Fréttatíminn - 23.01.2015, Blaðsíða 42
42 fjölskyldan Helgin 23.-25. janúar 2015
Foreldrahlutverkið mikilvæga
S íðustu daga hef ég nánast verið óvinnufær af tómri hamingju. Ábyrgðin hvílir á agnarsmáum drengstaula sem skaust í heiminn fyrir fáeinum dögum. Ég er sem sagt amman hans og þótt að einkadóttir mín hafi þar með eignast sitt fimmta barn,
minnkar sturlun hamingjunnar ekki hætis hót. Þvert á móti.
Í tilefni af barnaauðlegð fjölskyldunnar lagði ég eyrun sérstaklega við tíðindum af fæð-
ingarorlofssjóði um að íslenskir feður nýti rétt sinn í æ minni mæli, síður en áður til sam-
veru við nýjan fjölskylduþegn. Ástæðan er auðvitað hin lágu laun frá sjóðnum sem konur
eru fremur vanar en karlar sem telja sig ekki hafa efni á að hrynja í launum í þrjá mánuði.
Þar af leiðandi taka konurnar hálft ár, lengja það gjarnan með að skipta heildartekjunum
á 9 eða 12 mánuði og bæta svo sumarleyfinu sínu við til að ná sem lengstum tíma heima
áður en litla fjölskylduhamingjan þarf að fara í „pössun“ sem er bæði vandfundin og
valkostir fáir. Svona er nú Ísland í dag. Svo eru fjölskyldurnar þar sem er aðeins eitt
foreldri og þá er ekkert í boði nema að axla framfærsluskylduna umfram hálfa árið.
Það er nefnilega „hitt“ foreldrið sem á þrjá mánuði til að ná upp í fullt fæðingarorlof –
réttur barnsins er ekki skilgreindur.
En ætlan mín var svosem ekki að útskýra fæðingarorlofið heldur að velta vöngum
yfir mikilvægi þess að þeir fullorðnu á heimilinu sem taka foreldrahlutverk að sér,
fái og geti sinnt því hlutverki. Það snýst ekki bara um mömmu og pabba eða einstætt
foreldri, heldur líka tvær mömmur, einstæðan pabba með hálfuppkomin ungmenni
eða unglingssnót heima hjá foreldri eða foreldrum sínum með nýburann sinn. Með
eða án fæðingarorlofs skiptir öllu að fólkið í foreldrahlutverkunum sé starfhæft og
gefi barninu athygli og örvun, nægan tíma til tengslamyndunar, þjónustu á hinum
ýmsu sviðum eftir þörfum og kröfum smámennisins og svo fyrst og síðast óendan-
lega ást.
Allt sem hér er að framan sagt dugir þó ekki til. Hamingjan á heimilinu skiptir
sköpum fyrir farsæld litla krílisins og hún skapast af þeim fullorðnu, í langflestum
tilvikum af parinu sem stendur að barninu. Ef foreldrarnir eru hamingjusamir og
ánægðir í parsambandinu, þ.e. ánægðir með makann og samhentir í þessu stóra
verkefni sem nýtt barn er ávallt, mun barnið finna sig öruggt og þroski þess og
vellíðan verður betri og meiri en hjá ungbarni sem býr hjá foreldrum sem eru neikvæðir
og óánægðir í sambandinu. Börn eru eins og barómet; þau skynja líðan þeirra sem annast
þau og mögulega vanlíðan hins fullorðna. Streita og kvíði á heimilinu eða spenna og sam-
skiptaleysi, hvað þá átök foreldranna – allt hefur þetta bein og neikvæð áhrif á líðan og
þar með framfarir barnsins.
Hamingja ykkar, kæru foreldrar, er sem sagt lykilatriði fyrir farsæld barnsins ykkar.
Það er hollt að muna þegar nýi einstaklingurinn er ekki lengur nýjabrum heldur kröfu-
harður tímaþjófur og athyglisrukkari, þegar vinnuálagið eykst stöðugt í umönnun og
verkefnum og þegar andvökunætur og eyrnabólgur skella á heimilinu. Langeinfaldasta
leiðin til að styðja ungbarnið er hreinlega að verða betri maki í sambandinu og verða þar
með betra foreldri fyrir mesta dýrmæti í heimi, lítið barn.
Hamingja ykkar, kæru foreldrar, er sem sagt lykilatriði
fyrir farsæld barnsins ykkar.
Hamingja fjölskyldu – farsæld barns
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
heimur barna
Hamingjan á
heimilinu skiptir
sköpum fyrir far-
sæld litla krílisins
og hún skapast af
þeim fullorðnu,
í langflestum
tilvikum af parinu
sem stendur að
barninu.
Ferðafélag barnanna var stofnað
árið 2009 á vegum Ferðafélags Ís-
lands en aðalmarkmið þess er að
hvetja börn og fullorðna til sam-
veru úti í náttúrunni. Meðal þess
sem er á döfinni hjá félaginu í vetur
eru norðurljósagöngur, hellaskoð-
un, snjóhúsagerð, blysganga og
fuglaskoðun. Á heimasíðu félags-
ins er að finna ýmis góð ráð fyrir
foreldra þegar kemur að útivist um
vetur.
FerðaFélag barnanna
Hollráð til útivistar um vetur
n Bakpokar eru ekki vatnsheldir svo það
þarf að pakka öllu sem ekki má blotna í
plastpoka ofan í pokann.
n Alltaf ætti að bæta á sig fötum í
stoppum. Líkaminn er fljótur að kólna
niður þegar hann er ekki á hreyfingu.
n Ullarfatnaður er að jafnaði besti
ferðaklæðnaðurinn enda heldur ullin
einangrunargildi sínu og er hlý þótt hún
sé vot.
n Gallabuxur eru aldrei leyfilegar á
fjöllum enda beinlínis lífshættulegt að
verða blautur í slíkri flík.
n Í miklum kulda á veturna er nauð-
synlegt að bera feitt krem, t.d. sérstakt
kuldakrem, á kinnarnar.
n Ef barnið á að bera bakpoka þá ætti
hann að vera mjög léttur. Barn undir átta
ára aldri ætti aldrei að bera meira en sem
nemur 1/10 af þyngd sinni.
n Ungum börnum finnst oft gaman að
ganga með einhvers konar létt stafprik,
t.d. úr bambus, trjágrein eða jafnvel bara
flugeldaprik sem þau geta notað til að
pota í það sem á vegi verður.
n Passið að börnin drekki vel á göngu.
Jafnframt þarf að passa upp á að þau
haldi ekki í sér pissi, því það getur leitt
til þess að þeim verði kalt og fái verk í
magann.
Styrkir til verkefna í þágu barna árið 2015
Barnavinafélagið Sumargjöf auglýsir hér með til umsóknar styrki á
sviði rannsókna, lista og þróunarverkefna í þágu barna.
Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að fylla út umsókn á
sérstöku eyðublaði sem vistað er á vef félagsins og senda
það síðan í viðhengi á tölvupóstfang Sumargjafar
sumargjof@simnet.is að lokinni útfyllingu. Nánari upplýsingar
er að nna á vef félagsins sumargjof.is.
Stjórn Sumargjafar áskilur sér rétt til að óska eftir nánari
upplýsingum um verkefnin og leita umsagnar fagaðila.
Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2015.
Reykjavík, 22. janúar 2015
Barnavinafélagið Sumargjöf
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Skyndihjálp
og
óhöpp í óbyg
gðum
Skyndihjálp og óhöpp í óbyggðum
Námskeið 3., 5. og 10. febrúar, kl. 18-22 í risi FÍ, Mörkinni 6.
Verklegt námskeið fyrir göngufólk í skyndihjálp og viðbrögðum við
óhöppum í óbyggðum. Eftir stutta upprifjun á grunnatriðum
skyndihjálpar er lögð aðaláhersla á raunhæf verkefni, fræðslu og
frásagnir af slysum á Íslandi og þannig reynt að æfa viðbrögð við
óhöppum. Námskeiðið endar á verklegri útiæfingu þar sem
þátttakendur þurfa að fást við slasaða ferðamenn.
Leiðbeinendur: Ævar og Örvar Aðalsteinssynir.
Sjá nánar á www.fi.is
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533 eða í netpóst
fi@fi.is
NÁMSKEIÐ
Skráðu þig in
n – drífðu þig
út
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Iana Reykjavík
Haust/Vetur 2014 ÚTSALA
Enn
Meiri
Afsláttur
50%
afsláttur
af
öllum
útsölu
vörum