Fréttatíminn - 23.01.2015, Blaðsíða 36
LONDON flug f rá
Tímabi l : apr í l - jún í 2015
9.999 kr.
BILLUND flug f rá
Tímabi l : jún í - ágúst 2015
9.999 kr.
STUT TGART flug f rá
Tímabi l : jú l í - ágúst 2015
15.999 kr.
SALZBURG flug f rá
Tímabi l : j anúar - mars 2015
21.999 kr.
KÖBEN flug f rá
Tímabi l : febrúar - maí 2015
9.999 kr.
ÞÚ
GETUR
FLOGIÐ!
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Gerðu verðsamanburð,
það borgar s ig!
36 ferðalög Helgin 23.-25. janúar 2015
Ferðalög Flogið verður beint Frá KeFlavíK til nær 60 staða
s umardagskrá flugfélaganna hefst í lok mars
og lýkur sjö mánuðum
síðar. Á þeim tíma
verður flogið 1202
sinnum frá Keflavík
til Lundúna, allt að
sex sinnum á dag til
Kaupmannahafnar og
svo bætast við nokkrir
nýir áfangastaðir.
Þeir sem eru á leið
til útlanda í vor, sumar
eða haust geta flogið
beint frá Keflavík til
nærri sextíu staða í
Evrópu og N-Ameríku.
Við þetta allt saman
bætast svo reglulegar
ferðir á vegum ferða-
skrifstofa til sólar-
stranda við Miðjarðar-
hafið. Það ætti að vera
nóg pláss fyrir þá sem
ætla að fara út fyrir
landsteinana því í vél-
unum verða sæti fyrir
ríflega tvær milljónir
farþega. Það er meira
fjórðungs aukning frá
síðustu vertíð.
Ekkert er auðveldara en að njóta lífsins í Róm og hrein-
lega borða sig í gegnum borgina. Það er algjör skylda að
gæða sér á pítsu í fæðingarlandi flatbökunnar og hlaða
batteríin með mat sem er rómaður um heim allan, áður
en haldið er af stað í skoðunarferð. Kólosseum, Trevi
gosbrunnurinn, Pantheon-hofið, Vatíkanið, Sixtínska
kapellan eru dæmi um perlur sem vert er að skoða.
Róm er höfuðborg Ítalíu og jafnframt stærsta og fjöl-
mennasta borg landsins og óhætt er að fullyrða að engin
önnur borg í heiminum geymir jafnmikið af sögulegum
og menningarlegum verðmætum og byggingarlist. Róm
hefur verið miðstöð evrópskra lista, menningar, hug-
myndafræði og byggingarlistar í yfir 3000 ár og hinn
sögulegi miðbær hennar er nú á lista UNESCO yfir
ómetanleg menningarverðmæti.
Sagt er að allir vegir liggi til Rómar en það er vissu-
lega þægilegra, og fljótlegra, að fljúga bara til þessarar
höfuðborgar heimsins. Hægt er að bóka ódýr flug með
WOW air til Rómar næsta sumar. Flogið er á Fiumicino-
flugvöllinn sem er í 26 km fjarlægð frá Róm og auðvelt
er að komast til borgarinnar með bíl eða lest, lestarferð-
in til miðbæjar Rómar u.þ.b. 30 mín. Fyrsta flug WOW
air til Rómar fer í loftið þann 26. júní og verðið er frá
18.999 kr. Það er um að gera að skella sér með og skoða
ríkidæmið Róm.
Unnið í samstarfi við
WOW air
Ríkidæmið Róm
Lj
ós
m
yn
di
r/
Th
in
ks
to
ck
ph
ot
os
.c
om
Þangað getur
þú flogið í sumar