Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 97

Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 97
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 97 Lífsstíll Áslaug Pálsdóttir og eiginmaðurinn, Þórir Kjartansson, í Jökulárgili í Landmannalaugum. „Það gefur mér mikið að vera í kringum dýr – að vera með góðan hest, vinna með hann og ná sambandi við hann.“ Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna, segir að á sínu heimili sé margt eldað eftir stemningu og hvað sé til án þess að nokkur uppskrift komi við sögu. „Það er helst að ég noti uppskriftir við bakstur. Bakstur er líka ágætis búbót þegar almennilegt brauð er farið að slaga í fimmhundruð kallinn. Ég fékk þessa uppskrift fyrir nokkrum árum hjá Margréti, systur minni, sem býr á Gautlöndum í Mývatnssveit og þess vegna gengur brauðið undir nafninu Möggubrauð hjá okkur. Þetta brauð baka ég oft, það er mjög gott og saðsamt og svo finnst mér kostur að það skuli vera gerlaust. Sumir þola ger ekki vel og þetta er mjög fyrirhafnarlítið. Bara að hræra og baka; ekkert að hefa og bíða. Þetta er svona uppskrift sem tekur breytingum eftir því hvaða mjöl er til í skápnum og ég set oft í það hafra, rúg eða bygg og skipti einhverju út í staðinn. Maður þarf aðeins að prófa sig áfram með mismunandi korntegundir, t.d. getur maður þurft að baka það aðeins lengur ef í því er rúgur eða bygg.“ Svanhildur segir að brauðið haldi sér vel en sé auðvitað langbest glænýtt og volgt með smjöri og osti. Möggubrauð 2 bollar spelt 1 bolli heilhveiti 1 bolli hveitiklíð 1 bolli súrmjólk Sléttfull tsk natron 3 tsk lyftiduft ¼ tsk hjartarsalt 1 tsk salt 1 msk púðursykur 1 bolli mjólk Bakað í 45 mínútur við 180° Sett í jólakökuform. Þessi uppskrift miðast við tvö lítil form. Það má leika sér með þurrefnin, t.d. setja einn bolla af spelti og tvo af heilhveiti eftir smekk, setja hafragrjón í staðinn fyrir hluta af spelthveitinu eða jafnvel rúgmjöl. Gott er að pensla brauðið með mjólk eftir bakstur til að mýkja skorpuna að ofan. Undanfarin ár hefur Áslaug og fjölskylda átt nokkra hesta og í hópnum er meri sem að sögn Áslaugar er í „folaldaeignum“. „Það er því viðbúið að hestunum fjölgi í framtíðinni,“ segir framkvæmdastjórinn. „Það gefur mér mikið að vera í kringum dýr, – að vera með góðan hest, vinna með hann og ná sambandi við hann.“ Hestarnir eru á sumrin í Landsveit þar sem fjölskyldan á land og þaðan er farið bæði í styttri og lengri ferðir. Hestaferðir segir Áslaug vera toppinn á tilverunni en hún hefur kynnst ýmsum stöðum á landinu. „Þetta eru mislangar ferðir en að fara í hestaferð á góðum hestum, í fallegri náttúru og í góðra vina hópi gefur lífinu gildi.“ Hún nefnir sérstaklega Löngufjöru á Snæfellsnesi en að ríða þar segir hún hafa verið magnaða upplifun. Uppáhaldsstaðurinn til útreiða er samt Landsveitin og Landmannaafréttur en hestaferðir á þeim slóðum eru orðnar margar. Þegar Áslaug er spurð hvað hesturinn sé í hennar huga segir hún: „Þetta er ótrúlega magnað dýr. Krafturinn og geðslagið í íslenska hestinum er frábært. Hæfileikarnir eru miklir og hestarnir verða miklir vinir manns.“ Sælkeri mánaðarins heimabaKað möggubrauð Svanhildur Hólm Valsdóttir er sælkeri mánaðarins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.