Fréttatíminn - 23.01.2015, Blaðsíða 62
TónlisT Jeff Who? Tekur þáTT í JúróvisJón
Söngvarinn Bjarni Lárus Hall, sem gjarnan er kenndur við hljómsveitina Jeff Who?, flytur
lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins sem hefst síðar í mánuðinum. Lagið heitir Brotið gler og
samdi Bjarni það í samstarfi við upptökustjórann Axel Árnason. Hann segist spenntur en líka
kvíðinn en mun njóta stuðnings frá hljómsveitinni sinni, Jeff Who?, á sviðinu.
u ndirbúningurinn er að hefjast og mér sýnist þetta verða svolítið stíft pró-
gram,“ segir Bjarni Hall, söngvari
Jeff Who?, sem tekur þátt í Söngva-
keppni Sjónvarpsins.
„Það er fullt sem þarf að gera
sem er gaman. Strákarnir í hljóm-
sveitinni verða með mér á sviðinu
sem er mjög gott,“ segir Bjarni,
sem segir alla hafa verið til í það að
taka þátt, þrátt fyrir að Júróvisjón
sé ekki eitthvað sem þeir eru vanir.
„Þeir tóku bara vel í það, við
erum svo góðir vinir að það er
gaman að gera þetta saman. Ég
var eitt sinn með fordóma gagnvart
þessari keppni en með aldrinum
hættir maður að pæla í því og hefur
bara gaman af þessu,“ segir Bjarni.
„Ég geri þetta algerlega á mínum
forsendum og tel litlar líkur á því
að ég detti í einhvern Júró-gír, en
maður veit það ekki. Fólkið á RÚV
ýtir manni líka út í það að gera það
sem manni finnst réttast, þeir eru
ekki með einhverjar kröfur.“
Lagið Brotið gler var ekki sam-
ið fyrir keppnina en þeir Bjarni og
Axel áttu lagið og vissu í raun ekki
hvað þeir ættu að gera við það.
„Lagið varð til árið 2007 og í fyrra
ákvað ég að taka það upp,“ segir
Bjarni. „Ég var ekki á því að senda
það í neina spilun því ég var ekki
viss hvað ég ætlaði að gera næst,
svo það var bara tilvalið að senda
það í keppnina. Það var samið á
ensku og mér finnst persónulega
enska útgáfan flottari, svo mark-
miðið er að komast í úrslit svo ég
geti flutt það á ensku,“ segir Bjarni,
en öll lögin í keppninni þurfa að
vera flutt á íslensku í undankeppn-
inni.
Bjarni er mjög spenntur fyrir
þátttökunni og hlakkar til að heyra
hin lögin. „Það verður gaman að
hlusta og fylgjast með hinum lög-
unum. Ég er búinn að vera fastur í
mínu lagi svo lengi að það verður
gaman að heyra hin,“ segir hann.
„Ég er aðallega stressaður líka.
Þegar ég frétti að lagið hefði kom-
ist inn var ég glaður í u.þ.b. 3 sek-
úndur en svo varð ég bara stress-
aður,“ segir Bjarni Lárus Hall.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Glaður í 3 sekúndur
en svo kom stressið
Jeff Who? mun standa við hlið Bjarna Hall í Söngvakeppninni. Mynd/Hari
þorrinn halTu kJafTi er fyrsTa þorralagið í háa herrans Tíð
Hafnfirskir rokkarar gefa út þorralag
Pollapönkarinn og Botnleðju-
söngvarinn Heiðar Örn Kristjáns-
son segir þorralög alveg vanta á
þessum árstíma. Hann tók til sinna
ráða og stofnaði þorrahljómsveit-
ina Það sem úti frýs, og fór í hljóð-
ver og tók upp þorralagið Haltu
kjafti. „Mér hefur fundist vanta
hressandi þorralag með viðeigandi
samsöng og vitleysisgangi,“ segir
Heiðar en lagið sem kemur út í
dag, bóndadaginn, er hafnfirsk
framleiðsla. Meðlimir sveitar-
innar eru þeir Þröstur „skrýtni“
Harðarson, Magnús Leifur, Þór-
hallur Stefánsson og Viðar Hrafn
Steingrímsson. „Við erum á því
að það hafi verið vöntun á þessu,
fyrir utan þorraplötuna sem Ragga
Gísla gerði á sínum tíma. Þetta er
aftur á móti lag sem hentar öllum
mannamótum vel, og allir geta
tekið undir,“ segir Heiðar.
„Planið er að reyna að koma
eitthvað fram í kringum þorrann,
þó bandið sé nú bara að skríða úr
eggi, en það væri vissulega gaman
að koma fram á góðu mannamóti.“
Heiðar var ráðinn æskulýðsfulltrúi
Vídalínskirkju í Garðabæ í vetur
og segir hann það hafa verið þung
skref í Garðabæinn fyrir eldheita
FH-inginn. „Þetta var mjög erfitt
fyrst, en ég er búinn að ná mér,“
segir Heiðar. „Allavega út á við,
inn á við græt ég hástöfum.“
Haltu kjafti fer í spilun á öllum
útvarpsstöðvum í dag og verður
einnig fáanlegt á www.tonlist.is.
-hf
Hljómsveitin Það sem úti frýs. Skrýtnir
Hafnfirðingar sem hafa sent frá sér
lagið Haltu kjafti.
Kex Hostel mun halda sína árlegu skosku
menningarhátíð í fjórða sinn helgina nú
um helgina í samstarfi við Edinborgar-
félagið á Íslandi, Icelandair og Vífilfell.
Burns nótt er haldin ár hvert í Skotlandi
þann 25. janúar, á afmælisdegi þjóðskálds
Skota, Robert Burns. Henni er fagnað
með skoskum mat, drykk og tónlist og að
sjálfsögðu ljóðlist Robert Burns. Kex Hostel
hefur boðið skoskum sekkjapípuleikara til
landsins sem mun sjá til þess að Burns nótt
fari fram í samræmi við hefðir og reglur.
Einnig munu hljómsveitinarnar Two Wings,
Ben Reynolds & Guests og tónlistarkonan
Hanna Tuulikki koma fram á hátíðinni.
4.000 eintök af Nesbø
Löng bið aðdáenda norska spennusagna-
höfundarins Jo Nesbø eftir nýrri bók hans
á íslensku er á enda. Í dag, föstudag,
kemur út bókin Afturgangan sem er sú
fyrsta á íslensku í tvö ár. Forlagið nældi
sér nýverið í útgáfuréttinn á bókum hans
eftir að Uppheimar lögðu upp laupana.
Hjá Forlaginu eru bundnar miklar vonir við
Afturgönguna og er fyrsta upplag hvorki
meira né minna en fjögur þúsund eintök.
Upplag sem margir íslenskir höfundar láta
sig dreyma um. Bækur Jo Nesbø hafa notið
mikilla vinsælda hér á landi og um heim
allan. Alls hafa yfir 23 milljónir eintaka af
bókum hans selst í heiminum og þær hafa
verið þýddar á yfir 40 tungumál.
Frönsk kvikmynda-
hátíð hafin
Hin árlega Franska kvikmyndahátíð í
Háskólabíói hófst í gær, fimmtudag,
og stendur yfir til 2. febrúar. Leikarar
opnunarmyndarinnar Ömurleg brúðkaup,
þeir Noom Diawara og Medi Sadoun voru
heiðursgestir við opnun hátíðarinnar.
Myndin hefur slegið í gegn og hafa nú
þegar 12 milljónir áhorfenda séð hana í
Frakklandi.
Íris Hólm til Litháen?
Söngkonan Íris
Hólm á lag í for-
keppni Eurovision
í Litháen, ásamt
upptöku og hljóð-
manninum Daða
Georgssyni. Íris er
þó ekki flytjandi
sjálf heldur verður
það flutt af litháískum flytjendum ef það
kemst í undankeppnina sjálfa. Fyrirkomu-
lagið í Litháen er þannig að almenningur
kýs um þau lög sem send hafa verið inn og
þau hlutskörpustu keppa í undankeppn-
inni. Nú stendur yfir kosning um hvaða lög
keppa um titilinn í Litháen og spennandi
verður að fylgjast með hvort lagið Sounds
Of Colors kemst alla leið.
Burns nótt á Kex Hostel
bakaðar kjúklingabringur
Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar með
ferskum kryddjurtum og rjómaosti. Gottimatinn.is
62 dægurmál Helgin 23.-25. janúar 2015