Frjáls verslun - 01.11.2011, Blaðsíða 55
FRJÁLS VERSLUN 11. TBL. 2011 55
milljónir og eignir alls 4.650 milljónir. Svo
virðist sem það sé talsvert rekstrarvit hjá
mann viti!
iðnaðarkjarninn Skilar
meStum tekjum
Þau rekstrarsvið Mannvits, sem leiða tekju
öflun félagsins, eru iðnaður og orka en 44%
af tekjum mannvits komu frá iðnaðarkjarna
á síðasta ári og 33% frá orkukjarna. Hin
svið in fjögur eru því samtals með um 23%
tekna ársins 2010.
Mannvit býður í dag þjónustu sína á Ís
landi, í Bretlandi og Mið og AusturEvr
ópu. Sókn á erlenda markaði hefur haft í
för með sér töluverða endurskipulagningu
fyrir tækisins sem meðal annars mun sjá
stað í nýju skipuriti. Að sögn Eyjólfs er
sam keppnin mikil en tækifærin jafnframt
mörg. mannvit leggur áherslu á að vera
með starfsemi á þeim markaðssvæðum þar
sem fyrirtækið býður þjónustu sína og að
innlendir aðilar starfi þar hjá fyrirtækinu.
Mannvit er þekktasta íslenska ráðgjafar
fyrirtækið í jarðvarmageiranum bæði á
Íslandi og erlendis. Það sýndu niðurstöður
könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir
Íslandsbanka árið 2010 meðal þeirra sem
starfa við nýtingu jarðvarma í 30 lönd
um. könnunin sýndi að 65% svarenda
þekktu vel eða mjög vel til mannvits.
Velta mannvits í Bretlandi var að mestu
sam kvæmt áætlun á árinu 2010 en undir
áætlun í Mið og AusturEvrópu. Á Íslandi
var þjónusta í orku og iðnaði eins og gert
var ráð fyrir en þjónusta við veitufyrirtæki,
sveitarfélög og einkageirann dróst töluvert
saman. Unnið er að því að koma upp starf
semi á vegum mannvits í Chile með áherslu
á jarðvarmaverkefni.
Á árunum 2007 til 2009 var eyjólfur Árni
í stjórn Geysis Green energy hf. sem varð
umdeilt félag með háleit markmið. Eyj ólf
ur segir að það hafi verið lærdómsríkt að
fara í gegnum það ferli þótt hann játi að
hann hefði gjarnan viljað losna við sum
nám skeiðin! „Þegar upp var staðið töp uð
um við miklum fjármunum á okkar mæli
kvarða á þessu enda hrundi efna hags kerfi
heimsins í miðju kafi. Við teljum að það
hafi verið margt áhugvert og skyn samlegt í
þeim áformum sem þar lágu til grundvallar
en því miður gekk það ekki upp. Hugsunin
var rétt en eins og á stun dum við um okkur
Íslendinga hættir okkur til að gera hlutina
of hratt.“
80% StarfSmanna hafa lokið
háSkólanámi
Árið 2010 voru um 400 starfsmenn hjá
Mann viti en það er um það bil sami starfs
mannafjöldi og fyrir efnahagshrunið 2008.
Langflestir starfa á Íslandi þótt verkefnin
séu mörg hver alþjóðleg.
Alls starfar vel á fjórða tug erlendra
starfs manna hjá Mannviti og fer þeim fjöl g
andi með hverju árinu sem líður.
eyjólfur Árni segir að til að takast á við þau fjölbreyttu og krefjandi verkefni
sem upp koma hjá Mannviti dag hvern
þurfi starfsfólk með fjölbreyttan bakgrunn,
þekk ingu og reynslu og síðast en ekki síst
skiptir ólík menning máli. Ríflega 80% af
starfsfólki Mannvits hafa lokið há skóla
námi, langflestir í raunvísindum. Um 3%
hafa doktorspróf, 38% hafa lokið M.Sc. eða
MAgráðu og 40% hafa lokið B.Sc. eða
BAgráðu. Um 11% hafa lokið iðnnámi og
8% stúdents eða grunnnámi. Alls hafa
starfsmenn stundað nám við 60 háskóla í
17 löndum þannig að alþjóðlegur blær ríkir
hjá fyrirtækinu.
Að sögn eyjólfs Árna er góð blanda eldri
og reyndari starfsmanna hjá fyrirtækinu og
yngra starfsfólks sem er að hefja störf eftir
nám. Hann segir að fyrirtækið leggi mikla
áherslu á að eldri og reyndari starfsmenn
miðli af reynslu sinni til þeirra sem eru að
hefja störf og er yfirfærsla þekkingar mikil
vægur þáttur í fræðsluáætlun mannvits.
Rífl ega helmingur starfsfólks Mannvits
hef ur starfað hjá fyrirtækinu í yfir fimm ár
og yfir þriðjungur hefur unnið í sinni grein
í meira en fimmtán ár.
eyjólfur segir að í fyrirtækinu ríki afar
góður starfsandi og líflegt félagslíf. Starfs
mennirnir taki alvarlega gildi mannvits,
sem eru traust, víðsýni, þekking og síð ast
en ekki síst: gleði. „Þá má einnig nefna að
efnahagshrunið hafði í för með sér tals
verða breytingu á samsetningu verk efna og
starfsmennirnir reyndust afar sveigjanlegir
og ósérhlífnir við þessar að stæður. Fjöl
margir þeirra einhentu sér í annars konar
verkefni en þeir voru vanir.“
ÞriðjunGur StarfSmanna
hluthafar
Hluthafar mannvits eru um 130 talsins, allt
starfsmenn hjá félaginu. lætur því nærri að
þriðjungur starfsmanna sé í hluthafahópi
félagsins, sem verður að teljast óvenjulegt.
eyjólfur Árni segir að hjá félaginu ríki
nokk urs konar „partners“fyrirkomulag
eins og menn þekkja hjá lögfræði og
end urskoðendastofum. Ákveðnar reglur
eru um hvernig starfsmenn ganga inn í
Eyjólfur segist vel
hafa getað hugsað
sér aka dem ískan
feril en smátt og
smátt hafi stjórn-
un in tekið yfir.
Hann var með
stunda kennslu við
Háskóla Ís lands
um tíma og sit -
ur nú í stjórn Há -
skólans í Reykja -
vík þannig að
akademían hef ur
ekki alveg horfi ð.
AfkomA ársins 2011:
áæTluð velTA 8,4 milljArðAr krónA
og horfur fyrir yfirstandandi ár eru ekki síðri eins og áður segir.
Samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri, sem lá fyrir í upphafi desember,
eru horfur á að heildarvelta samstæðunnar árið 2011 verði 8.400
milljónir króna sem jafngildir aukningu veltu upp á 28%.
• Áætluð velta þessa árs 8.400 milljónir.
• Áætlaður hagnaður tæpar 900 milljónir króna fyrir skatta.
• Ef þetta gengur eftir verða skammtímaskuldir aðeins 1.350 milljónir
króna og fastafjármunir 2.450 milljónir króna í árslok.
• Eigið fé er talið verða 2.100 milljónir og eignir alls 4.650 milljónir.
Svo virðist sem það sé talsvert rekstrarvit hjá Mannviti!