Frjáls verslun - 01.11.2007, Page 57
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7 57
ársinsMenn Útnefningar í 20 ár
Menn ársins í íslensku viðskiptalífi árið 2002
voru félagarnir í Samson, Björgólfur Thor
Björgólfsson, Björgólfur Guðmundsson og
Magnús Þorsteinsson. Höfðu þeir vakið
heimsathygli í byrjun ársins og verið í
sviðsljósinu af og til eftir það. Í byrjun febrúar
ársins 2002 höfðu þremenningarnir skrifað
undir einn stærsta samning sem íslenskir
athafnamenn hafa undirritað, er þeir seldu
bjórverksmiðjuna Bravo International í
Pétursborg í Rússlandi til Heineken fyrir 40
milljarða á þávirði. Þá höfðu Björgólfsfeðgar
gert Pharmaco að stóru alþjóðlegu lyfjafyrirtæki
og öðru verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni
á örfáum árum. Einnig bauðst Samson
eignarhaldsfélag til þess að kaupa annan
hvorn eða báða ríkisbankana sem þá stóð til
að einkavæða og hófust samningaviðræður
um kaup á Landsbanka Íslands, sem lauk
með því að í október árið 2002 var skrifað
undir samkomulag um kaup á 45,8% hlut í
bankanum fyrir 12,3 milljarða króna. Einnig
keypti Magnús Þorsteinsson 50,5% hlut í
flugfélaginu Atlanta og Björgólfur eldri eignaðist
68% í útgáfufélaginu Eddu. Árið var því þeirra
svo um munaði.
Þremenningarnir höfðu kynnst 10-11 árum
fyrr í drykkjarvörudeild Pharmaco, eða Gosan
og Viking Brugg, og fór strax vel á með þeim,
að sögn. Svo vel að þeir líktu sér við Ríó tríóið
og hljómsveitina Þrjú á palli í forsíðuumfjöllun
Frjálsrar verslunar vegna útnefningarinnar. „Þeir
vissu strax hvað þeir vildu og hvert þeir vildu
stefna og hafa unnið markvisst að því, algjörlega
ósmeykir við að fara utan og takast á við ný
verkefni og framandi aðstæður.“
Árið 2002: Björgólfur Thor Björgólfsson,
Björgólfur Guðmundsson og
Magnús Þorsteinsson í Samson
Hvar eru þeir núna?
Landsbankinn og tengdir
aðilar eignuðust ráðandi
hlut í Hf. Eimskipafélagi
Íslands í september 2003
og árið 2005 seldi Magnús
Þorsteinsson 14,5% hlut
sinn í Samson Holding.
Magnús Þorsteinsson
er stjórnarformaður
Eimskips, stjórnarformaður
Icelandic Group og
stjórnarformaður Excel
Airways Group. Björgólfur
Guðmundsson er formaður
bankaráðs Landsbankans
og hefur fjárfest í
Árvakri, útgáfufélagi
Morgunblaðsins og 24
stunda síðastliðið ár og
varð jafnframt aðaleigandi
knattspyrnufélagsins West
Ham fyrir ári. Björgólfur
Thor Björgólfsson á
umtalsverðan hlut í Actavis,
þar sem hann er jafnframt
stjórnarformaður. Einnig á
hann talsvert stóra hluti
í fjarskiptafyrirtækjum
í Finnlandi, Póllandi,
Tékklandi, Búlgaríu og
Grikklandi í gegnum
breska fjárfestingafélagið
Novator, þar sem hann
er aðaleigandi. Björgólfur
Thor hefur ennfremur verið
stjórnarformaður Straums
frá því í október árið 2005.
Feðgarnir Björgólfur eldri
og yngri voru báðir á lista
Forbes yfir milljarðamæringa
heimsins í febrúar á þessu
ári, Björgólfur Thor í 249.
sæti og Björgólfur eldri í
799. sæti, en þeir komast
á listann sem eiga eignir
metnar eru á einn milljarð
Bandaríkjadala að lágmarki.
2002