Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.01.2015, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 23.01.2015, Blaðsíða 10
Helstu markmið sálfræðiþjónustunnar 2.590.000 kr. KIA Cee’d LX Árgerð 5/2013, ekinn 73 þús. km, dísil, 1396 cc, 90 hö, beinskiptur, eyðsla 4,4 l/100 km. 2.390.000 kr. KIA Picanto EX Árgerð 6/2014, ekinn 6 þús. km, bensín, 1285 cc, 85 hö, sjálfskiptur, eyðsla 5,6 l/100 km. 5.190.000 kr.4.690.000 kr. KIA Sorento EX LuxuryKIA Sportage EX Árgerð 5/2012, ekinn 76 þús. km, dísil, 2199 cc, 198 hö, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn, eyðsla 6,7 l/100 km. Árgerð 11/2012, ekinn 29 þús. km, dísil, 1995 cc, 136 hö, beinskiptur, fjórhjóladrifinn, eyðsla 5,7 l/100 km. *Á by rg ð er í 7 ár f rá s kr án in ga rd eg i b if re ið ar Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir Ábyrgð fylgir! Allt að 7 ára ábyrgð fylgir notuðum Kia* NOTAÐIR BÍLAR www.notadir.is Kletthálsi 2 110 Reykjavík 590 2160 Opnunartímar: Virka daga 10–18 Laugardaga 12–16 t æplega sextíu börn eru á biðlista og það er um 8-11 mánaða bið eftir viðtali. Því miður,“ segir Ása Mar-grét Sigurjónsdóttir sálfræðingur sem hefur yfirumsjón með sálfræðiþjón- ustu barna hjá SÁÁ. Þangað til fyrir um ári sinntu þrír sálfræðingar viðtölum við börn og ungmenni hjá SÁÁ en vegna fjárskorts hefur Ása ein sinnt viðtölunum að undanförnu og biðlistarnir lengst. Gengið hefur verið frá ráðningu nýs sálfræðings sem hefur störf í mars. „Þegar við vorum þrjú var ekki nema nokkurra vikna bið eftir viðtali þannig að vonandi styttast biðlistarnir þegar annar sál- fræðingur tekur til starfa,“ segir Ása. SÁÁ hefur boðið börnum alkóhólista upp á sálfræðiviðtöl frá árinu 2008 og hafa yfir 800 börn komið í viðtöl. Þjónustan er ætluð börn- um og ungmennum á aldrinum 8-18 ára. Hún er að mestu fjármögnuð með tekjum SÁÁ af álfasölu og annarri fjáröflun. Greiða þarf 3 þúsund krónur fyrir hvert viðtal en aðeins er greitt eitt gjald fyrir systkini. Þá eru sam- tökin með samning við Reykjavíkurborg og ef börnum er vísað í viðtöl í gegn um barna- verndarnefnd eða þjónustumiðstöðvar fara börnin í ákveðinn forgang og borgin greiðir fyrir viðtölin. Foreldrar í virkri neyslu „Börn sem búa með alkóhólista á heimilinu búa við óvissu og óöryggi. Því fylgir gjarnan mikill kvíði og mikilvægt er að sinna þeim sem allra fyrst þannig að kvíðinn magnist ekki upp. Sum þessara barna hafa lítið stuðn- ingsnet í kring um sig og hafa jafnvel engan til að tala við um vandann. Þau geta talað hér,“ segir Ása. Hún bendir á að fjöldi rannsókna á uppkomnum börnum alkóhólista sýni að þau geti upplifað ýmsa erfiðleika og sálfræðiþjón- usta SÁÁ fyrir börn og ungmenni sé úrræði til að minnka líkur á slíkum erfiðleikum. Þau börn sem koma í viðtöl eiga ýmist for- eldra, stjúpforeldra eða aðra nána aðstand- endur sem eru alkóhólistar. „Í byrjun voru þetta aðallega krakkar sem áttu foreldra sem voru orðnir óvirkir en hópurinn hefur breyst og nú er mun meira um að hingað komi börn sem eiga foreldra sem eru enn í virkri neyslu og þau börn hafa aðrar þarfir. Þjónustan snýst alltaf um fræðslu, fræðslu um sjúkdóminn og af hverju hegðun alkóhólistans breytist. Oft þarf að vinna með tilfinningalega vanlíðan og það er meira um að börn upplifi vanlíðan Ása Margrét Sigurjónsdóttir sálfræðingur hefur yfirumsjón með sál- fræðiþjónustu barna hjá SÁÁ. Sum þeirra barna sem þangað leita hafa lítið sem ekkert stuðningsnet og engan til að ræða við. Ljósmynd/Spessi Þeir óttast að foreldrum þeirra fari þá að líða illa og fari að drekka, og krökk- unum finnst það þá vera þeim að kenna. Fleiri börn virkra alkó- hólista í sál- fræðiviðtölum Vegna fjárskorts hefur aðeins einn sálfræðingur sinnt sálfræðiþjónustu fyrir börn og ungmenni hjá SÁÁ undanfarið ár. Tæplega 60 börn eru á biðlista og er biðin eftir viðtali allt að 11 mánuðir. Gengið hefur verið frá ráðningu annars sálfræðings sem hefur störf í mars. Þegar þjónustan var fyrst sett á laggirnar voru það aðallega börn óvirkra alkóhólista sem komu í viðtöl en það hefur færst í aukana að foreldrar barna sem þangað koma hafi aldrei leitað sér aðstoðar. Af vefnum SÁÁ.iS Að barnið fái opnun og viður- kenningu á stöðu sinni og aðstæðum í fjölskyldu þar sem áfengis- eða vímuefnavandi er til staðar. Að hjálpa barninu til að skilja betur aðstæður sínar og foreldra sinna og afleiðingar þeirra. Að stuðla að vellíðan og velferð barnsins í nútíð og framtíð. Að rjúfa þann þagnarmúr og einangrun sem skapast iðulega hjá barni í þessum aðstæðum. Að barnið skilji betur hvað alkó- hólismi er, hvernig hann þróast og hvaða afleiðingar hann getur haft. Að barnið átti sig betur á stöðu foreldra sinna og þeim vanda sem þeir eiga við að stríða. Að gera barnið hæfara til að takast á við og vinna úr tilfinn- ingalegri vanlíðan, styrkja sjálfsmynd og félagsfærni. Að aðstoða barnið við að greina á milli sjúkdómsins alkó- hólisma og mann- eskjunnar sem þjáist af honum. Foreldrið er alltaf best í heimi, jafnvel þó það sé virkur alkóhólisti. Að barnið geri sér grein fyrir því að langflestir reyna að vera góðir foreldrar. Ýmsir erfiðleikar og áföll geta skyggt á þessa mynd. Að fyrirbyggja neyslu áfengis- og annarra vímuefna hjá barninu með því að auka með- vitund þess um þá ákvörðun, ábyrgð og val sem felst í að byrja neyslu. Sálfræðiþjónusta SÁÁ er ætluð börnum og ungmennum á aldr- inum 8-18 ára. Ljósmynd/Hari þegar aðstandendur eru í virkri neyslu. Við leggjum líka mikið upp úr að kenna börn- unum bjargráð þannig að þau eigi betra með að komast af,“ segir Ása. Óeðlileg samskiptaform Í fjölskyldum alkóhólista er gjarnan ákveð- inn þagnarmúr og segir Ása mikilvægt að börnin viti að þau megi ræða þessa hluti. „Í fjölskyldum alkóhólista eru samskipta- formin oft óeðlileg, það eru óskráðar reglur um hvað má tala um, og ekki eru allar til- finningar leyfðar. Krakkarnir vilja alltaf reyna að halda foreldrum sínum góðum og veigra sér gjarnan við að tala við foreldra sína um erfiða hluti þegar þeir eru edrú því þeir óttast að foreldrum þeirra fari þá að líða illa og fari að drekka, og þeim finnst það þá vera þeim að kenna,“ segir hún. Börn og ungmenni geta fengið sálfræði- þjónustu hjá SÁÁ óháð því hvort foreldrar þeirra hafi leitað sér aðstoðar. „Hingað hefur komið fjöldi barna sem á foreldra sem hafa aldrei leitað sér aðstoðar. Hér erum við fyrst og fremst að einbeita okkur að börnunum og þeira líðan,“ segir Ása. Miðað er við að börnin komi í 8 viðtöl en alltaf er möguleiki á endurkomu. „Stund- um koma þau aftur í eitt skipti, stundum nokkrum sinnum. Það hefur verið erfitt að þróa þessa þjónustu þegar ég er bara ein en vonandi breytist það þegar annar sálfræð- ingur kemur,“ segir hún. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is 10 fréttaskýring Helgin 23.-25. janúar 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.