Læknablaðið - 01.02.2014, Page 9
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
LÆKNAblaðið 2014/100 73
Jaydess®
13,5 MG LEVONORGESTREL
1. Gemzell-Danielsson K, et al. Fertil steril 2012; (97): 616-622. e3.
Smálykkjan Jaydess® veitir örugga
vörn gegn þungun í allt að þrjú ár
Lítil og auðveld í uppsetningu1
Lítið magn hormóna og verkun
að mestu staðbundin
Rannsökuð hjá konum sem hafa fætt barn
sem og þeim sem ekki hafa fætt barn
-Jaydess® er ekki fyrsta val fyrir konur
sem ekki hafa fætt barn, vegna
takmarkaðrar klínískrar reynslu
Nýjung!
Upplýsa ber notendur um hættu
á utanlegsfóstri og einkenni þess
L.
IS
.12
.2
0
13
.0
0
4
8
Í þessu tölublaði Læknablaðsins er birt yfir-
litsgrein um krabbamein í ristli og enda-
þarmi, höfundar hafa gert efninu góð skil,
en þurft að stikla á stóru þar sem efnið er
víðfemt og flókið. Í leiðaranum mun ég
minnast á þá tvo þætti sem mest geta bætt
horfur og meðferð þessa sjúklingahóps á
Íslandi en það er skimun og gæðaskráning.
Staðfest er að skimun eftir blóði í hægð-
um eða með bugaristilspeglun lækkar
dánartíðni af völdum sjúkdómsins. Sú
aðferð sem er nákvæmust til greiningar
á ristilsepum og krabbameini er ristil-
speglun. Skimun með ristilspeglun er hins
vegar kostnaðarsöm fyrir þjóðfélagið og
umfangsmikil fyrir einstaklinginn sem
í um helmingi tilfella mætir því ekki til
skimunar.
Til þess að auka skimunarhlutfallið ætti
að bjóða upp á fleiri tegundir skimunar
þannig að einstaklingurinn geti valið þá
aðferð sem hentar honum best og bætast þá
við skimunaraðferðir eins og leit að blóði í
hægðum, bugaristilspeglun eða sneiðmynd
af ristli ásamt endaþarmsspeglun. Erfiðara
getur reynst að skipuleggja slíka skimun en
þó er líklegra að hún sé vænlegri til árang-
urs ef ná á til allra í þjóðfélaginu.
Læknar á Íslandi hafa lengi barist fyrir
því að koma á skimun fyrir ristil- og enda-
þarmskrabbameini samanber samantekt
starfshóps á vegum Landlæknisembættis-
ins árið 20011 og grein í Læknablaðinu árið
2006.2
Þó að það hafi ekki enn verið sýnt í verki
er vilji fyrir því hjá heilbrigðisyfirvöldum
að koma á laggirnar skimun fyrir ristil- og
endaþarmskrabbameini, samanber drög að
heilbrigðisáætlun fram til ársins 2020.3
Eins og staðan er í dag er skimun ein-
ungis framkvæmd hjá einstaklingum sem
sjálfir óska þess eða samkvæmt læknis-
ráði. Betra væri ef heilbrigðisyfirvöld væru
ábyrg fyrir skipulagðri skimun og ættu
þau þegar í stað að byrja slíka undirbún-
ingsvinnu. Eðlilegast væri að leitarstöð
Krabbameinsfélagsins myndi halda utan
um leitina og má lesa í stefnumótun félags-
ins fyrir árin 2010-2014 skýran vilja til að
beita sér fyrir því.4
Ef nefna á einhvern einn þátt sem hefur
bætt meðferð sjúklinga með ristil- og enda-
þarmskrabbamein hér í Svíþjóð þá er það
gæðaskráning. Slík skráning hefur verið við
lýði á landsvísu frá 1995 fyrir endaþarms-
krabbamein en fyrir ristilkrabbamein hófst
skráningin í nokkrum landshlutum 1997 en
frá 2007 hefur hún verið sameiginleg fyrir
alla Svíþjóð.
Í stuttu máli má segja að markmið
gæðaskráningarinnar sé að öðlast yfirsýn
yfir læknismeðferð sjúklinga með ristil- og
endaþarmskrabbamein og meta árangur
meðferðar en þessir þættir geta leitt til
bættrar meðferðar og myndað gagnagrunn
sem nota má til rannsókna og við gerð klín-
ískra leiðbeininga.5
Árlega eru unnar skýrslur úr gæða-
skránni, bæði fyrir allt landið og fyrir
hvert hinna 6 landsvæða innan Svíþjóðar
sem standa að skráningunni. Við útkomu
skýrslunnar eru haldnir fundir þar sem öll-
um læknum sem standa að meðferð þessara
sjúklinga er boðið til að meta niðurstöður
og koma sér saman um bætta meðferð og
skráningu á sjúkdómnum.
Á hverju ári eru valdar vissar breytur úr
skránni og unnin úr þeim stigagjöf, þannig
að viðkomandi landshluti eða sjúkrahús
getur metið gæði og árangur sinnar með-
ferðar og borið saman við allt landið eða
sjúkrahús af sömu stærðargráðu. Dæmi
um slíkar breytur eru fjöldi skoðaðra eitla,
staðbundin endurkoma krabbameins eftir
þrjú ár og biðtími frá aðgerð til upphafs
krabbameinslyfjameðferðar.
Viðkomandi sjúkrahús geta þannig ein-
beitt sér að því að bæta þá liði í meðferðinni
sem ekki standast þær kröfur sem gerðar
eru, og um leið haldið áfram með óbreytta
meðferð þar sem gæðakröfur standast.
Skráningin hefur gengið í gegnum tals-
verðar breytingar á þessum árum og er orð-
in mun nákvæmari og þar með viðameiri.
Meginþungi skráningarinnar hefur hingað
til snúið að starfi skurðlækna og meina-
fræðinga en mun nú einnig gera meiri
kröfur til myndgreiningar- og krabba-
meinslækna.
Gæðaskráning á krabbameinsmeðferð
á Íslandi myndi án efa leiða í ljós bæði já-
kvæða og neikvæða þætti og þar með gera
læknum kleift að auka gæði meðferðarinn-
ar á markvissari hátt.
Heimildir
1 landlaeknir.is/utgefid-efni/skjal/item15747/Skimun-
fyrir-krabbameini-i-ristli-og-endatharmi--Samantekt-
starfshops-landlaeknis- - janúar 2014.
2. Bretthauer M, Ekbom A, Malila N, Stefánsson T,
Fischer A, Hoff G. Skimun fyrir krabbameini í ristli og
endaþarmi. Samvinna milli stjórnmálamanna og vísinda-
manna er nauðsynleg. Læknablaðið 2006; 92: 519-22.
3. velferdarraduneyti.is/media/frettatengt2012/Drog_ad_
heilbrigdisaaetlun.pdf – bls. 17, janúar 2014.
4. krabb.is/Assets/ ýmislegt /20100428stefnumot-
un185245kl1020medkapu.pdf - bls. 25, janúar 2014.
5. cancercentrum.se/sv/Kvalitetsregister/ - janúar 2014.
Að bæta horfur og meðferð sjúklinga
með ristil- og endaþarmskrabbamein
To improve prognosis and treatment of
patients with colon and rectal cancer
Birgisson H
Department of surgical sciences, Colorectal surgery,
uppsala university, uppsala, Sweden
Helgi Birgisson
sérfræðingur í ristil- og
endaþarmsskurðlækningum
við Akademiska sjúkrahúsið
í Uppsölum og dósent við
læknadeild háskólans þar
Helgi.Birgisson@surgsci.uu.se