Fréttatíminn - 23.01.2015, Blaðsíða 21
ég vissi af var ég farin að kenna
jóga. Í kjölfarið var ég beðin
að skipuleggja ferð til Íslands í
gönguferðir um Ísland. Það er
mjög gott fyrir sönginn að hlaða
batteríin með jóga og ganga í
íslenskri náttúru. Ég ákvað að
gleyma því sem læknirinn sagði
um sjúkdóminn og nota jóga
sem heilunarleið.
Ég missti heyrn en ákvað
að láta það ekki hafa áhrif á
mig. Það er að verða algengt að
heyrnin skerðist hjá tónlistar-
mönnum, sérstaklega hljóðfæra-
leikurum, þar sem hávaðinn er
alltaf að verða meiri og eyrun
eru mjög viðkvæmt líffæri. Það
er bara spurning hvaða lífs-
viðhorf maður hefur, ég náði
jafnvægi og hef lært að lifa með
þessu,“ segir Guðrún og brosir.
„Þetta er ekki ósvipað og að
stunda afreksíþróttir. Glansmó-
mentið er stutt svo er hitt bara
vinna. Söngvari þarf að hugsa
vel um heilsuna, við eigum þetta
viðkvæma hljóðfæri sem við
þurfum stöðugt að passa. Sam-
keppnin í Evrópu er hörð og
stundum einmanalegt. Ég hef
alltaf trúað því að réttu verkefnin
komi til mín og er mjög þakklát
fyrir allt sem ég hef fengið að
gera. Ég hef ferðast út um allt
og kynnst frábæru fólki,“ segir
Guðrún.
Eva Magnúsdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Guðrún hefur komið fram
á fjölda tónleikum víða
um Evrópu, Bandaríkin
og Kanada og komið fram
í útvarpi og sjónvarpi. Ber
þar að nefna uppfærslur
á Carmina Burana í
útvarpssal útvarpsins í
Frankfurt og í Istanbúl,
í beinni útsendingu hjá
Hessischer Rundfunk,
tónleikaferð um Ítalíu
med Exultate Jubilate
eftir Mozart og tónleika
í Bayerische Staatsoper,
óperunni í Stuttgart og
Bayereuth, svo nokkur
dæmi séu nefnd.
Frá því Guðrún lauk námi
hefur hún starfað sem
söngkona og tekið þátt í
fjölmörgum óperuupp-
færslum í Þýskalandi,
Sviss, Englandi og Íslandi.
Meðal hlutverka:
Despina í Cosi fan
tutte.
Blondchen úr Brott-
náminu úr kvenna-
búrinu.
Næturdrottningin í
Töfraflautunni.
Gréta í Hans og Grétu.
Titania í Álfadrottn-
ingu Purcells.
Kurfürstin í Fugla-
fangara Zellers.
Adele í Leðurblökunni.
Samkeppnin
í söngheim-
inum á milli
söngkvenna
er mjög hörð
þar sem það
eru alltaf
miklu færri
kvenhlutverk.
Ljósmynd úr
einkasafni
Tapaði heyrn og notar
jóga sem heilun
Guðrún fékk atvinnusjúkdóm
tónlistarfólks, tinnitus, sem felur
í sér heyrnartap og suð í eyrum.
Læknirinn minn sagði mér að ég
myndi missa heyrn á öðru eyra
og sennilega hinu líka og þyrfti
trúlega að hætta að syngja. Það
var hrikalegt áfall að fá þennan
dóm en ég ákvað að láta það
ekki stjórna mér. Ég lokaði mig
af í nokkrar vikur lengst inni í
skógi á jógasetri og ákvað að
taka jógakennaranám. Áður en
viðtal 21 Helgin 23.-25. janúar 2015