Frjáls verslun - 01.11.2007, Síða 49
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7 49
ársinsMenn Útnefningar í 20 ár
Feðgarnir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir
Jóhannesson kaupmenn í Bónus voru útnefndir
menn ársins í íslensku viðskiptalífi árið 1997
af Frjálsri verslun, þá 57 ára og 29 ára gamlir.
Hlotnaðist þeim sá heiður fyrir góðan árangur,
athafnasemi og einskæran dugnað í rekstri. Á
árinu hafði þeim auðnast að auka veltu Bónuss
um 1.200 milljónir króna og stefndu í sex
milljarða veltu og höfðu þar að auki vaxið úr
engu í að vera 26. stærsta fyrirtæki landsins
á aðeins níu árum. „Og fyrir níu árum var
Jóhannes Jónsson atvinnulaus maður sem fékk
lánað fé hjá móður sinni til þess að stofna lítið
fyrirtæki með syni sínum. Það hlaut nafnið
Bónus,“ sagði meðal annars í forsíðuumfjöllun
í Frjálsri verslun í tilefni af útnefningunni. „Ég
vann með skóla frá barnsaldri, með öðrum
störfum og síðan í fullu starfi frá miðjum
sjöunda áratugnum og varð verslunarstjóri
1967. Ég get því sagt að ég sé búinn að
starfa við verslun frá því skömmu eftir lok
seinni heimsstyrjaldarinnar,“ sagði Jóhannes
meðal annars. Jón Ásgeir skaut föður sínum
hins vegar ref fyrir rass að nokkru leyti þar
sem hann kvaðst muna eftir sér fyrst sex ára
gömlum við að fylla á kókkælinn í Austurveri
þar sem faðir hans var verslunarstjóri. Jón
Ásgeir hóf feril sinn á göngunum í Austurveri
því þar var hann með lítinn vagn, seldi popp
og pylsur og fleira og átti síðan svipaðan vagn á
Eiðistorgi. „Mér þótti þetta alltaf skemmtilegt.
Þarna fékk maður svolítinn vasapening fyrir
að fylla á og hjálpa til. Mér hefur alltaf þótt
gaman að versla.“
Vorið 1989 höfðu feðgarnir eina milljón
milli handa til þess að byrja reksturinn. „Við
ætluðum að koma upp lágverðsmarkaði sem
við gætum báðir lifað af með svona kannski
tvo starfsmenn. Ég man að við reiknuðum
með að við þyrftum að selja fyrir 7 milljónir
á mánuði til þess að dæmið gengi upp.
Það fór svo að við seldum fyrir 7 milljónir
fyrstu vikuna og tæpar 30 milljónir fyrsta
mánuðinn.“
Árið 1997: Jóhannes Jónsson
og Jón Ásgeir Jóhannesson í Bónus
1997
Tókum stoltir við
viðukenningunni
Jóhannes Jónsson segir að
útnefningin menn ársins í
íslensku viðskiptalífi fyrir tíu
árum hafi verið ánægjuleg.
„Þetta var ágætis upphefð á
sínum tíma og við tókum stoltir
við þessari viðurkenningu. Mér
er líka minnisstæð myndatakan
fyrir forsíðu blaðsins, þar sem
ég hélt á grís í fanginu, en hann
varð alveg kolvitlaus þegar
flassið kom og lét öllum illum
látum. Hann var ekki kyrr nema
þetta eina augnablik.“
Hvar eru þeir núna?
Umsvif Jóhannesar og Jóns Ásgeirs
hafa margfaldast á síðastliðnum tíu
árum en þegar þessi umfjöllun birtist
á sínum tíma náði útrás þeirra
feðga einungis til Færeyja. Baugur
Group er alþjóðlegt fjárfestingafélag
með áherslu á fjárfestingar í
smásöluverslun, fasteignarekstri
og fjölmiðlun á Íslandi og í Norður-
Evrópu. Hjá fyrirtækjum sem
Baugur Group er kjölfestufjárfestir
í starfa um 75 þúsund manns
í yfir 3.900 verslunum. Velta
fyrirtækjanna nam á síðasta
rekstrarári um 1.200 milljörðum
króna. Meðal helstu fjárfestinga
á sviði fasteigna má nefna
fasteignafélögin Landic, Smáralind
og Eik sem og þróunarfélögin
Þyrpingu og Nordicom. Einnig á
Baugur stóra hluti í 365 hf., Teymi
hf. og FL Group. Jón Ásgeir er
stjórnarformaður 365 og Baugs
Group og nýorðinn stjórnarformaður
FL Group. Jóhannes Jónsson er
jafnan kenndur við Bónus, en er
jafnframt stjórnarformaður Haga
og situr í stjórn Baugs Group og
Húsasmiðjunnar. Þá stýrir hann
styrktarsjóði Baugs sem úthlutar
100 milljónum árlega til ýmissa
málefna.