Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.2014, Side 43

Læknablaðið - 01.02.2014, Side 43
LÆKNAblaðið 2014/100 107 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Sólveig Jóhannsdóttir framkvæmda- stjóri LÍ fór yfir hver launaþróun lækna hefur verið undanfarin ár og benti á að þróunin hefur ekki gengið í takt við launaþróun opinberra starfsmanna. „Frá ársbyrjun 2007 til ársbyrjunar 2013 hækkuðu heildarlaun lækna um að meðal- tali 28%, samanborið við um 40% hækkun hjá opinberum starfsmönnum. Laun lækna samanstanda af dagvinnulaunum, yfir- vinnulaunum og vaktavinnulaunum. Vaktir og yfirvinna vega töluvert af heildar launum lækna. Hjá kandídötum og deildarlæknum vega þau rúmlega 50% og hjá sérfræðingum og yfirlæknum vega þau rúmlega 35%. Margir læknar hafa flutt til Noregs og Svíþjóðar þar sem launakjör og vinnutími eru betri. Þar eru algeng dagvinnulaun sérfræðinga rúmlega 1100 þúsund krónur. Heildarlaunin í Noregi eru í kringum 50% hærri en hér á landi,“ sagði Sólveig. Í umræðum um launakjör lækna kom skýrt fram að læknar vilja umtalsverðar launahækkanir og að áherslan verði að vera á dagvinnulaunin. Rannsóknir á ósæðarsjúkdómum Af allt öðrum toga má nefna málþing um nýjungar í greiningu og meðferð ósæðar- sjúkdóma, en á þessu sviði hafa orðið mjög miklar framfarir á síðustu árum. Mál- þingið var mjög vel sótt af sérfræðingum, yngri læknum og læknanemum og var fundarstjóri Tómas Guðbjartsson pró- fessor. George Tellides prófessor við Yale háskólasjúkrahúsið í New Haven í Banda- ríkjunum reið á vaðið og greindi frá helstu nýjungum í meingerð ósæðargúla. Að- spurður um efnið sagði Tómas Guðbjarts- son að á undanförnum árum hefði skiln- ingur manna vaxið mjög á því hvernig og af hverju þessi gúlar myndast og hvernig þeir ná að stækka. „Arnar Geirsson hjartaskurðlæknir á Landspítala greindi frá klínískri birtingarmynd ósæðargúla og ósæðarflysjunar og í hverju skurðmeðferð þessara sjúkdóma felst. Hjalti Þórisson, sérfræðingur í myndgreiningu á Land- spítala fjallaði um helstu nýjungar í mynd- greiningu ósæðarsjúkdóma og hvernig ný tækni hefur gert greiningu nákvæmari og eftirlit öflugra. Síðastur talaði Tim Resch æðaskurðlæknir og dósent við Háskóla- sjúkrahúsið á Skáni og sýndi á mynd- rænan hátt hvernig hægt er að meðhöndla flókna ósæðargúla með stoðnetum sem komið er fyrir í æðaþræðingu. Ljóst er að á þessu sviði hafa þegar orðið gríðarlegar framfarir og ekki er séð fyrir endann á þeirri þróun,“ sagði Tómas Guðbjartsson. Svigrúm til að stækkunar Gunnar Bjarni Ragnarsson framkvæmda- stjóri Fræðslustofnunar Læknafélags Íslands kvaðst mjög ánægður með Fyrirlesarar á málþingi um nýjungar í greiningu og meðferð ósæðarsjúkdóma. George Tellides, Arnar Geirsson, Timothy Resch, Hjalti Þórisson og Tómas Guð- bjartsson. Gunnar Bjarni Ragnarsson þakkar undirbúningsnefnd Læknadaga gott og ánægjulegt samstarf. Frá vinstri; Gunnar Bjarni, Kristján Guðmundsson glímustjóri, Sigurjón Vilbergsson glímu- dómari. Undirbúningsnefndin: Össur Ingi Emilsson, Gerður Gröndal, Margrét Aðalsteinsdóttir, Ólafur Már Björnsson og Anna Gunnarsdóttir. Áhugafólk um sögu læknisfræðinnar lét Elías Ólafsson sannfæra sig um að Jón Sigurðsson forseti og frelsishetjan góða hefði aldrei fengið sýfillis. Geðlæknarnir Ómar Ívarsson og Óttar Guðmundsson léku á als oddi.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.