Frjáls verslun - 01.11.2007, Side 100
100 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
n æ r m y n d
áherslu á að taka eins mikla stærðfræði og eðlisfræði og
mögulegt var.
Elín var þó ekki fullviss um hvert hugurinn stefndi að loknu
stúdentsprófi en var þó einna helst á því að leggja lögfræðina
fyrir sig. Það varð þó úr að hún prófaði að sitja tíma í ýmsum
greinum í Háskóla Íslands, meðal annars verk-, tölvunar- og
lögfræði. Loks varð þó rekstarhagfræðin fyrir valinu og ákvað
Elín að stunda nám í greininni í háskólanum í Álaborg í
Danmörku. Þaðan lauk hún BS-gráðu í rekstrarhagfræði árið
1987 og mastersgráðu í stjórnun og stefnumótun fyrirtækja
árið 1989.
Elín segist hafa valið háskólann í Álaborg því að þar var
lögð áhersla á að nemendur tækju virkan þátt í atvinnulífinu
auk hefðbundinna fyrirlestra. Þetta hafi verið ný nálgun í
náminu á þessum tíma og komið sér vel þegar út í atvinnulífið
kom að loknu námi. Elín var virk í stúdentapólitíkinni, var í
framboði í háskólanum öll árin og sat í hinum ýmsu ráðum
og nefndum háskólans. Elínu líkaði dvölin í Danmörku vel
og fannst gott að búa í danska háskólabænum sem fyllist af lífi
yfir vetrartímann.
Ráðgjöf og endurskipulagning
Að loknu námi sneri Elín heim og hóf störf hjá Eimskip þar
sem hún starfaði í ýmsum deildum. Hún hefur komið víða
við í íslensku atvinnulífi. Hún starfaði sem fjármálastjóri hjá
B&L hf. 1992-1997, síðan hjá Íslenskri erfðagreiningu, fyrst
sem fjármálastjóri og síðan framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.
Störfuðu um 60 manns hjá fyrirtækinu þegar Elín hóf störf
en um 700 manns þegar hún lét af störfum. Hún starfaði því
í miðri hringiðunni og tók þátt í að skipuleggja uppbyggingu
fyrirtækisins sem hún segir hafa verið frábærlega skemmtilegt
og mikla reynslu.
ari Þórðarson, bróðir Elínar:
Foringinn í systkinahópnum
Elín er náttúrulega besta systir mín, en ég er í miðjum
systkinahópnum og hún er tveimur árum yngri en ég, svo við
höfum verið meira og minna samferða alla tíð. Elín er mjög
dugleg en um leið dálítil skorpumanneskja sem leyfir sér að taka
hlé inn á milli. Hún er einstaklega hjálpsöm og mjög fylgin sér
og ákveðin sem ég held að nýtist henni vel í starfi. Þá kemur
varla á óvart að mér finnst hún skemmtileg og hún er ekkert
of alvarleg, alla vega ekki við stóra bróður sinn. Bæði erum við
óþolinmóð og viljum að hlutirnir gangi hratt fyrir sig. Ég held að
í starfi eins og hennar þurfi maður fyrst og fremst að hafa þor og
kjark og vera viðbúin þeirri fyrirstöðu sem ég held að fólk hljóti
að finna fyrir í slíku starfi. Þó Elín sé ekki gömul er hún heldur
ekki kornung og maður myndi kannski halda að fólk sem er
komið á fimmtugsaldurinn færi að hægja á sér en það er frekar
að hún sé að spýta í. Við eigum í daglegum samskiptum enda
búum við hlið við hlið með fjölskyldurnar á okkar æskuslóðum.
Þórdís Sigurðardóttir,
stjórnarformaður Opinna kerfa Group:
Hugsar vel um heilsuna
Ég vissi fyrst af Elínu þegar hún vann hjá decode og hafði
heyrt af henni í gegnum viðskiptalífið, en við kynntumst
fyrst þegar hún fór að vinna hjá dagsbrún þar sem ég var
þá stjórnarformaður. Okkar daglegu samskipti eru mest
viðskiptalegs eðlis en ég er nú stjórnarformaður Opinna kerfa
Group þar sem hún er forstjóri og við tölum mikið saman um
það sem er efst á baugi hverju sinni, bæði á formlegum og
óformlegum fundum. Elín er mjög óhrædd við að taka ákvarðanir,
hún er fylgin sér og er fljót að greina aðstæður og koma með
tillögur til úrbóta. Hún getur líka troðið fólki um tær og finnst
mörgum það vont, en það fylgir einfaldlega hennar starfi. utan
vinnunnar höfum við helst hist í ræktinni þar sem við eigum það
sameiginlegt að hugsa vel um heilsuna og sláum við þá gjarnan
tvær flugur í einu höggi og fáum okkur hádegismat um leið.
S
a
G
t
u
m
E
lÍ
N
u
: