Fréttatíminn - 23.01.2015, Blaðsíða 38
38 heilsa Helgin 23.-25. janúar 2015
Bleiugjöf fyrir
verðandi foreldra
Verðandi foreldrar þurfa að huga að mörgu áður en barnið þeirra kemur í heiminn. Bleiur eru
stór hluti af útgjöldum nýbakaðra foreldra og hefur ÍSAM ehf. síðastliðna mánuði gefið verðandi
foreldrum veglega gjöf sem hefur fengið mjög góð viðbrögð frá neytendum.
V ið hjá Ísam viljum létta und-ir með verðandi foreldrum með því að gefa þeim start-
pakka frá Pampers, en pakkinn
inniheldur meðal annars New Baby
bleiur, blautklúta, fjölnota Pampers
poka og áhugaverðan og fræðandi
bækling fyrir verðandi foreldra,“
segir Signý S. Skúladóttir, vöru-
merkjastjóri Pampers á Íslandi.
Rakadrægni og þægindi í fyrir-
rúmi
Markmið Pampers er að bjóða bestu
bleiur sem foreldrar geta valið fyrir
börnin sín. „Pampers hefur nú þró-
að nýtt og stærra yfirlag á bleiurnar
sem dregur bleytu hraðar frá við-
kvæmri húð barnsins. Húðin helst
þurr og barnið getur sofið ótruflað
lengur,“ segir Signý, en bleiurnar
veita allt að tólf tíma rakadrægni.
Mikil áhersla er lögð á að bleiurnar
séu einnig þægilegar fyrir börnin,
hvort sem er í leik eða hvíld.
Gæðastimpill
Pampers bleiur hafa fengið viður-
kenningu fyrir gæði frá Skin Health
Alliance, óháðum samtökum húð-
lækna, sérfræðinga og vísinda-
manna á því sviði. Viðurkenningin
staðfestir að bleiurnar uppfylla allar
þær öryggis- og gæðakröfur sem
gerðar eru til þeirra. Við veitingu
viðurkenningarinnar var fram-
leiðsluferlið allt einnig skoðað sem
staðfestir að þar er vel að verki stað-
ið allt frá hönnun vöru, framleiðslu
og á endanum förgun hennar.
Viðurkenningu Skin Health Alli-
ance var að sjálfsögðu tekið fagn-
andi af forsvarsmönnum Pampers á
Íslandi. „Þetta er góð viðurkenning
á því mikla starfi sem unnið hefur
verið við þróun á bleiunum. Viður-
kenningin staðfestir að hjá Pampers
er borin umhyggja fyrir börnunum
sem nota vörurnar og ekki síður
fyrir umhverfinu sem þau alast upp
í,“ segir Signý.
Verðandi foreldrar geta skráð sig
fyrir gjöfinni á www.ljosmodir.is
eða www.isam.is/pampers.
Unnið í samstarfi við
Ísam ehf.
BOSTON flug f rá
Tímabi l : mars - maí 2015
18.999 kr.
WASHINGTON flug f rá
Tímabi l : ma í 2015
17.999 kr.
AMSTERDAM flug f rá
Tímabi l : jún í - ágúst 2015
14.999 kr.
VARSJÁ flug f rá
Tímabi l : apr í l 2015
15.999 kr.
DUBLIN flug f rá
Tímabi l : jún í - ágúst 2015
9.999 kr.
ÚLLEN,
DÚLLEN
DOFF!
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Gerðu verðsamanburð,
það borgar s ig!