Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2014, Síða 27

Læknablaðið - 01.05.2014, Síða 27
LÆKNAblaðið 2014/100 287 þúsundir Íslendinga hafa sigrað. Flestir hafa gengið á Sveinstind út frá hefðbundnum gönguleiðum á Hvannadalshnjúk, þá oftast frá hinni fjölförnu Sandfellsleið eða Hnappaleið upp frá Fagur- hólsmýri. Aðrar leiðir eru enn fáfarnari, eins og Hrútárjökulsleið, og leiðin sem Sveinn Pálsson lýsti fyrstur árið 1794 og er nú kölluð Kvískerjaleið (mynd 7). Kvísker er frægt býli við austanverðan Öræfajökul og er meðal annars þekkt fyrir þá staðreynd að þar er mest meðalúrkoma í byggð á Íslandi. Þaðan lagði Sveinn upp í sögufræga göngu sína þann 11. ágúst 1794. Hann varð um leið fyrstur manna til að ganga á Öræfajökul. S a G a l æ k n i S F R æ ð i n n a R Mynd 6. Loftmynd af Öræfajökli sem sýnir vel afstöðu Hvannadalshnjúks á norð- vesturbrún öskjunnar og Sveinstinds norðaustan megin (til hægri). Einnig sjást vel svokallaðir Hnappar í suðurhluta Öræfajökuls. Í baksýn má greina Esjufjöll og Máva- byggðir. Mynd: Oddur Sigurðsson. Mynd 7. Línurnar sýna nokkrar leiðir á Hnjúkinn: Kvískerjaleið (rauð) og Hrútár- jökulsleið (blá), Hnappaleið (græn) og Sandfellsleið (svört). Teikning: Guðbjartur Krist- ófersson. Mynd 8. Gengið upp Hrútárjökul í maí 2012 á leið á Sveinstind en sjá má tindinn efst til hægri á myndinni umvafinn skýjum. Sveinstindur var ekki sigraður að þessu sinni vegna erfiðra aðstæðna. Mynd: Ólafur Már Björnsson. Mynd 9. Sveinstindur fyrir miðju (2044 m), Sveinsgnípa til vinstri (virðist hærri á myndinni en er 1925 m) og krosssprunginn Hrútárjökull til hægri. Mynd: Ólafur Már Björnsson.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.