og
lög. Það er afar viðeigandi að á 100
ára afmæli kosningaréttar kvenna
á Íslandi skuli vera sett upp yfir-
litssýning á verkum Elísabetar
Geirmundsdóttur í Listasafninu á
Akureyri, þegar 100 ár eru liðin frá
fæðingu hennar. Sýningin, sem er
unnin í samvinnu við Minjasafnið á
Akureyri og fjölskyldu Elísabetar,
stendur til 8. mars, að því er fram
kemur í tilkynningu safnsins.
Habby Osk býr og starfar sem
myndlistarmaður í New York en
hún útskrifaðist frá AKI ArtEz
Institute of the Arts í Enschede í
Hollandi 2006 og School of Visual
Arts í New York 2009. Hún hefur
haldið fimm einkasýningar á Íslandi
og í Bandaríkjunum og tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum víða um
heim.
Hugtökin stöðugleiki og jafnvægi
eru megininntak sýningarinnar.
Leitin að stöðugleika og jafnvægi
er sífelld og síbreytileg. Eftir að
stöðugleikanum og jafnvæginu er
náð er einnig krefjandi að viðhalda
þeim. Fimmtudaginn 15. janúar,
klukkan 15, verður lokunarteiti
sýningarinnar.
Listasafnið er opið frá þriðjudegi
til sunnudags klukkan 12-17. Að-
gangur er ókeypis.
Elísabet Geirmundsdóttir við verk sitt.
Habby Osk.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
gaf öllum Hafnfirðingum
kost á að sjá ókeypis
kvikmyndasýningu í
Bæjarbíói þann 10. janúar
1945 í, þá nýbyggðu, ráð-
og kvikmyndahúsi. Nú,
70 árum seinna, 10. og 11.
janúar 2015, verður haldið
upp á sýningarafmæli
Bæjarbíós og því verður
ókeypis í bíó þessa helgi.
Sýningar verða klukkan
3, 5, 7 og 9 og meðal þess
sem verður á tjaldinu um
helgina eru kvikmynd-
irnar Karamellumyndin,
Stikkfrí, Gauragangur,
Jóhannes og Kristnihald
undir Jökli.
Á laugardaginn verður
opið hús og hátíðarsetn-
ing klukkan 14 og er frítt
inn alla helgina.
Reykjavíkurfrumsýning
á írska verðlaunaverkinu
Lísa og Lísa verður í kvöld,
föstudaginn 9. janúar.
Leikritið, sem sett var upp
af Leikfélagi Akureyrar,
sló í gegn síðasta vetur.
Verkinu hefur verið lýst
sem einlægu, mannlegu
og gríðarlega fyndnu.
Lísa og Lísa eru
leiknar af akureyrsku
leikkonunum Sunnu Borg
og Sögu Geirdal Jóns-
dóttur. Þær eru komnar
á sjötugsaldurinn og
hafa búið saman í þrjátíu
ár – hálfvegis í felum.
Fy rir atbeina ungs leik-
skálds hafa þær nú tekið
ákvörðun um að koma út
úr skápnum og segja sögu
sína á leiksviði.
Listakonan
í fjörunni
Lísa og Lísa í Tjarnarbíói
Sunna Borg og Saga Geirdal Jónsdóttir leika Lísu og Lísu.
70 ára sýningar afmæli
menning 55 Helgin 9.-11. janúar 2015