Frjáls verslun - 01.11.2007, Page 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
ársinsMenn20 ár
Pálmi Jónsson heitinn, stofnandi og
aðaleigandi Hagkaups, var valinn maður ársins
í íslensku viðskiptalífi af Stöð 2 og Frjálsri
verslun árið 1990. Svaraði Pálmi á sínum
tíma örfáum spurningum Frjálsrar verslunar í
tilefni af valinu. Var hann fyrst spurður að því
hvort hvarflað hefði að honum við stofnun
póstverslunarinnar Hagkaups, að hún ætti eftir
að verða leiðandi á sínu sviði og ná fjórðungi
matvörumarkaðar á höfuðborgarsvæðinu.
„Nei, það datt mér nú sjálfsagt ekki í hug,“
svaraði hann.
Athygli vakti á sínum tíma að Pálmi var
ekki með skrifstofu og sagði í viðtalinu að
slíkt hefði marga kosti. „Fyrir utan að verja
mann fyrir rukkurum og blaðamönnum, þá
veldur það því að maður er miklu meira á
ferðinni um fyrirtækið og sér með eigin augun
vandamálin sem þarf að leysa og er því fljótari
að bregðast við þeim. Við í Hagkaupi köllum
þetta Rekstur á röltinu,“ sagði hann.
Pálmi stofnaði póstverslun á
haustmánuðum árið 1959 og nefndi Hagkaup
og fékk inni með starfsemina í gripahúsum
Geirs bónda Gunnlaugssonar í Eskihlíð. Árið
1964 var sett á laggirnar saumastofa á vegum
Hagkaups og hafin sala á hinum landsfrægu
Hagkaupssloppum og jafnframt hafin verslun
með fatnað í Lækjargötu 4, þar sem einkum
var höfðað til ungs fólks. Árið 1970 opnaði
fyrirtækið 600 fermetra verslun í Skeifunni og
komu 5-6 þúsund manns þangað á hverjum
föstudagssíðdegi til þess að versla. Árið 1985
stofnaði Hagkaup dótturfyrirtæki um sölu á
vörum frá IKEA og flutti verslunina í Hús
verslunarinnar, þar sem 15.000 manns komu í
heimsókn fyrsta daginn, svo eitthvað sé nefnt.
Í umfjöllun dómnefndar um val á manni
ársins sagði meðal annars: „Hagkaup hefur alla
tíð verið í eigu Pálma Jónssonar og fjölskyldu
og er nú langstærsta og öflugasta einkafyrirtæki
landsins ... Framsýni og frumkvæði Pálma
kom glöggt í ljós þegar hann réðist í að byggja
Kringluna, stærstu verslunarmiðstöð landsins,
fyrir nokkrum árum. Hún var tekin í notkun
árið 1987 og sýna vinsældir hennar að þörf var
fyrir þessa aðstöðu. Bygging Kringlunnar var
mikið átak.“
Árið 1990: Pálmi Jónsson
stofnandi Hagkaups
Pálmi Jónsson
Pálmi Jónsson féll frá á 68. aldursári
í byrjun apríl árið 1991. Árið 1998
seldi fjölskylda Pálma Jónssonar
Kaupþingi og Fjárfestingabanka
atvinnulífsins allan eignarhlut
sinn í Hagkaupi og var einnig
gengið frá kauprétti á eignarhlut
fjölskyldunnar í Bónusi sf. Var
markmiðið að sameina Hagkaup
og Bónus sem gekk eftir í júní
þegar Baugur var stofnaður. Þegar
kaupin voru tilkynnt sagði Sigurður
Gísli Pálmason, stjórnarformaður
Hagkaups, ákvörðunina hafa átt
sér langan aðdraganda því Pálmi
Jónsson heitinn hefði talið að
rétt væri að gera Hagkaup að
almenningshlutafélagi þegar fram
liðu stundir. Hlutabréf í Baugi voru
afskráð af aðallista Kauphallarinnar í
júlí árið 2003 þar sem einn hluthafi,
Mundur ehf., hafði eignast yfir 90%
hlutafjár í félaginu. Að Mundi ehf.
stóðu þá Fjárfestingarfélagið Gaumur
ehf. og tengdir aðilar, Kaupþing
banki hf., Eignarhaldsfélagið Vor
ehf., Eignarhaldsfélagið ISP ehf. og
Ingibjörg S. Pálmadóttir.
1990Útnefningar í