Læknablaðið - 01.02.2014, Page 37
LÆKNAblaðið 2014/100 101
l Ö G F R æ ð i 8 . P i S T i l l
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða
pistlahöfund ábendingum um efni sem þeir vilja að fjallað verði um.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
DoggP@lis.is
Um aðgang að sjúkraskrám gilda ákvæði
laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár. Nokkrar
breytingar voru gerðar á ákvæðunum með
lögum nr. 6/2014, sem gengu í gildi fyrir
örfáum dögum. Þær þrengja kæruheimildir
sjúklinga vegna synjunar á aðgangi að
sjúkraskrám.
Lög um sjúkraskrár geyma orðskýringar
og skipta tvær máli í þessari umfjöllun.
Ábyrgðaraðili sjúkraskráa er heilbrigðis-
stofnun eða starfsstofa heilbrigðisstarfs-
manna þar sem sjúkraskrár eru færðar.
Ábyrgðaraðili sjúkraskráa felur umsjónaraðila
sjúkraskráa að hafa eftirlit með og sjá um að
skráning og meðferð sjúkraskrárupplýsinga
sé í samræmi við ákvæði laganna.
Umsjónaraðilinn skal vera læknir eða annar
heilbrigðisstarfsmaður, ef lækni er ekki
til að dreifa. Starfi heilbrigðisstarfsmaður
einn á stofu, telst hann umsjónaraðili þeirra
sjúkraskráa sem hann færir.
Meginreglan um aðgang að sjúkraskrám
samkvæmt lögum um sjúkraskrár er skýr:
Aðgangur að sjúkraskrám er óheimill nema
til hans standi sérstök lagaheimild. Lögin
heimila eftirtöldum aðgang að sjúkraskrám.
Aðgangur heilbrigðisstarfsmanna að
sjúkraskrám er bundinn við að starfsmaður-
inn komi að meðferð sjúklingsins og þurfi
vegna hennar að komast í sjúkraskrána.
Sjúklingur eða umboðsmaður hans
getur bannað að tiltekinn starfsmaður eða
starfsmenn, þar með taldir nemar í starfs-
námi, hafi aðgang að sjúkraskrá. Sé talið
nauðsynlegt vegna meðferðar sjúklings að
þessir aðilar hafi aðgang að sjúkraskránni,
ber að upplýsa sjúkling um að bannið geti
jafngilt því að hann hafni meðferð, sbr. lög
um réttindi sjúklinga. Aðgangur að því
sem sjúklingur skilgreinir sem sérstaklega
viðkvæmar sjúkraskrárupplýsingar er ætíð
takmarkaður við heilbrigðisstarfsmenn sem
nauðsynlega þurfa upplýsingarnar vegna
meðferðar sjúklingsins. Aðgangur að slíkum
upplýsingum skal að jafnaði takmarkaður
við heilbrigðisstarfsmenn sem starfa innan
einingarinnar þar sem meðferð er veitt.
Aðgangur annarra heilbrigðisstarfsmanna
að slíkum upplýsingum er óheimill nema
með samþykki sjúklings, nema aðgangurinn
teljist nauðsynlegur vegna öryggis heil-
brigðisstarfsmanna.
Sjúklingur eða umboðsmaður hans á rétt á
aðgangi að eigin sjúkraskrá í heild eða að
hluta og til að fá afhent afrit sjúkraskrár-
innar ef eftir því er leitað. Ef um er að ræða
sjúkraskrárupplýsingar sem hafðar eru eftir
öðrum en sjúklingi sjálfum eða heilbrigðis-
starfsmönnum, skal leita samþykkis þess
sem upplýsingarnar gaf, áður en þær eru
sýndar sjúklingi eða umboðsmanni hans.
Ef þessi þriðji aðili er látinn eða horfinn eða
neitar aðgangi af ómálefnalegum ástæðum,
má vísa málinu til landlæknis, sem getur
ákveðið að sjúklingi eða umboðsmanni
hans skuli engu að síður veittur aðgangur
að þessum upplýsingum, í heild eða að
hluta.
Sé talið að það þjóni ekki hagsmunum
sjúklings að veita honum aðgang að sjúkra-
skrá í heild eða að hluta eða afhenda honum
eða umboðsmanni hans afrit af henni, skal
umsjónaraðili sjúkraskráa leiðbeina um rétt
til að bera synjunina undir embætti land-
læknis. Þessi málsmeðferð er nýmæli því
fyrir gildistöku laga nr. 6/2014 gilti að þá
skyldi án tafar framsenda landlækni afrit
sjúkraskrárinnar og landlæknir afgreiða
erindið innan átta vikna. Ákvarðanir
landlæknis um þetta voru kæranlegar til
ráðherra. Eftir breytingu með lögum nr.
6/2014 gildir að ef umsjónaraðili sjúkraskráa
synjar um aðgang að sjúkraskrá eða neitar
að afhenda afrit hennar leiðbeinir hann um
kærurétt til landlæknis. Ákvörðun land-
læknis um aðganginn er endanleg á stjórn-
sýslustigi og verður ekki skotið til ráðherra.
Umsjónaraðila sjúkraskráa er heimilt að
veita nánum aðstandanda látins einstaklings,
svo sem maka, foreldri eða afkomanda,
aðgang að sjúkraskrá hins látna og afrit
hennar, sé þess óskað. Við mat á því hvort
veita skuli aðganginn skal hafa hliðsjón af
hagsmunum aðstandanda sem óskar eftir
aðganginum og vilja hins látna, liggi fyrir
upplýsingar um hann. Ef umsjónaraðilinn
synjar um aðgang eða afrit af sjúkraskrá
látins einstaklings skal hann leiðbeina um
rétt til að bera synjunina undir embætti
landlæknis. Ákvörðun landlæknis í þessum
tilvikum er einnig endanleg á stjórnsýslu-
stigi.
Heilbrigðisyfirvöld sem fá til umfjöll-
unar kvörtun eða kæru sjúklings eða
umboðsmanns hans eiga rétt til aðgangs að
sjúkraskrá viðkomandi með sama hætti og
sjúklingurinn sjálfur.
Loks heimila lögin um sjúkraskrá aðgang
að sjúkraskrám vegna gæðaþróunar og gæða-
eftirlits með heilbrigðisþjónustu og meðferð
innan heilbrigðisstofnunar eða starfsstofu
heilbrigðisstarfsmanns. Þá er heimilt að
veita starfsmönnum sem vinna að þjónustu
við tölvu- og upplýsingakerfi nauðsynlegan
aðgang að sjúkraskrárkerfi til að sinna
vinnslu, uppfærslu og viðhaldi kerfisins
og skulu þessir starfsmenn undirgangast
sambærilega trúnaðar- og þagnarskyldu og
heilbrigðisstarfsmenn. Þessi síðastnefndi að-
gangur tæknimanna er nýmæli samkvæmt
lögum nr. 6/2014.
Eins og áður er getið þarf lagaheimild
til aðgangs að sjúkraskrá. Hér að framan
hefur verið rakið hverjir eiga aðgang
að sjúkraskrá samkvæmt lögum um
sjúkraskrár. Víða í öðrum lögum er
heimild til slíks aðgang, svo sem í lög-
ræðislögum, lögum um Ríkisendur-
skoðun, lögum um almannatryggingar,
lögum um sjúkratryggingar, lögum um
gagnagrunn á heilbrigðissviði og lögum
um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda
afbrota. Í lögum um réttindi sjúklinga er
fjallað um aðgang að sjúkraskrá vegna
vísindarannsókna og fyrirmæli um að um
þann aðgang verður að skrá hverju sinni í
sjúkraskránna.
Ekki verður skilið við þetta viðfangsefni
öðru vísi en að geta þess að samkvæmt
lögum um sjúkraskrár á sjúklingur rétt á
því að fá upplýsingar frá umsjónaraðila
sjúkraskráa um það hverjir hafi aflað upp-
lýsinga úr sjúkraskrá hans, hvar og hvenær
upplýsinga var aflað og í hvaða tilgangi.
Aðgangur að sjúkraskrám