Læknablaðið - 01.05.2014, Side 17
Mynd 7. Á segulómmynd (a) sem er úr FLAIR myndröð og b) sem er úr diffusion-
myndröð er sýnt smáæðardrep (ör) í vinstri stúku sem olli hægra skyntapi.
Heilkenni þvoglumælis og klaufsku í hendi (dysarthry-clumsy hand
syndrome)
Aðaleinkennin eru þvoglumæli og klaufska í hendi. Skemmdin er
yfirleitt í brú eða innhýði (capsula interna) gagnstæðu megin við
einkennin.
Hreint skyntap (pure sensory stroke)
Hreint skyntap einkennist af viðvarandi eða tímabundnum dofa,
stingjum, verk, bruna eða annarri óþægilegri tilfinningu öðrum
megin í líkamanum. Drepið er oftast staðsett í stúku gagnstæðu
megin (mynd 7).
Blandað skyntap og lömun (mixed sensorimotor stroke)
Í þessu klíníska heilkenni helftarlömunar og skyntaps er ördrepið
staðsett í stúku og aðliggjandi aftari hluta innhýðis gagnstæðu
megin.
Samantekt
Átta af hverjum 10 heilablóðföllum stafa af heilablóðþurrð/drepi,
tvö stafa af blæðingu. Heilablóðfall er algengasta orsök fötlunar
og leggur undir sig flest bráðarými sjúkrahúsa á Vesturlöndum í
dag. Árlegt nýgengi er 150-200/100.000/íbúa. Helstu áhættuþættir
eru hár aldur, jákvæð fjölskyldusaga, saga um fyrra heilablóðfall,
háþrýstingur, sykursýki, reykingar, hækkað kólesteról, offita og
hreyfingarleysi.
Mynd 6. Nýtt stórt drep
í heilastofni (ör), sýnt með a)
tölvusneiðmynd, b) segulóm-
skoðun FLAIR myndröð og
c) flæðismynd (Diffusion).
Mynd d) TS æðaskoðun eftir
skuggaefnisgjöf í æð sýnir
lokun á hjarnabotnsslagæð
(ör) og mynd e) er þrívíddar-
úrvinnsla sem sýnir betur
þann hluta æðarinnar sem er
lokaður.
LÆKNAblaðið 2014/100 277
Y F I R L I T