Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 38
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R 102 LÆKNAblaðið 2014/100 Mikil vinna hefur verið lögð í endur- skipulagningu framhaldsnáms í lyf- lækningum á Landspítala frá því í nóvember. Flestum er eflaust í fersku minni umræðan frá síðastliðnu sumri og hausti um ófremdarástand á lyflækn- ingasviði spítalans, en þá gengu sumir jafnvel svo langt að tala um hrun og að framhaldsnámið væri í molum. Á þessu hefur nú verið tekið og er mikill hugur innan sviðsins að snúa vörn í sókn. Davíð O. Arnar hjartalæknir tók við starfi framkvæmdastjóra lyflækningasviðs í nóvember og stuttu síðar var Friðbjörn Sigurðsson krabbameinslæknir skipaður framhaldsmenntunarstjóri. Í kjölfarið hafa verulegar breytingar átt sér stað og ný- verið voru auglýstar 12 stöður námslækna við lyflækningasvið með skýrum áherslu- breytingum. Í viðtali við Læknablaðið segja þeir að fjölmargir hafi lagt hönd á plóginn í þessu ferli og stuðningur heilbrigðis- ráðherra og yfirstjórnar spítalans hafi sömuleiðis verið mjög mikilvægur. Viðsnúningur á haustdögum Þegar farið er yfir stöðuna eins og hún blasti við síðastliðið sumar eru þeir Davíð og Friðbjörn ómyrkir í máli. „Það má segja að margra ára niður- skurður hafi þrengt svo að starfsemi spítalans að í óefni var komið og það ríkti nánast neyðarástand á sumum einingum hans. Margt sérhæft starfsfólk gafst upp og leitaði annað eftir vinnu. Ungir læknar réðu sig ekki til starfa vegna óhóflegs vinnuálags og skorts á kennslu og tilsögn. Tæki voru úr sér gengin og húsnæði spít- alans er að mörgu leyti úrelt. Það versta er þó að vandinn var að mestu fyrir- sjáanlegur og umhugsunarvert er að ekki hafði verið brugðist við fjölda vísbendinga um síversnandi stöðu spítalans. Sú eining Landspítalans sem sennilega tók stærsta skellinn var lyflækningasviðið. Ein ástæða þess er að við sameiningu sjúkrahúsanna var undirsérgreinum lyflækninga skipt á milli húsa, þannig að erfitt var að skipu- leggja sameiginlega starfsemi sviðsins. Þá kom niðurskurður vegna skorts á fjár- magni sér illa þar sem verkefni á sviðinu hafa aukist, enda hefur sjúklingum með fjölþætt langvarandi vandamál fjölgað mikið samfara öldrun þjóðarinnar,“ segir Davíð. Friðbjörn bætir við að í rauninni hafi starfsemin verið nálægt því að fara í þrot á þessum tímapunkti. „Læknaráð spítalans lýsti þungum áhyggjum af mönnun lækna og að fjöldi læknanema væri ráðinn til að sinna störfum deildarlækna og lækna- kandídata. Það sama gerði hjúkrunarráð og formaður Læknafélags Íslands. Land- spítali setti í gang neyðaráætlun á sviðinu sem tók gildi þann 1. september en það gekk meðal annars út á að hlífa ákveðnum en þó fáum kennsluteymum, sem verndaði að einhverju leyti þá fáu unglækna sem voru áfram við störf en því miður með þeim afleiðingum að álag á marga sér- fræðinga sviðsins jókst stórlega.“ Í ljósi stöðunnar sem komin var upp efndi Læknafélag Íslands til fjölmenns fundar lækna þann 5. september og sótti Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fundinn. Á fundinum bað ráðherra um lausnir og í framhaldinu skrifuðu frummælendur fundarins bréf til ráðherra þar sem margvíslegar tillögur voru reifaðar. Ráðherra og þáverandi forstjóri sjúkrahússins ákváðu, með yfirlýsingu þann 12. september, að farið yrði í aðgerðir til að bæta stöðu lyflækningasviðsins. Í þeirri yfirlýsingu var komið inn á fram- haldsmenntun í almennum lyflækningum og nauðsyn þess að efla hana. Þá var kveðið á um að námið myndi hljóta opinbera viðurkenningu heilbrigðis- og menntamálayfirvalda ásamt því að sérstök fjárveiting yrði til verkefnisins næstu 5 árin. Davíð og Friðbjörn segja að í þessu fel- ist verulegur sigur enda í fyrsta skipti sem framhaldsnám í lyflækningum fær form- lega viðurkenningu stjórnvalda. „Viður- kenning sem þessi er læknum í framhalds- námi mjög mikilvæg þegar þeir sækjast eftir að fá sinn tíma hérlendis metinn til framhaldsnáms við erlendar stofnanir,“ segir Davíð. Friðbjörn segir að skjót og jákvæð viðbrögð heilbrigðisráðherra hafi komið læknum skemmtilega á óvart þar sem þeir hafi um langa hríð ekki vanist því að á þá væri hlustað. „Vissulega má þó segja að ekki hafi verið annar möguleiki í stöðunni, spítalinn var kominn að bjarg- brúninni.“ Samkvæmt áðurnefndri yfirlýsingu ráð- herra og forstjóra spítalans var sömuleiðis ákveðið að styrkja þátt almennra lyflækn- inga á sjúkrahúsinu. Í þeim tilgangi var Friðbjörn settur sem yfirlæknir almennra lyflækninga. Þá voru settar á fót þrjár nefndir til að vinna að úrbótum á sviðinu, ein til að fjalla um skipulag lyflækninga og framhaldsnámið. Önnur nefnd skoðar hvernig mætti nýta betur krafta og hæfni annarra fagstétta til stuðnings við störf lækna. Þriðja nefndin á að skila tillögum um hvernig efla skuli háskólahlutverk sviðsins á breiðum grundvelli, hvernig Ný og breytt áhersla í framhaldsnámi í lyflækningum ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.