Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 49
LÆKNAblaðið 2014/100 113 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R einhver skipti. Með HPV-prófi ættu líkur á að greina hverjar hafa orðið fyrir há- áhættusmiti að gera sérhæfðara eftirlit enn betra. Vandinn er að finna leiðir til að ná til þessara kvenna og fá þær til að koma í krabbameinsleit. Ákvörðun um að hætta skipulagðri leit við 65 ára aldur í stað 69 ára þarf að tengjast öðrum skipulagsbreytingum á framkvæmd leitarinnar. Meginatriðið er að hefja notkun HPV-prófsins hjá öllum konum (að minnsta kosti eftir þrítugt), í samræmi við niðurstöður norrænna og annarra erlendra rannsókna.8 Konur sem hafa verið jákvæðar fyrir há-áhættu HPV eða haft alvarlegri forstigbreytingar falla ekki úr áhættuhópi, heldur ekki eftir til- tekinn aldur eins og ný sænsk rannsókn staðfestir.9 Íslenskar konur eru langlífar. Við 65 ára aldur er þriðjungur meðalæv- innar framundan. Mögulegt ætti því að vera fyrir eldri konur að koma til leitar vegna einkenna, ef þær kjósa það sjálfar (og greiða eðlilegan kostnað). Þær þekkja leitina og treysta henni. Skert og dýrari þjónusta? Krabbameinsfélagið hefur nú hætt óm- skoðunum hjá konum með afbrigðilega grindarþreifingu sem hluta af leitar- starfinu og hyggst jafnvel hætta að bjóða þreifingu á líffærum í grindarholi kvenna á þeim grundvelli að ávinningur af því sé ekki sannaður hjá konum án einkenna. Konum með einkenni, svo og konum sem leita eftir skoðun utan boðunaraldurs, verður vísað til heimilislækna og einkum til sérfræðilækna. Ef hætta á með öllu þreifingu í grindarholi hjá einkenna- lausum konum við leit ætti það að vera almennt atriði sem færi inn í kvenskoðanir hjá öllum læknum. Afleiðingar og kostn- aður af þess konar breytingum hefur ekki verið metinn. Með fyrirhuguðum breytingum í þriggja ára mætingu mun millibil í boðun til legháls- og brjóstakrabbameinsleitar eftir fertugt ekki standast á eins og verið hefur. Aðskilnaður leitar að leghálskrabba- meini og brjóstakrabbameini eftir fertugt, með því að hafa millibil þeirra skoðana ekki samhæfð, er líklegur til að leiða til óhagræðis fyrir konurnar og kostnaðar- auka fyrir heilsugæslustöðvar utan Reykja- víkur og þar með heilbrigðisyfirvöld. Samhliða skertri þjónustu hefur gjald fyrir krabbameinsleit með frumustroki og brjóstaröntgenmynd samt hækkað á einu ári úr kr. 4000 í kr. 6300 sem telst við sársaukamörk fyrir margar konur og því lítt hvetjandi til þátttöku í leitinni. Mönnun leitar og minnkandi mæting Leitarstarfið hefur verið mikilvægt heilsufarsatriði fyrir íslenskar konur, eins og annars staðar þar sem tekist hefur að búa til miðstýrt og vel skipulagt leitarkerfi. Sýnataka á vegum sjálfstætt starfandi sér- fræðilækna og heilsugæslunnar er einnig mikilvæg, en gögn Krabbameinsfélagsins sýna að slík óskipuleg leit nær einungis til þriðjungs kvennanna og er að auki dýrari fyrir konurnar og hið opinbera. Á síðustu árum hefur því miður oft reynst erfitt að manna leitina með lækn- um, ekki síst með kvensjúkdómalæknum sem báru leitina uppi fyrstu áratugina. Nokkrar ljósmæður hafa í staðinn verið þjálfaðar til leitarstarfsins vegna þess hve vanar þær eru skoðunum í grindarholi kvenna í tengslum við fæðingar. Með við- bótarnámi um líffæra- og sjúkdómafræði kynfæra kvenna hefur grunnmenntun þeirra nýst vel í leitinni. Ekki er ráðlegt að okkar mati að veita afslátt í menntun og getu þeirra sem taka þátt í leitarstarfinu, fremur en þeirra sem skoða frumustrokin eða sjá um að reka tölvuvætt og skipulegt leitarkerfi sameiginlegrar legháls- og brjóstakrabbameinsleitar. Sérskoðanir, svo sem leghálsspeglanir og ómskoðanir, geta hins vegar vel verið á hendi sérfræðilækna eða kvennadeilda. Það sama á við um sérskoðanir í tengslum við brjóstakrabba- meinsleitina. Minnkandi mæting allra síðustu árin, ekki síst meðal yngri kvenna,10 er áhyggju- efni. Þó þessi þróun geti tengst núverandi tilhneigingu fólks til að draga við sig að fara til lækna í kjölfar efnahagshrunsins,11 gefur hún tilefni til endurskoðunar á núverandi fræðslu, einkum til unglings- stúlkna og yngri kvenna. Yfirlýsing um litla áhættu á þróun leghálskrabbameins þrátt fyrir vaxandi tíðni alvarlegra for- stigsbreytinga í þessum aldurshópi stuðlar ekki að aukinni þekkingu á tilgangi leitar- starfsins meðal almennings og fagfólks. Lokaorð Röksemdir fyrir breytingum á skipulagi leitar frá 1. janúar 2014 standast ekki. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á leit- inni á Íslandi benda til þess að leitin ætti að byrja fljótlega eftir tvítugt. Ákvörðun um hvenær eigi að hætta leitinni þarf að tengja skipulegri notkun há-áhættu HPV-greininga til að finna þær konur sem eru í raunverulegri hættu á að þróa krabbamein. Bæta þarf almenna fræðslu um markmið leitarstarfsins og menntun þeirra sem starfa við leitina. Nauðsynlegt er að viðhalda samhæfðu millibili boðana í legháls- og brjóstakrabbameinsleit til hag- ræðis fyrir konur eftir fertugt. Breytingar á krabbameinsleit sem skilað hefur miklum árangri fyrir íslenskt samfélag þarf að gera á grunni íslenskra gagna með hliðsjón af erlendri þekkingu, eins og við á og að vel athuguðu máli, til að tryggja að góður árangur haldist. Heimildir 1. Sigurdsson K. The Icelandic screening experience. HPV Today 2013; 30-31: 28-30. www.hpvtoday.com - janúar 2014. 2. Arbyn M, Roelens J, Simoens C, Buntinx F, Paraskevaidis E, Martin-Hirsch PP, et al. Human papillomavirus testing versus repeat cytology for triage of minor cytological cervical lesions. Cochrane Database Syst Rev 2013; 3:CD008054. Review. 3. Cuzick J, Arbyn M, Sankaranarayanan R, Tsu V, Ronco G, Mayrand MH, et al. Overview of human papillomav- irus-based and other novel options for cervical cancer screening in developed and developing countries. Vaccine 2008; 26 Suppl 10: K29-41. 4. Sigurdsson K, Sigvaldason H. Is it rational to start population-based cervical cancer screening at age 20? Analysis of time trends in preinvasive and invasive disease. Eur J Cancer 2007; 43: 769-74. 5. Sigurdsson K, Sigvaldason H. Effectiveness of cervical cancer screening in Iceland, 1964-2002: a study on trends in incidence and mortality and the effect of risk factors. Acta Obstet Gynecol Scand 2006; 85: 343-9. 6. Sigurdsson K. Cervical cancer: Cytological screening in Iceland and implications of HPV vaccines. A review paper. Cytopathology 2010; 21: 213-22. 7. New cervical cancer screening recommendations from U.S. Preventive Service Task Force uspreventiveservices- taskforce.org/uspstf/uspscerv.htm - janúar 2014. 8. Sigurjónsson H. HPV-greining veitir nær fullkomna vernd gegn leghálskrabbameini, segir Joakim Dillner, pró- fessor í smitsjúkdómum og faraldsfræði við Karólínsku stofnunina í Stokkhólmi. Læknablaðið 2012; 12: 662-3. 9. Strander B, Hällgren J, Sparén P. Effect of ageing on cervical or vaginal cancer in Swedish women previously treated for cervical intraepithelial neoplasia grade 3: population based cohort study of long term incidence and mortality. BMJ 2014; 348: f7361. 10. Sigurðsson K, Oddson K. Skýrsla Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins fyrir starfsárið 2012. Krabbameinsfélagið nóvember 2013 (krabb.is/assets/ leitarstod/2013-SkyrslaLeitarstodvar2012_7349771.pdf) - janúar 2014. 11. Vilhjálmsson R. Þurfum skjaldborg um sjúklingana. Sjúkraliðinn 2013; 27: 20-6.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.