Frjáls verslun - 01.11.2007, Qupperneq 99
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7 99
E
lín Þórðardóttir tók nýverið við störfum
sem forstjóri Opinna Kerfa Group hf. í stað
Gylfa Árnasonar og mun jafnframt gegna
störfum stjórnarformanns í dótturfélögum
Opinna Kerfa Group; Kerfi AB í Svíþjóð
og Kerfi AS í Danmörku. Elín er rekstrarhagfræðingur
að mennt frá háskólanum í Álaborg og hefur fengist
við umbreytingar í fjölda íslenskra fyrirtækja, meðal
annars hjá Dagsbrún og Eimskip. Auk þess situr hún í
stjórn ýmissa fyrirtækja, t.d. Landic Property og Nikita.
Raungreinafjölskylda með meiru
Elín er borinn og barnfæddur Kópavogsbúi,
þar fæddist hún 6.júlí árið 1963, dóttir hjónanna
Sigríðar Jónsdóttur og Þórðar Jörundssonar, fyrrum
menntaskólakennara. Hún er næstyngst systkinanna,
hin eru Egill verkfræðingur, Jörundur stærðfræðingur,
Ari framkvæmdastjóri Hreint og Dofri verkfræðingur.
Elín segir það að vera eina systirin í systkinahópnum
hafa ekki veitt sér neinn afslátt, en elstu tveir bræður
sínir hafi látið svolítið meira með sig en hina bræður
sína, en það þýddi bara enn meiri baráttu á milli þeirra
þriggja yngstu. Þetta hafi reynst sér ágætis vegarnesti og
kennt sér að í lífinu þurfi maður oft að berjast fyrir sínu
og geti ekki gert ráð fyrir að fá allt upp í hendurnar.
Elín gekk í Barnaskóla Kópavogs og fór eftir það
í Gagnfræðaskóla Kópavogs – Víghólaskóla. Eins
og svo algengt var á þessum tíma og vegna mikillar
þarfar til að vera fjárhagslega sjálfstæð bar Elín út
blöð frá níu til þrettán ára aldurs, nýtti aukablöðin
í sína eigin áskrifendur, passaði börn eitt sumar og
starfaði síðan hjá Byko og síðar Eimskip á sumrin og
með skóla.
Að loknu grunnskólanámi settist Elín á skólabekk
í Menntaskólanum í Reykjavík á eðlisfræðibraut 1 og
lauk þaðan stúdentsprófi árið 1983. Á þeim árum dvaldi
hún eitt sumar í Danmörku og annað í Þýskalandi til
þess að læra tungumálin betur. Hún segir þetta hafa
verið skemmtileg og viðburðarík sumur, en afar ólík,
Danir taki lífið mátulega alvarlega og kunni að njóta
líðandi stundar en Þjóðverjar séu mjög nákvæmir og
skipulagðir.
Hún segir raungreinarnar hafa legið nokkuð beint
við enda faðir sinn stærðfræðikennari og bræðurnir
verk-, stærð-, og tæknifræðingar. Raungreinaáhugann
segir hún ekki hafa svo mikið með gen að gera heldur
frekar að vera opinn fyrir því að stærðfræði og aðrar
raungreinar séu skemmtilegar því þannig reynist þær
auðveldari. Sér hafi fundist mikilvægt að halda öllum
dyrum opnum varðandi framhaldsnám og lagði því
Elín Þórðardóttir, nýráðinn forstjóri Opinna Kerfa Group hf., er
Kópavogsbúi í húð og hár. Hún er komin af raungreinafjölskyldu með
meiru. Þótt hún hafi starfað sem framkvæmdastjóri hjá Íslenskri
erfðagreiningu segir hún raungreinaáhugann ekki hafa svo mikið með
gen að gera heldur frekar að vera opinn fyrir því að stærðfræði sé
skemmtileg og þannig verði hún auðveldari.
texti: maría ólafsdóttir • Mynd: geir ólafsson
NærmyNd af ElÍNu Þórðardóttur:
KjöRKuð og fylgin séR
n æ r m y n d