Fréttatíminn - 23.01.2015, Blaðsíða 60
takt við tímann Eygló Hilmarsdóttir
Tíðahringsappið breytti lífi mínu
Eygló Hilmarsdóttir er 22 ára Hafnfirðingur sem búsett er í miðbæ Reykjavíkur.
Hún er einn höfunda og leikara í Konubörnum sem nú eru sýnd í Gaflaraleikhús-
inu við góðan orðstír. Eygló er skóböðull og býr sig undir að búa til eigið pestó
með Kitchen Aid töfrasprota sem hún fékk í jólagjöf.
Staðalbúnaður
Ég geng í allskonar fötum og hef engan
sérstakan stíl. Ég kann eiginlega ekki
rassgat að klæða mig en reyni þó að láta
mér ekki verða kalt. Ég er líka skóböðull
og hálf skammast mín í hvert skipti sem
ég kaupi mér skó. Ég geng með veski sem
amma mín átti, ég hef notað það í þrjú ár
og þegar ólin slitnaði batt ég bara hnút
á hana. Ætli ég eigi ekki þrjá skartgripi
og það er bara tímaspursmál hvenær ég
týni þeim. Ef fólk vill frekari innblástur
varðandi tísku og stíl má það fylgja mér á
Twitter, @eygloh.
Hugbúnaður
Ég er að vinna í Borgarleikhúsinu, meðal
annars við að sjá um krakkana í Billy El-
liot og Línu langsokki. Þegar ég var í MR
varð Kaffitár í Bankastræti að „hangout“-
stað og ef ég nenni ekki að drekka kaffi
heima hjá mér fer ég þangað. Þar hitti ég
yfirleitt einhvern sem ég þekki. Þegar ég
fer út að djamma fer á staði sem vinkonur
mínar vilja fara á, það eru helst staðir sem
Sunna Ben eða Logi Pedro eru að „dj-a“
á. Mér finnst annars geðveikt gaman að
horfa á bíómyndir, fara í leikhús eða á
tónleika. Eða að horfa á grínþætti. Ég
horfi á The Office, The Mindy Project,
Parks and Recreation, Broad City, 30
Rock og Girls.
Vélbúnaður
Eiga ekki allir Macbook Pro og snjall-
síma í dag? Ég á bláan iPhone 5c sem ég
keypti af kærasta vinkonu minnar sem
heitir Jökull Sólberg. Hann er frábær og
þeir báðir reyndar, síminn og Jökull. Ég
er frekar virk á Twitter og ég get mælt
með einu appi sem breytti lífi mínu. Það
er tíðahringsappið Clue, ég mæli hjartan-
lega með því – fyrir alla.
Aukabúnaður
Ég fékk Kitchen Aid töfrasprota í jólagjöf
með allskonar aukahlutum og stillingu
svo nú get ég búið til pestó ef ég stíg
pestóskrefið einhvern tímann til fulls. Ég
og kærastinn minn erum frekar dugleg
að elda, svona miðað við jafnaldra okkar.
Hann er með einhvers konar dellu fyrir
matargerð núna og er rosa duglegur
að elda fyrir mig sem er gott því ég er í
kvöldvinnu og hef ekki mikinn tíma til
þess. Mamma kenndi mér allt sem ég
kann þegar kemur að eldamennsku og
það er einn indverskur réttur sem við
eldum mjög gjarnan, hann er með möndl-
um og einhverju stússi. Ég fór einmitt í
bakpokaferðalag til Indlands og Nepal í
fyrra. Það var alveg sturlað. Ég fór líka til
New York. Stóra planið er að fara í aðra
reisu með kærastanum, annað hvort um
Asíu eða Balkanskagann.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
kEppni vEttvangur fyrir lEikjasköpun
Ólafur Andri Ragnarsson er formaður Samtaka leikja-
framleiðenda og aðjúnkt við tölvunarfræðideild Háskólans
í Reykjavík. Hann segir árlega Game Creator tölvuleikja-
keppni tilvalinn vettvang fyrir þá sem hafa frábæra hug-
mynd af tölvuleik eða þá sem hafa einfaldlega alltaf langað
til að búa til tölvuleik eða fræðast um leikjahönnun.
Keppnin er hafin en það er enn hægt
að skrá sig til leiks. „Þátttakendum í
keppninni er boðið að taka þátt í fjórum
vinnustofum í HR þar sem sérfræðing-
ar veita aðstoð við gerð leikjanna. Sú
fyrsta fór fram síðastliðinn laugardag
og þá mættu yfir 60 manns sem er til
marks um mikinn áhuga á leikjagerð,“
segir Ólafur. Í fyrstu vinnustofunni
voru þátttakendur leiddir í gegnum
hugmyndavinnu og frumgerð að leik. Í næstu vinnustofu,
sem fram fer á morgun, laugardag, mun Hannes Högni Vil-
hjálmsson, dósent við HR, kenna leikjahönnun og í þeirri
þriðju sem fram fer viku seinna mun Ari Knörr, kennari hjá
Margmiðlunarskólanum, kenna hvernig á að búa til mynd-
efni og grafík. „Þátttakendur geta því lært margt í vinnu-
stofunum,“ segir Ólafur.
Nú þegar hafa 12 lið skráð sig til leiks og eru þátttakendur
yfir 50 talsins. „Það er ekkert aldurstakmark í keppnina.
Keppendurnir eru á öllum aldri, frá grunnskólakrökkum
og upp úr en flest teymin eru þó samsett af menntaskóla- og
háskólanemum,“ segir Ólafur. Aðspurður um kynjahlutfall
segir hann að strákarnir séu meira áberandi. „Við sjáum
samt sífellt fleiri stelpur og það er eitthvað sem við erum
rosalega ánægð með. Stelpurnar eiga fullt erindi í þetta,
þær eru hugmyndaríkar og koma oft með mjög góða innsýn
í strákateymin.“
Frá því að keppnin hófst fyrir fjórum árum hafa Samtök
leikjaframleiðenda fengið yfir 50 leiki til umsagnar. „Fáeinir
þeirra hafa verið þróaðir áfram og orðið að alvöru leikjum. Í
öðrum tilfellum hefur hæfileikaríkt fólk notað þessa keppni
sem stökkpall yfir í störf hjá leikjafyrirtækjum. Okkar mark-
mið er að búa til vettvang fyrir leikjasköpun og vonum við
auðvitað að keppnin muni hafa jákvæð áhrif á leikjamark-
aðinn,“ segir Ólafur. Skila þarf fullbúnum tölvuleik, sem
hægt er að spila, fyrir laugardaginn 14. febrúar. Nánari upp-
lýsingar um keppnina má finna á http://gamecreator.igi.is
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Keppt um besta
tölvuleikinn
Ólafur Andri
Ragnarsson,
formaður Sam-
taka leikja-
framleiðenda.
Yfir 50 leikir
hafa orðið til á
síðustu fjórum
árum í keppni í
tölvuleikjagerð
á vegum Sam-
taka leikja-
framleiðenda.
LOKADAGAR ÚTSÖLU
50-70 %
Nýjar vörur frá
KLAPPARSTÍGUR 40 · 101 REYKJAVÍK · SÍMI 571 4010
60 dægurmál Helgin 23.-25. janúar 2015