Læknablaðið - 01.05.2014, Page 30
290 LÆKNAblaðið 2014/100
enda líklega hulinn snjó á þessum árstíma. Sveinn hafði hins
vegar verið á ferðinni síðsumars, eða um miðjan ágúst. Má raunar
teljast ótrúlegt að leiðin hafi verið fær á þeim tíma árs vegna jökul-
sprungna, en veðurfar var þó kaldara þá en nú tíðkast.
Eftir næstum 16 tíma göngu var haldið að bænum Gerði í
Suðursveit. Þar var slegið upp veislu og gómsætt fjallalambið
hvarf fljótt ofan í svanga göngumenn. Undir borðum var mál-
tíðin krydduð með skemmtisögum úr göngu dagsins en jafnframt
lesnir skemmtilegustu kaflarnir úr Ferðabók Sveins. Mikið var
hlegið enda allir „hátt uppi“ og endurnærðir eftir ógleymanlega
gönguferð.
Þakkir fá Hákon Guðbjartsson, Oddur Sigurðsson, Óðinn
Árnason og Ólafur Már Björnsson fyrir lán á myndum og Guð-
bjartur Kristófersson fyrir veitta aðstoð.
Heimildir
1. Jónsson ÓÞ. 250 ára afmæli. Sveinn Pálsson læknir og náttúrufræðingur. Læknablaðið 98;
2012: 98-9.
2. Ísberg JÓ. Líf og lækningar. Íslensk heilbrigðissaga. Hið íslenska bókmenntafélag,
Reykjavík 2005.
3. Pálsson S. Ferðabók Sveins Pálssonar. Dagbækur og ritgerðir 1791-1797. Bókaútgáfan Örn
og Örlygur, Reykjavík 1983.
4. Pálsson S. Æfisaga Sveins læknis Pálssonar eftir sjálfan hann. Ársrit hins íslenska fræða-
fjelags, Kaupmannahöfn 1929; 10: 34.
5. gonguleidir.is/gonguleidir/sveinstindur/ – apríl 2014.
6. Guðmundsson S. Hver gekk fyrstur á Hvannadalshnjúk? Lesbók Morgunblaðsins;
26. nóvember 1994.
7. Hallgrímsson S. Ferðalög og flakk. Í spor Sveins landlæknis. Morgunblaðið 28. maí 2013.
8. Guðbjartsson T, Guðmundsson G. Háfjallaveiki – yfirlitsgrein. Læknablaðið 2009; 95: 441-7.
Í T i l E F n i 1 0 0 Á R a Ó S l i T i n n a R ú T G Á F u l æ k n a b l a ð S i n S
Mynd 13. Annar greinarhöfunda í leit að steini Sveins Pálssonar, sem ekki fannst að
þessu sinni, þrátt fyrir mikla leit. Mynd: Engilbert Sigurðsson.
5 mg
en gång
dagligen
Tveir sjúkdómar. Ein meðferð.
Fyrir einstaklinga með stinningarvandamál, sem hafa
einkenni góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli.
• Ræður bót á bæði stinningarvandamálum og einkennum
góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli hjá einstaklingum
með báða sjúkdómana1
• Verkunin byggir á auknu blóðflæði til getnaðarlims,
blöðruhálskirtils og þvagblöðru1
• Meðferðin þolist vel en hún felur í sér daglega notkun
á 5 mg Cialis1
1. Cialis - Samantekt á eiginleikum lyfs
LIL121201
5 mg
einu sinni
á dag
Mynd 12. Hópurinn á toppi Sveinstinds. Í fremstu
röðinni eru Arnar Jónsson leiðsögumaður,
Guðmundur Jónsson leiðsögumaður og Arnar
Jónsson.
Í miðjuröð eru fjórar Mammút-systur: Halldóra
Blöndal, Signe Viðarsdóttir, Emelía Blöndal og
Guðrún Kolbrún Otterstedt.
Aftast standa Óðinn Árnason leiðsögumaður,
Heiðar Ingi Ágústsson, Kristín Jóna Hilmarsdóttir,
Haukur Hjaltason, Þóra Steingrímsdóttir, Engilbert
Sigurðsson, Ólafur Adolfsson, Tómas Guðbjartsson
og Ólafur Már Björnsson.
Mynd: Ólafur Már Björnsson.